Ferskvatnsskatan mín

Fyrir þá sem þora. Ránfiskar, botn- og kattfiskar í stórum númerum

Moderators: Vargur, Andri Pogo, keli

User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Jæja, þá drapst hún loksins. Önnur motoro kerlingin var búin að vera með leiðindi síðan ég fékk hana, aldrei bætt á sig og bara staðið í stað. Át venjulega 1-2 rækjur og lét það duga en hefur ekki einusinni gert það uppá síðkastið. Þetta er skatan sem var að frussa á myndbandinu hér fyrir ofan. Var búinn að eiga hana í amk 6 mánuði, og búinn að segja í ca 5 af þeim mánuðum að hún myndi ekki meika það hjá mér. Kom ekkert á óvart, nema þá bara hvað hún entist rosalega lengi.

20cm diskur.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Ólafur
Posts: 1154
Joined: 17 Sep 2006, 13:46
Location: Reykjanesbær

Post by Ólafur »

Þetta er leitt að lesa keli :cry:
Kveðja
Ólafur
olafurm@istak.is
hakri
Posts: 57
Joined: 23 Oct 2009, 13:31

Post by hakri »

þetta er ógeðslega flott hjá þér
botnfiskurinn
Posts: 218
Joined: 23 Jan 2009, 09:18
Location: RVK

Post by botnfiskurinn »

Hvað er að fétta?

Væri gaman að fá að sjá nýjar myndir!
400L Juwel Polypterus+
160L Polypterus uppeldi
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Búrið er svo gruggugt þessa dagana að myndir eru svo gott sem vonlausar. Sköturnar eru þó hinar kátustu og stækka og dafna.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Er ástralska aró að éta almennilega hjá þér? hvað er að virka?
400L Ameríkusíkliður o.fl.
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Síkliðan wrote:Er ástralska aró að éta almennilega hjá þér? hvað er að virka?
Étur bara blóðorma. Nartar stundum í tetra discus.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Jæja karl motoro er orðin kynþroska og reynir ítrekað að taka í kerluna. Mig grunar þó að kerlingin sé ekki orðin kynþroska.

Núna þarf ég að fara að smíða mér stærra búr! Ég held ég gæti komið um 1000-1500 lítrum fyrir í aðstöðunni minni, hvað ætli sé ódýrasta leiðin til að gera sér svoleiðis búr?
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Spurning með krossviðinn ef hann fengist á góðu verði
Kv. Jökull
Dyralif.is
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Já ég þarf að skoða það... Ætli ég þurfi ekki 20-25mm krossvið í þetta?
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Dips á 1 motoro pup ef allt gengur upp. :wink:
Þú verður að fara að smella myndum inn fyrir okkur.
400L Ameríkusíkliður o.fl.
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Það virðist einhverskonar love making session hafa verið í gangi hjá þeim, því vatnið í búrinu varð skyndilega mjólkurlitað. Ég hefði ekki giskað á að kerlingin væri orðin kynþroska, en það er lítið að marka mig :)

Spennandi tímar framundan! :)
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Mikil sorg á heimilinu núna. Eftir töluverðar heimiliserjur seinustu daga gekk karlinn alveg frá kerlunni. Hún var dauð þegar ég kom heim.

Ég tók eftir því í gær að hún var óvenju nöguð eftir karlinn, en gerði ráð fyrir að það mundi bara gróa eins og oft áður. Þetta var eitthvað meira "rough" en venjulega því hún var dauð þegar ég kom heim úr vinnunni :(

Hún var 38cm löng. Mikill missir og ég er mega leiður yfir þessu :( Búinn að eiga hana í 2 ár, hún hafði stækkað heilan helling og farin að éta þurrmat og rosalega þægileg. Feit og pattaraleg, ekkert að henni nema ofbeldisfullur eiginmaður.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
ulli
Posts: 2777
Joined: 08 May 2007, 00:45
Location: Ísland

Post by ulli »

Verið að selja 1000lt kar sem myndi smell passa undir þetta hjá þér :P
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Leiðinlegt.
ulli
Posts: 2777
Joined: 08 May 2007, 00:45
Location: Ísland

Re: Ferskvatnsskatan mín

Post by ulli »

hvað kostuðu Motoro sköturnar og hversu stórar voru þær þegar þú keyptir þær?
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Re: Ferskvatnsskatan mín

Post by keli »

Ég man það ekki - þetta var á góðum díl því ég átti einhverja inneign og svona eitthvað.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
ulli
Posts: 2777
Joined: 08 May 2007, 00:45
Location: Ísland

Re: Ferskvatnsskatan mín

Post by ulli »

100 evrur herna svona sirka Vel lófa stórar.
Fidna við þetta að þetta var í svona verkfæra lager :P
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Re: Ferskvatnsskatan mín

Post by keli »

Mig minnir að mér hafi verið sagt að þær hefðu átt að vera á um 40-50þús þannig að 100 evrur er ekkert sega mega ódýrt ef maður tekur með sendingarkostnað og svona. Allt dýrt hérna :(
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Post Reply