Skjaldbökuland

Búrasmíði, bakgrunnar, lok osf

Moderators: Vargur, keli, Squinchy

Post Reply
User avatar
Hrafnsvængir
Posts: 13
Joined: 08 Oct 2009, 19:17
Location: Reykjavík

Skjaldbökuland

Post by Hrafnsvængir »

Halló gott fólk!
Ég er að fara að gera nýtt land handa skjaldbökunum mínum, seinast var ég með úr viði, ætla núna að gera soldið öðruvísi er bara ekki 100% viss hvernig, ætla að stefna á að hafa það úr plexigleri, semsagt ætla að láta saga fyrir mig glerplötur, en svo fór ég að spá í hvernig ég ætla að festa þær saman, landið verður uppi á búrinu.
Er ekki hægt að kítta hliðarnar saman með svona fiskakítti úr fiskó? Helst það?
Einhverjar hugmyndir hvernig ég ætti að hafa rampinn og festa hann á? maður fer náttla ekki að negla í þetta :p
og já væri frábært ef þið gætuð nefnt einhverja staði sem geta sagað fyrir mig svona plexiglerplötur og eru með sanngjarnt verð. er á höfuðborgarsvæðinu.

Væri frábært að fá einhverjar hugmyndir :)
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

plexi og silikon virkar mjög illa saman. Einnig verpist plexiið í raka og hentar frekar illa í þetta.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Hrafnsvængir
Posts: 13
Joined: 08 Oct 2009, 19:17
Location: Reykjavík

Post by Hrafnsvængir »

já ok takk fyrir að svara :D ég var búin að sjá/heyra svo oft að plexi væri málið í þetta :s einhverjar hugmyndir hvað væri gott að nota í þetta?
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Margir hafa notað bara gler..
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Hrafnsvængir
Posts: 13
Joined: 08 Oct 2009, 19:17
Location: Reykjavík

Post by Hrafnsvængir »

hmmjá :) það ætti að virka, pússa það bara vel á hliðunum, veit samt ekki hverni ég ætti að festa hliðarnar saman? fyrst að kýttið virkar ekki?
Emilsson
Posts: 66
Joined: 28 Jun 2010, 21:26
Location: Keflavík

Post by Emilsson »

Fiskabúrskítti ætti að virka man ekki hvað það heitir en það er örugglega einhver hér sem lumar á því hvað það heitir=)
84l. Rena
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

PVC plötu efni væri góður kostur, Vargur var með svona efni hjá sér seinast þegar ég kíkti til hanns, kannski að hann geti beint þér á söluaðila þess efnis
Kv. Jökull
Dyralif.is
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Hrafnsvængir wrote:hmmjá :) það ætti að virka, pússa það bara vel á hliðunum, veit samt ekki hverni ég ætti að festa hliðarnar saman? fyrst að kýttið virkar ekki?
Sílikon virkar vel á gler en illa á plexy, fiskabúrasílikon er sjaldnast besta efnið og oftast það dýrasta. Mæli með "solvent free" sílikoni úr næstu byggingavöruverslun.

Ef Pvc er málið þá er það seld í 4m2 plötum í Málmtækni en ég get kannski bjargað þér um bút eftir máli. Það efni er þó hvítt en ekki glært.
User avatar
Sóla
Posts: 43
Joined: 19 Apr 2008, 19:15
Location: Hfj.

Post by Sóla »

Ég er einmitt að fara að gera það sama.
Hvernig er að festa möl á svona pvc? Og hvernig er er það og sílikon að ganga saman?

-Ég var að pæla setja land og ramp úr gleri (eða þessu pvc?) með möl/sandi á og gera svo plexi "kant" í kring þar sem þetta verður ofan á búrinu eins og Hrafnsvængir er að tala um.

Eitthvað vit í því?


Fyrirgefðu að ég skuli stela þræðinum ;)
vikar m
Posts: 124
Joined: 10 May 2010, 22:02
Location: akureyri
Contact:

Post by vikar m »

myndiraf afrekinu seinna meir
ég er alveg kex óður í fiska
54l
seyðakassi úr rúmfó
og gullfiskur
http://kaninur-fiskar.blogcentral.is/

:hákarl: :sybbinn:
Post Reply