Bakgrunnar, þ.e.a.s. ekki plaggöt

Búrasmíði, bakgrunnar, lok osf

Moderators: Vargur, keli, Squinchy

Post Reply
Birkir
Posts: 1150
Joined: 22 Oct 2006, 13:34
Contact:

Bakgrunnar, þ.e.a.s. ekki plaggöt

Post by Birkir »

Var að skoða heimasíðuna hjá Fiskabúr og sá svona bakgrunnsplötur sem maður festir í búrið með kitti sem fylgir víst með því.


Eru margir að nota svona bakgrunna? Hver er ykkar reynsla af þeim?
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Ég er með svoleiðis bakgrunn og ekkert nema gott um hann að segja. Það þarf bara að passa að kítta vel svo ekki komist vatn og drulla á bakvið.
Gilmore
Posts: 208
Joined: 20 Oct 2006, 07:52

Post by Gilmore »

Ég er með Juwel Rock bakgrunn í 720 lítra búri og þennan svarta frá Juwel í tveimur 400l. Þetta er rosalega flott. Svo er til ein gerð enn sem mig langar að prófa líka einhverntíman, Juwel Roots bakgrunnur.

Þetta er svolítið dýrt en alveg þess virði finnst mér, þessi plaköt eru alveg ómöguleg.
Last edited by Gilmore on 24 Oct 2006, 03:41, edited 1 time in total.
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

pssst.. ég á meira að segja svona svartan sem er auka. 3 stk. og get selt þér ef þú vilt :wink:
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Plakötin eru nú ekki alslæm, reyndar eru þessir gerfilegu gróðurbakgrunnar oft hálfslappir en td nýju Juwel plakötin virkilega flott, ég er sjálfur með grjótaútliðið hjá mér og mjög sáttur. Hann lítur mjög "eðlilega" út.
Ég mæli samt frekar með þrívíddar bakgrunni sérstaklega í stærri búr.

Hér má sjá Juwel bakgrunna.
http://www.fiskabur.is/myndir_vefur/ver ... runnar.htm
Stephan
Posts: 311
Joined: 17 Oct 2006, 14:57
Location: Seljabraut 72 109 RVK

Post by Stephan »

Ég tok mig nú til og gerði minn eigin bakgrun.
Eftir uplisyngar frá eina bok ég á.Til að spara plass setja ég hann bak við buirð og ekki inni. Ég notaðu frauðplast sem ég smiðaðu kassan i kring svo hreyf ég bara úr plastinu og málaði hann og skrautaði hann með svartan sand. ég er bisna ánaður !!! :D

(þvi miður er ég ekki nog klár að setja mynd að þvi hér inni :? )
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Stephan, ég er viss um að ef þú lest aðeins leiðbeiningarnar á því hvernig á að setja myndir inn getur þú fundið útúr því með smá æfingu.
Myndirnar þurfa að vera vistaðar á netinu til að hægt sé að setja þær hér inn.

Þú getur líka sett inn link á myndirnar þannig menn geti skoðað þær eða sent mér slóðina eða myndirnar sjálfar í e-mail á fiskaspjall@fiskaspjall.is og ég get sett þær inn.

Endilega reyndu að sýna okkur myndir og segðu líka frá fiskunum þínum.
Birkir
Posts: 1150
Joined: 22 Oct 2006, 13:34
Contact:

Post by Birkir »

Vargur wrote:Plakötin eru nú ekki alslæm, reyndar eru þessir gerfilegu gróðurbakgrunnar oft hálfslappir en td nýju Juwel plakötin virkilega flott, ég er sjálfur með grjótaútliðið hjá mér og mjög sáttur. Hann lítur mjög "eðlilega" út.
Ég mæli samt frekar með þrívíddar bakgrunni sérstaklega í stærri búr.

Hér má sjá Juwel bakgrunna.
http://www.fiskabur.is/myndir_vefur/ver ... runnar.htm
éG VAR EINMITT að spá í þessu um daginn. Hversu þykkt er þetta í samhehenginu "tekur þetta mikið pláss í búrinu?"
Stephan
Posts: 311
Joined: 17 Oct 2006, 14:57
Location: Seljabraut 72 109 RVK

Post by Stephan »

Hér kemur tilraun til að senda mynd;

þetta bakgrun gerði ég úr frauðplast;
Image

takk fyrir hjalpina Vargur :D
Post Reply