Fyrstu óskararnir mínir (myndir)

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
User avatar
Piranhinn
Posts: 917
Joined: 22 Apr 2007, 15:55
Location: Hafnarfjörður
Contact:

Fyrstu óskararnir mínir (myndir)

Post by Piranhinn »

Þeir eru alveg skelfilega miklir töffarar þessir :)
Ætla að vera duglegur að henda inn myndum og svoleiðis af þeim.
Hef heyrt að þeir vaxi eins og illgresi :) hehe.
Væri gaman að fá smá reynslu upplýsingar um "uppeldi"
á þessum fiskum...? :)

Image

Image

Einhver vildi benda á að þeir heita Emil (sá "venjulegi") og Tumi (sá röndótti) hehe
Gudjon
Posts: 1308
Joined: 18 Sep 2006, 19:34

Post by Gudjon »

Sæll og til hamingju

Óskarar eru frábærir fiskar, hálfgerðir hvolpar, sjálfur er ég með 6 en stefni á að losa mig við 2 einhverntíman á næstunni
Þeir vaxa hratt og borða mikið, ferlegir sóðar, geta borðað minni fiska sem passa uppí þá
Mæli með góðum vatnsskiptum og öflugri dælu þegar að þeir stækka

Hvað ertu með stórt búr og hvað ertu með af fiskum í því?
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Guðjón hittir naglan á höfuðið.
Mæli með sem stærstu búri.
User avatar
Piranhinn
Posts: 917
Joined: 22 Apr 2007, 15:55
Location: Hafnarfjörður
Contact:

Post by Piranhinn »

jámm. búrið sem að þeir eru í núna er nú hálfgert peð, en
þeir eiga séns á að fara í 250 L búr þegar þeir fara að stækka
og það búr er með fínasta hreinsibúnaði :)
Það verður gaman að fylgjast með þessum köppum,
virðist koma ágætlega vel saman, þó að þeir hafi ekki verið
keyptir á sama stað, en þeir eru stundum að nuddast utan
í hvorn annan og svona og hanga mikið nálægt hvor öðrum :)
Búinn að eiga röndótta síðan í gær en hinn síðan á fimmtudaginn síðasta.
Heyrði einhversstaðar að það gæti verið betra að hafa fleiri en einn þar sem að þeir eru félagslyndir... Kannski e-ð bull? hehe
Gudjon
Posts: 1308
Joined: 18 Sep 2006, 19:34

Post by Gudjon »

Það er hægt að hafa 1 en það verður miklu meira fjör á þeim ef þeir eru fleiri
Lexis
Posts: 89
Joined: 24 Jul 2007, 23:05

Post by Lexis »

Ég á víst hann Tuma greyið sem varð fyrir því óhappi í dag að einhver sambýlingur hans tók af honum vinstri hliðaruggann og fékk eftir það ævintýri viðurnefnið Zoolander (því eins og Zoolander átti hann í smávegis erfiðleikum með að beygja í aðra áttina, hann er reyndar að venjast þessu vesalingurinn :P
User avatar
Jenni
Posts: 67
Joined: 12 Aug 2007, 20:36

Re: Fyrstu óskararnir mínir (myndir)

Post by Jenni »

Til hamingju. Og þetta er sko töfffarar.
User avatar
Piranhinn
Posts: 917
Joined: 22 Apr 2007, 15:55
Location: Hafnarfjörður
Contact:

Post by Piranhinn »

já, ég hlakka mikið til að fylgjast með þeim vaxa, svo og "kjellingin" mín :p
Þetta eru rosalegir karakterar.
Post Reply