Enn annað gróðurbúr

Almennar umræður um plöntur, lýsingu og annað sem viðkemur gróðurbúrum

Moderators: Vargur, prien, Sven, Stephan

Post Reply
turtle
Posts: 21
Joined: 02 Aug 2007, 12:52

Enn annað gróðurbúr

Post by turtle »

Hérna eru myndir af búrinu mínu. Ég er afleitur ljósmyndari og mun reyna að ná betri myndum síðar. Þetta er "ongoing project" og ég er langt frá því að vera ánægður með þetta. Það eru rúmir tveir mánuðir síðan ég startaði búrinu upp á nýtt, en það hafði verið lengi í niðurníðslu og svo til gróðurlaust.

Er að læra á hvernig maður setur inn myndir. Held ég sé búinn að átta mig á þessu. Fleiri myndir væntanlega síðar.

Image

Image
Last edited by turtle on 27 Mar 2010, 19:01, edited 5 times in total.
User avatar
gudrungd
Posts: 1301
Joined: 03 Mar 2008, 11:19
Location: 108, Rvk

Post by gudrungd »

það er skástrik í lokinn á slóðinni sem er umfram, veit ekki hvort það dugar að taka það í burtu.
turtle
Posts: 21
Joined: 02 Aug 2007, 12:52

Post by turtle »

Breytir engu...
User avatar
pjakkur007
Posts: 311
Joined: 02 Feb 2010, 21:53
Location: Tálknafirði
Contact:

Post by pjakkur007 »

þegar ég reini að fara inn í url-ið þá kemur error 404 file not found svo þetta er væntanlega vitlaust skrifað eða á password protected síðu
20L humarbúr

54L guppy og tetru

120L lemon tetru, SAE og Ancirstur

54L Siklíðu bastarðar

450L Gullfiskabúr
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

uploadaðu myndunum bara inn á fishfiles.net það verður ekki einfaldara.
400L Ameríkusíkliður o.fl.
turtle
Posts: 21
Joined: 02 Aug 2007, 12:52

Post by turtle »

Prófa fishfiles við tækifæri. Mér finnst þegar image shack ekki vera að virka mjög vel.
Eiki
Posts: 257
Joined: 21 Nov 2008, 11:57
Location: Selfoss

Post by Eiki »

Hér eru fínar leiðbeiningar um þetta.
http://www.fiskaspjall.is/viewtopic.php?t=318
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Ég sé þessar myndir, fínasta búr :)
Kv. Jökull
Dyralif.is
User avatar
Arnarl
Posts: 1233
Joined: 15 Feb 2008, 22:26

Post by Arnarl »

Ég sé þær, ekekrt smá flot búr :D
Minn fiskur étur þinn fisk!
Eiki
Posts: 257
Joined: 21 Nov 2008, 11:57
Location: Selfoss

Post by Eiki »

Núna sést þetta, mjög flott.
User avatar
prien
Posts: 562
Joined: 02 Jul 2009, 22:00
Location: Innri Njarðvík

Post by prien »

Flott hjá þér.
Hvaða ljósabúnað ert þú með?
Hvaða lágvaxna gras er þetta fremst á myndinni?
turtle
Posts: 21
Joined: 02 Aug 2007, 12:52

Post by turtle »

Ég er með heimasmíðað búr og lok. Er með fjórar 36w T8 flúrperur í lokinu. Þrjár af perunum eru arcadia freshwater og ein arcadia orginal tropical (red spectrum).
Grasið á myndinni er sagittaria subulata. Er reyndar einnig með tvær tegundir af eleocharis (held það sé eleocharis acicularis og parvula) sem líkist grasi mun meira. Þessar plöntur hafa ekki vaxið eins hratt og sagittaria subulata.
turtle
Posts: 21
Joined: 02 Aug 2007, 12:52

Post by turtle »

Jæja setti myndir inn á fishfiles.net og vona að þetta virki betur. Tvær fyrstu myndirnar eru teknar fyrir mánuði. Hinar í vikunni.

Image

Image

Image

Image

Image

Image
User avatar
Bambusrækjan
Posts: 443
Joined: 06 Apr 2009, 23:52
Location: Reykjavík

Post by Bambusrækjan »

Flott búr. Hvað er það stórt ?
turtle
Posts: 21
Joined: 02 Aug 2007, 12:52

Post by turtle »

Samkvæmt nýjustu mælingum er það rétt um 700 lítrar (180x60x65). Stóð alltaf í þeirri meiningu að þær væri 800 lítrar og er það er hér með leiðrétt.
User avatar
Bambusrækjan
Posts: 443
Joined: 06 Apr 2009, 23:52
Location: Reykjavík

Post by Bambusrækjan »

Ég sé að þú ert með Bosemani , hvað ertu með marga og ertu með fleirri rengbogategundir ?
User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Post by Sven »

Flott búr :góður: Skemmtileg communtiy blanda

Ef ég ætti að mæla með eithverju til að gera það enn glæsilegra, þá væri það að bæta við annað hvort slatta af flottu grjóti eða slatta af rótum.

Endilega leyfðu okkur að fylgjast með þróuninni á þessu búri hjá þér.
turtle
Posts: 21
Joined: 02 Aug 2007, 12:52

Post by turtle »

Bambusrækjan - Ég er bara með þrjá bosemani. Ég hef skoðað fleiri tegundir en ekki enn komið því í verk að bæta við tegundum. Ég er nokkuð hrifinn af bosemani. Mjög harðgerðir, fallegir og láta plönturnar vera.

Sven - Ég er sammála þér með að vanti rætur og grjót í búrið. Mér langar til að bæta við rótum með mosavöxnum greinum sem standa upp í vatnið. Er t.d. mjög veikur fyrir eftirfarandi búri:
http://showcase.aquatic-gardeners.org/2 ... ol=3&id=84
Hef bara ekki fundið neitt af viti til að nota í það í verslunum hér í bænum. Ég hef notað birkirætur sem ég hef fundið sjálfur og er helst að spá í að gera það aftur. Hún grotnar reyndar hratt niður. Hafa einhverjir skoðun á því? Varðandi steina, þá er ég með steina í búrinu sem ég fann á ákveðnum stað í Borgarfirði. Þetta eru ljósir steinar og hafa komið vel út. veiti ekki hvaða steintegund en stefni á að ná í fleiri við fysta tækifæri.
turtle
Posts: 21
Joined: 02 Aug 2007, 12:52

Post by turtle »

Ég tók eftir um daginn að ein demantstetran í búrinu rak alla aðra fiska frá einni plöntuni í búrinu (Micranthemum umbrosum). Plantan lítur út eins og arfa runni. Ég vissi ekki til að tetrur pössuðu hrognin sín en datt samt í hug að fiskarnir hefðu hrygnt í runnann. Ég prófaði að soga með slöngu sem ég fór með í runnan og ofan í fötu. Viti menn... örfá hrogn komu í ljós. Ég var með þetta síðan í krukku sem ég lokaði af frá ljósi. Setti líka fungus meðal. Það kom hins ekkert úr hrognunum. Ég prófaði aftur að soga í runnann fyrir þremur dögum og þá fékk ég 4 seiði sem ég er með í krukku nú. Eru ekki byrjuð að synda. Prófaði aftur að soga í runnann áðan og það komu örfá hrogn. Ég hef ekki séð demantstetrurnar hrygna með vissu en sá glowligt tetrur hrygna. Veit þ.a.l. ekki 100% hvaða seiði/hrogn þetta eru. Setti af stað infusoriu í fyrradag. Hef held ég bara einu sinni reynt að ala svona lítil seiði (dverggúramí) og það gekk aldrei vel. Einhver sem getur gefið mér góð ráð?

Svo fer að líða að því að maður þurfi að grisja plöntur. Hefði áhuga á að skiptast á við einhverja eða jafnvel selja ódýrt.
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Margir fiskar eru vanmetnir foreldrar og fiskar sem menn telja almennt að hugsi ekkert um hrognin eiga til að reka aðra fiska frá eftir hrygningu.

Ef þú nærð seiðum/hrognum frá og getur sett í sæmilegt búr þá er gott að gefa Infusoriu fyrst og setja í búrið og eitthvað úr aðalbúrinu, td, stein, gróður eða rót, á þessu dóti er oftast fullt af þörung og smákvikindum sem seiðin éta.
Örlítið af harðsoðinni eggrauðu má líka notast við, spirulina duft er líka frábært seiðafóður.
Einnig má mylja venjulegan fiskamat mjög smátt og leysa upp í vatni og setja svo nokkra dropa í búrið.
User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Post by Sven »

Ég mundi ekki nota birkigreinar. Þegar þær eru að grotna niður búa þær til talsverða mengun í vatnið, ekki gott að nota rætur sem eru ekki búnar að vera dauðar lengi.
turtle
Posts: 21
Joined: 02 Aug 2007, 12:52

Post by turtle »

Það eru ennþá þrjú seiði sem ekki eru farin að synda enn. Var að hugsa um að setja þau í lítið plastbúr sem ég er með undir nokkrar rækjur og reyna að fóðra þau þar. Það er fullt af þörungi í búrinu þar sem ég er með ljós á því allan sólarhringinn.

Varðandi birkigreinar, er það líklega rétt að sleppa því. Vera heldur þolinmóður og bíða eftir að draumarótin birtist í einhverri dýrabúðinni :wink:
turtle
Posts: 21
Joined: 02 Aug 2007, 12:52

Post by turtle »

Er með þrjú tetruseiði sem eru orðin nokkuð stór og farin að éta micro-orma. Er reyndar ekki alveg viss hvaða tegund þau eru. Gæti verið glowligt, svartneon eða demantstetra. Verður spennandi að sjá. Er með nokkur sem eru á kviðpokaskeiði enn. Hef ekki almennilega komist upp á lag með að fóðra þau fyrstu vikuna.
Post Reply