Ætli ég hafi hana ekki um 1.50 á dýpt sem gerir hana 17280 lítra.
En þessi tjörn yrði, hva segir maður.....Monster tjörn?
Þetta er gömul hlaða sem hefur aldrei verið notuð, það er ekkert þak á henni en það er til bárujárn til að setja yfir tjörnina eða þann part. myndi svo hafa Tetrapond 7000L/H dælu sem ég á sem myndi láta dæla í DIY filter sem yrði inní hesthúsinu(sem er heldur ekki í notkun og verður ekki næstu árin) svo myndi ég hafa 5-7 Kastara á tjörnini til að lýsa hana upp.
Veit samt ekki hvernig ég myndi hafa filterinn. Allar hugmyndir varðandi tjörnina og filterinn eru vel þegnar
En fiskarnir sem um ræðir eru 2 Aligator Gar svo fara örugglega einhverjir aðrir líka í hana.
Mér líst vel á þetta en er ekki óþarfi að grafa eitthvað, kannski skafa 30 cm ofan af og má ekki bara skella voldugri grind upp að framan og skella dúk í.
Vargur wrote:Mér líst vel á þetta en er ekki óþarfi að grafa eitthvað, kannski skafa 30 cm ofan af og má ekki bara skella voldugri grind upp að framan og skella dúk í.
Það mætti kannski gera það, en ég efast stórlega að þessir veggir haldi því uppi eld gömul hlaða svo er steypt gólfið í henni bara smá gras vöxtur kominn hehe
Andri Pogo wrote:ekki spurning!
er ekki um að gera að redda efni og bjóða svo í hitting til að skella þessu saman
Jú það væri gaman Fá Monster áhugamennina til að hjálpa
Neee, það eru nánast engar hita sveiflur í hinni tjörninni og hún er allveg úti, þessi verður öll inni eða svona semí. Hin hefur ekkert farið undir 20° gráður í vetur ekki einu sinni þegar það var -16 stiga frost.
Getur þú mokað út úr húsinu án þess að það hafi áhrif á sökkulinn sem missir stuðning innan frá við moksturinn ?
er nokkur hætta á að að eitthvað geti farið af stað ?
gæti verið vont að fá húsið í hausinn
ég þekki þetta ekki en set þessa spurningar fram engu að síður
kannski er þetta ekkert mál en betra er að vera viss heldur en að vera með hús á hausnum
Já gott að pæla í þessu fyrst Það er samt aldrei að vita, hún er föst við hesthúsið og þetta sem þarf að moka í burtu er minna en helmingurinn af gólfinu í hlöðuni. Fæ einhvern til að taka þetta út fyrir mig. Ef allt gengur eftir áætlun byrja ég að moka grasinu í burtu um næstu helgi og sanka að mér efni, þar sem þetta á eftir að taka laangann tíma
Arnarl wrote:Þeir koma með næstu sendingu, vonast til að hún komi í næstu viku tveir gator gar og svo einn gar í viðbót ætla hafa fjóra
Hvernig er sá fjórði? Tropical gar er eini garinn sem mér finnst varið í, út af litnum. Rosa skrímslalegir gator samt. Hvenær kemur sendinin. Ég verð að sjá þá áður en þú tekur þá.
Pæling að gera bara eins og vargur var að seigja, og hlusta líka á Gumma og setja bara upp grind að framan. Það er einhver svaka afsláttur hjá Byko núna, það er grindarefni á tilboði hvaða stærð ætti ég að velja?
34x45mm
45x45mm
45x95mm
Svo er líka tilboð á spónaplötum, hver plata er 600x2520, er að pæla að hafa tjörnina þá bara 120 á dýpt s.s 2 spónaplötur á hæð.
Hvernig væri svo best að gera grindina? væri flott að fá hugmyndir