Gullfiskur með æxli/kúlu

Spurningar og svör um uppsetningu búra, sjúkdóma, hvaða fiskar passa saman osf.

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
Solla
Posts: 14
Joined: 17 Jan 2009, 19:25

Gullfiskur með æxli/kúlu

Post by Solla »

Ég er með tvo gullfiska í 60 ltr. búri. Eina rauðhettu og annann sem lítur helst út fyrir að vera blanda af rauðhettu og slæðusporði.

Blendingsfiskurinn er búinn að vera með stækkandi kúlu á hliðinni í ca. eitt og hálft ár. Ég pældi mikið í henni fyrst þegar ég tók eftir henni en virtist ekkert hafa háð honum. Undanfarinn sólarhring hefur hún stækkað MJÖG hratt og er með hvítum flyksum hangandi út úr. Frekar viðbjóðslegt og minnir helst á graftarkýli.
Ég sé ekkert athugavert við hinn fiskinn.

Hvað getur þetta verið og hvað ætti ég að gera?
Solla
Posts: 14
Joined: 17 Jan 2009, 19:25

Post by Solla »

Nú er hvítur viðbjóður farinn að vella út úr kúlunni. Þetta er eins og slæm bóla og hann syndir á hvolfi =(

Ég skipti um 60% vatn saltaði vatnið aðeins og hann virtist hressast. Hinir fiskarnir skíta óeðlilega mikið.

Ekkert annað sem ykkur dettur í hug?
Solla
Posts: 14
Joined: 17 Jan 2009, 19:25

Post by Solla »

Nú er ég búin að googla mikið og finn ekkert sem líkist þessu.
Enginn sem kannast við svona? Hann er orðinn mjög slappur.
Solla
Posts: 14
Joined: 17 Jan 2009, 19:25

Post by Solla »

Ég fann link á spjallborð á netinu:
http://www.fishnthings.co.uk/forum/view ... hp?p=16925

Þetta líkist mínu vandamáli. Gamall fiskur með "graftarkýli". Þeira tala um að hægt sé að fjarlægja svona. Hvernig geri ég það?
Post Reply