er ny i þessu fiskastussi

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
ugluungi
Posts: 4
Joined: 12 Apr 2010, 21:31

er ny i þessu fiskastussi

Post by ugluungi »


ég er ný í þessu fiskahobbýi, ég átti reyndar einu sinni gullfiska í kúlu fyrir svona 6-8 árum. Langaði reyndar ekki í gullfiska núna, þannig að e´g byrjaði á því að fá mer einn bardagafisk í kúluna. En ég hef smá áhyggjur af honum, hann bara dinglar sér þarna og svo þegar ég gef honum að borða fær hann sér og svo bara gubbar hann því útúr sér strax aftur, þannig að hann er eiginlega ekkert að borða. Hvað ætti ég að gera, get fengið lánað 7,5 lítra búr eða 60 lítra búr lánað hjá kunningja mínum. Ætti ég að fá minna búrið til að byrja með og einhverja aðra fiska með honum?
ugluungi
Posts: 4
Joined: 12 Apr 2010, 21:31

Post by ugluungi »

fullt af fólki búið að skoða, en enginn getur sagt mér neitt
olith
Posts: 74
Joined: 07 Jan 2010, 10:17
Location: 110

Post by olith »

margir fiskar taka matinn uppí sig og spýta honum aftur út til að mýkja hann skilst mér, las það fyrir nokkru að bardagafiskurinn gerir það líka.

svo hann ætti að geta haft það alveg ágætt í þessari kúlu, fer reyndar alveg eftir því hvað hún er stór
hrafnaron
Posts: 402
Joined: 23 Feb 2009, 18:56
Location: Reykjavík

Post by hrafnaron »

ég myndi hyklaust taka 60l búrið first þú færð það í láni, auðveldara að hafa jafnvægi á því
Rena Biocube 50: tómt eins og er
ugluungi
Posts: 4
Joined: 12 Apr 2010, 21:31

Post by ugluungi »

en hvaða fiska gæti eg sett með bardagfiskinum? svoldið stórt að hafa 1 fisk í 60 lítra búri
User avatar
Bambusrækjan
Posts: 443
Joined: 06 Apr 2009, 23:52
Location: Reykjavík

Post by Bambusrækjan »

Það ganga ekki margir fiskar með bardagafiskum. Einna helst að litlar tetrur gangi með honum. Og kannski minni barbar white cloud sem dæmi svo mæli ég með að hafa 1 til 2 ancistrur í 60 L búri. ammano rækjur ganga líka svo sem með honum.
Karen
Posts: 880
Joined: 15 Aug 2007, 21:48

Post by Karen »

Ég mæli ekki með neon/cardinal tetrum með bardagafisk, þegar ég var með þessa blöndu nörtuðu tetrurnar mikið í sporðinn á bardagafisknum og "eyðilögðu" sporðinn, hugsa að þú gætir fengið þér rólegar tetrur, en ég veit svosem voða lítið um þetta, endilega leiðréttið mig ef ég fer rangt með þetta. :-)
hrafnaron
Posts: 402
Joined: 23 Feb 2009, 18:56
Location: Reykjavík

Post by hrafnaron »

ég er með neon, glowlight og cardinal tetrur með bardagafiski og það er ekkert vesen með það
Rena Biocube 50: tómt eins og er
User avatar
Snædal
Posts: 202
Joined: 27 Apr 2009, 21:37
Location: Rvk

Post by Snædal »

Bambusrækjan wrote:Það ganga ekki margir fiskar með bardagafiskum. Einna helst að litlar tetrur gangi með honum. Og kannski minni barbar white cloud sem dæmi svo mæli ég með að hafa 1 til 2 ancistrur í 60 L búri. ammano rækjur ganga líka svo sem með honum.
Svakalega misjafnt eftir skapgerð hver og eins fisks. Er með minn ásamt kossagúrömu, börbum, molly og dvergsiklíðu og hann lætur alla vera. Eina sem gengur ekki með honum eru augljóslega kvenkynið.

Myndi ekki henda gúbbí eða gullfiskum eða öðrum bardagafiskum. Aðrir fiskar sem passa í búrið væru safe. Mæli með gullbörbunum. Gaman af þeim í hóp. Svo kannski tveimur ancistrum líka.
Post Reply