það er voðalega lítill húmor fyrir svona kúlum hérna. eiginlega litið á þær sem pyntingartæki einu fiskarnir sem lifa þokkalegu lífi í þeim eru bardagafiskar. ég myndi prófa einhverjar síður sem eru með yngri lesendahóp.
Finnst bara asnalegt að vera að segja honum að fara annað með þessa auglýsingu. Þú ferð ekki á bílasíðu og commentar á ljóta bílinn "Þú ættir kanski að reyna að selja þessa druslu á...." u get my point
ibbman wrote:Huhhhh ?
Ertu eitthvað nuts GuðrúnG ? ?
alveg örugglega en hvernig tengist það þessu?
haha. En þetta er frekar rétt hjá henni, gullfiskar eiga ekki heima í kúlu...
Þetta er samt oftast kallað gullfiskakúlur er það ekki ?
Ferð nu ekki að kalla þetta bardagafiskakúla eða tetrukúla ?
En ég nenni nu ekki að gera úlfalda úr mýflugu
Þetta er í lagi fyrir lítinn slæðu gullfisk. Ef við ætlum að fara tala um hvort gullfiskar eiga heima í kúlum þá getum við líka velt því fyrir okkur hvort fiskar ættu heima í glerkössum
ibbman wrote:Finnst bara asnalegt að vera að segja honum að fara annað með þessa auglýsingu. Þú ferð ekki á bílasíðu og commentar á ljóta bílinn "Þú ættir kanski að reyna að selja þessa druslu á...." u get my point
Þú ferð ekki á bílasölusíðu og auglýsir kassabíl?..... u get my point?
var hreinlega að benda viðkomandi á að það myndi ganga illa að selja þetta hér þar sem flestir eru vaxnir upp úr kúlunum eða búnir að fá ráðleggingar um að þetta séu ekki góðar aðstæður til að hafa fiska.
Eigum við ekki bara að leyfa honum að auglýsa þessa gullfiskakúlu í friði. Hún er til sölu hvort sem fólki líkar betur eða verr. Þótt ég sé sammála þér Guðrún þá getum við ekkert gert í þessu.
Mér finst þetta bara mjög flottur blómapottur
sþá meina ég hvað fólk gerir við hlutina sem það á kemur okkur hinum ekki við eða hvað þeir kalla þá en svona krukkur eru seldar sem gullfiskakúlur og þá er bara ágætt að halda áfram að kalla þær það
gott að litla sæta kúlan vekur athygli
einhverstaðar byrjar fólk þó ég sé sjálfur ekki í mikið fyrir svona kúlur þá er þetta kúla sem dóttir mín á og vill selja og ef það er að trula suma þá verða þeir bara að eiga það við sjálfan sig