Page 1 of 1

pvc rör

Posted: 28 Aug 2010, 14:39
by kristjan
Hvar eru menn að versla pvc rör ril að nota í pípulagnir í fiskabúrunum. Er eins og stendur slöngu frá return dælunni í sumpnum uppí búr en það er mjög óhenntugt og langar að setja rör í staðin.
Fann þetta á netinu en finndist þægilegra að kaupa þetta bara hér heimahttp://www.aquaristic.net/shop.php/sid/ ... schreibung

Posted: 28 Aug 2010, 15:15
by ulli
Vatnsvirkjanum og Poulsen skeifuni.

Posted: 28 Aug 2010, 15:47
by keli
loft og raftæki og ge sigurðsson hafa verið með betra úrval finnst mér. vatnsvirkinn er orðin frekar léleg búlla fyrir pvc. Poulsen er skítsæmó.

Posted: 28 Aug 2010, 20:53
by ellixx
sæll þar sem ég er sölumaður poulsen ehf þá langar mér að blanda mér í þetta svar .

poulsen er ekki lengur með pvc rörin en við erum með pvc barka og flestan fitings í pvc bara ekki rörin :P

Posted: 28 Aug 2010, 21:14
by ulli
nú var þarna fyrir viku eða tveim og keypti pvc lím fittings og 63 mm rör...

Posted: 28 Aug 2010, 21:17
by ellixx
getur verið gamall lager af 63mm allavega er flestt allt á núlli í rörum í tölvuni og það hefur ekki komið rörasending í einhver 2 ár .
en við erum að fá reglulegar sendingar af fitings og fylgiefnum.

Posted: 29 Aug 2010, 11:51
by kristjan
þarf ekki að kaupa eitthvað serstakt lím, eitthvað eiturefnalaust? Hvernig eru rörin límd saman?

Posted: 29 Aug 2010, 13:14
by keli
Límd saman með pvc lími :)

Posted: 30 Aug 2010, 11:07
by DNA
Kosturinn við rörin er að pípulögnin lítur fagmannlegri út og myndi ég frekar nota þau og er öruggari með vandaðan frágang en með barkana. Beyjur og ventlar eru líka í sama lit.

Barkarnir hafa sveigjanleikan sem getur verið þægilegt en það getur líka skapað spennu. Poulsen er væntanlega með pottana í huga en þeir eru yfirleitt utandyra og enginn stórskaði þótt þeir leki.

Annars er þetta PVC dót mjög þægilegt í notkun og ef vandað er til verka gjörsamlega öruggt.

Posted: 30 Aug 2010, 11:20
by ellixx
pottar eru yfirleitt ekki að leka nema þegar að fólk huggsar ekki um þá og þeir frostspringa.
barkar eru notaðir í pottana vegna þess að það er hægt að vefja þá utan um skelina á milli nuddstúta, væri svoldið erfitt að gera þetta með rörum ,veggþikt er mikil í börkunum og þeir eru mjög öruggir.

en með fiskabúr er ég samála fyrri ræðumanni að nota rör ,fallegra,snirtilegra og minni svegja þar sem á henni er ekki þörf.

kveðja
Erling

Posted: 01 Sep 2010, 18:08
by unnisiggi
G E jónsson klettagörðum eru með fínt verð á pvc