Skjaldbökur

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
Sinni
Posts: 25
Joined: 21 Dec 2008, 23:45

Skjaldbökur

Post by Sinni »

Hæhæ

Eg hef átt eina skjalböku lengi núna og ákvað að fá fyrir hana félagskap. Nýja bakan er karl og hann er svo rosalega aggressívur. Hún bítur ekkert og gerir ekkert en hann bítur svo rosalega í hana.

Ég veit að það er "mating season" en mér skilst að það sé konan sem bítur þá karlinn... er karlinn kannski bara aggressívur og getur ekki verið með öðrum bökum? (og nei, búrið er ekki of lítið).

Ef einhver sem er fróður um þetta má endilega svara hér eða senda mér póst!
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Hef lent sjálfur með böku sem gat ekki verið með öðrum, var búin að vera ein alla æfi (7 ár minnir mig) og lét mínar yngri ekki í friði þannig að sú samvist gékk ekki upp

Er þetta sama tegund og hvaða tegund eru þær ?
Hvað er búrið stórt ?
Kv. Jökull
Dyralif.is
Sinni
Posts: 25
Joined: 21 Dec 2008, 23:45

Post by Sinni »

Þetta er sama tegund, red ear slider.

Kvendýrið hef ég átt í rúm 10 ár en hún virðist allveg vera sátt við hann, eða er forvitinn að sjá hann þegar hann er ekki að ráðast á hana.

En karlin fékk ég í gær. Hann kom reyndar úr ömurlegum aðstæðum og ég tók hann til að gefa honum betra heimili.

Veistu hvort það er e-ð sem ég get gert? Er sniðugt að leyfa þeim að vera saman í einhvern tíma og ath hvort þetta sé bara tímabil? Eða gæti kvk slasast bara á því? Mér þykir svo skrítið að hún bítur hann ekki á móti þar sem hún er stærri en hann.

En búrið er 300 lítra, en ekki allveg fyllt upp því ég er með land í búrinu.
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Okei, þú getur prófað að gefa þessu smá tíma, ef hann hættir ekki að ráðast á hana eftir nokkra daga þá virðist þetta ekki ganga upp

Gætir prófað að reyna aðlagaþau að hvoru öðru með því að aðskilja þau og leifa þeim að vera saman í smá tíma í senn

En ég mæli með að útbúa land ofan/hliðina á búrinu, þá færðu meira vatnsmagn sem hjálpar við að halda búrinu hreinu og þá fá bökurnar gott sundpláss sem hjálpar gegn offitnun

Hérna er land sem ég bjó til á 170L búr fyrir mínar þegar þær voru litlar
Image
Notaði það einnig á 600 lítra búrið mitt
Image

Þetta eru svo miklir sund kappar og haga sér allt öðruvísi í djúpu vatni heldur en grunnu, mjög gaman að sjá þær í dýpra vatni
Kv. Jökull
Dyralif.is
Sinni
Posts: 25
Joined: 21 Dec 2008, 23:45

Post by Sinni »

Takk, ég er búin að vera að setja þau saman núna og taka í sundur aftur í dag reglulega, eða þegar hann verður mjög aggressívur.

En ég verð að segja að þetta er frábært búr! Rosa flott. En má ég spyrja hvernig þú gerðir stigann upp á landið?

Og takk æðislega fyrir að svara, met það mikils.
spawn
Posts: 131
Joined: 27 Sep 2008, 18:00
Location: Vesturland undir Grábrók

Post by spawn »

ég er nú ekki mikið fyrir skjaldbökur en verð að segja að þetta er virrkilega töff
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Takk :), svona var það uppá sitt besta
Image
Rampinn bjó ég til úr málningar bakka, límdi svo möl á hann með sílíkoni
Kv. Jökull
Dyralif.is
Post Reply