Lýsing

Almennar umræður um plöntur, lýsingu og annað sem viðkemur gróðurbúrum

Moderators: Vargur, prien, Sven, Stephan

Post Reply
User avatar
Moskau
Posts: 19
Joined: 26 Apr 2009, 13:00
Location: Reykjavík

Lýsing

Post by Moskau »

Nú er ég að baslast með tæplega 100L Rena búr sem ég keypti fyrir nokkru síðan, í því er 16W Cool Daylight pera frá Osram og mér finnst lýsingin vægast sagt ekki góð. Plöntur þrífast mjög illa í þessu búri hjá mér.

Það er eitt perustæði í þessu og engir speglar og ég hef mikið verið að spá í hvort það sé hægt að kaupa ný lok á svona búr? Gæti ég fiffað eitthvað sjálf svo að lýsingin batni? Gæti t.d. ný pera kannski bjargað einhverju?

Hvað er svo hægt að fá CO2 kerfi á mikinn pening hér á landi?
User avatar
Guðjón B
Posts: 1510
Joined: 13 Mar 2009, 13:59
Location: Kópavogur
Contact:

Post by Guðjón B »

Þú getru bruggað CO" fyrir nánast 0 kr. :) en er það ekki um 12000 kall svona ekta kerfi?
Kv. Guðjón Bergmann
180L
54 L
User avatar
gudrungd
Posts: 1301
Joined: 03 Mar 2008, 11:19
Location: 108, Rvk

Post by gudrungd »

þetta er náttúrulega ekki gróðurpera sem þú ert með, það getur verið byrjunarvandamálið. þú getur látið smíða fyrir þig spegla í Flúrlampar í kaplahrauni. þeir setja upp perusystem ef þú smíðar lok og eru mjög sanngjarnir í verði. alvöru co2 er fokdýrt, sérstaklega kúturinn, þrýstijafnarinn og það dót. ég hef verið með heimabrugg sem er skítódýrt en þar er ekki gott jafnvægi á co2 og maður þarf að skipta á kútnum mjög reglulega og fylgjast vel með. ef þú ert svo kominn í co2 þá þarftu að gefa góða næringu samhliða.
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

Það ætti helst að skipta um perur á 6-12 mánaða fresti.

Gróðurperur gefa frá sér frekar leiðinlega birtu, allavega eins og sér, en gróðurpera+daylite er fínasta blanda.
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
User avatar
Arnarl
Posts: 1233
Joined: 15 Feb 2008, 22:26

Post by Arnarl »

Ættir að geta farið með lokið í flúrlampa og spurja þá hvort þeir gætu sett T5 í fyrir þig jafnvel tvö T5 perustæði.
Svo geturu keypt Co2 kerfi sem lýtur svona út:
Image
Minn fiskur étur þinn fisk!
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

Vargur er líka að selja svona Co2 Depot kolsýru kerfi :P 8)
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Post by Sven »

Þessi pera gerir nánast ekki neitt fyrir gróður, sama þó að þetta væri gróðurpera (þó aðeins betra). Það er nánast ekki til neins fyrir þig heldur að fá þér co2, því að plantan getur ekki notað kolsýruna án þess að vera með nóg ljós. Ef þú ætlar að ná betri árangri með plönturnar í þessu búri þá þarftu að byrja á því að auka lýsinguna.
Það er mjög algengt að fólk haldi að það sé hægt að bæra fyrir of lítið ljós með því að nota annað hvort kolsýru eða næringu, það er alger misskilningur, næring og kolsýra gera nánast ekki neitt gagn nema að það sé nóg af ljósi.
User avatar
Moskau
Posts: 19
Joined: 26 Apr 2009, 13:00
Location: Reykjavík

Post by Moskau »

Takk fyrir svörin so far! :)

Markmiðið er að bæta lýsingu og þá jafnvel starta Co2 systemi ef vel gengur. Ég er hins vegar í fjötrum hvað það varðar út af því hversu léleg birtan er í búrinu.

En það er spurning hvort ég geti þá breytt lokinu og bætt við perum, ég hef hins vegar aldrei þolað lokið mér finnst það vera frekar cheap plastdrasl ;) Hef mikið spáð í að reyna að búa til nýtt.

Ég hef verið með heimabrugg í öðru búri og ég hreinlega nenni ekki að standa í því eftir það, þess vegna var ég að spá í þægilegu leiðinni ;)

Ég ætla að tékka á flúrolömpum, vissi ekki af þeim.
Post Reply