Smábúr - Myndir ísl. niðurhal

Almennar umræður um plöntur, lýsingu og annað sem viðkemur gróðurbúrum

Moderators: Vargur, prien, Sven, Stephan

Post Reply
User avatar
~*Vigdís*~
Posts: 525
Joined: 20 Sep 2006, 19:03
Location: Úthverfi dauðans Aldur: 30ára
Contact:

Smábúr - Myndir ísl. niðurhal

Post by ~*Vigdís*~ »

Var að uppfæra smárbúrs þráðinn minn á Trítlu spjallinu
og ætlaði að skella mér í að uppfæra hér líka, en hef greinilega gleymt
að pósta hér í byrjun :oops: Svo þið fáið slatta af myndum.

Myndavélin svoddan garmur, zoom-ið dáið og fleira í þeim dúr
svo þvímiður verðið þið að sætta ykkur við óskýrar myndir.

Búrið er Smábúr frá Skrautfisk, mjög ánægð með það :)


Image
Vatnið komið inn, grunn mölin og byrjun á tækja pælingum.
Undir mölinni er initial sticks frá Tetra, tengt við er Hagen Nutrafin CO2 fyrir búr
upp að 180L, 15w aquarelle flúorpera, ZooMed 501 smátunnudæla,
Rena hitakapall, 50W minnir mig...


Image
Initial sticks var einkar óþægt við mig í byrjun, og rótin
sem ég ætlaði að festa java mosa á neitaði að vera þar sem hún átti
að vera... botninum...


Image
Gróðurinn kom 4-5 vikum á undan fiskunum,
vantar þá myndi...


Image
Nokkra daga munur :shock:
CO2 loksins farið að ,,bubbla" er óð á skærunum að grisja.
Þessi mynd er tekin 10.07.09


Image
Mynd tekin í dag 23.09.09. Þurfti að færa einhvað
af plöntunum til og hagræða fyrir nýjum.
Fiskar í þessu búri eru 4x Limia nigrofasciata hryggnur og 1x hængur
1x Betta splendens hængur og 3x Ancistrus ungviði

Hér er svo listi yfir gróðurinn sem ég hef sankað að mér:

Image
1# Egeria densa - Svoldið lasleg og sorgleg

2# Cabomba carolina

3# Microsorum pteropus - Pínu lítill afleggjari sem vonandi tekur við sér
Þetta er ekki klassíski java burkninn heldur
svona

4# Versicularia dubyana - Vonast til að hann vaxi meira til vinstri
og feli CO2 dótið :)

5# Lysimachia numnularia (auratus) - Er svoldið lasleg

6# Anubias barteri (nana) - Tók smá kast á þessum fremstu :oops:
klippti öll gömlu blöðin sem mér fannst ljót...

7# Eleocharis acicularis - Glæný svo hún lítur vel út enþá, bind miklar vonir við þessa

8# Veit ekki, afleggjari sem ég fann í Trítlu

9# Ekki heldur, var bara smá lauf sem ég plantaði, vonaðist
til að þetta væri góð forgrunnsplanta, leit þannig út afleggjarinn sem
ég fann, en eins og sjá má varð ég að færa hana aftar vegna mikils
vaxtar, mjög falleg svo ég held henni, blöðin eru fallega ljósrauð undir.

10# Cryptocoryne crispatulata - frekar hrukkótt sverðplanta

11# Hygrophila polysperma - alltof hraðvaxta fyrir betri skylirði en
ætla reyna að vera dugleg að snyrta hana niður, fær svo fallega græn/ljósrauð
blöð þegar henni líður vel að ég stóðst ekki freistinguna

12# Ekki alveg klár, annar afleggjari, líklega rautt afbrigði af Cabomba...


Hef ekki enþá orkað að flétta upp þessum þrem sem
ég hef ekki deili á en hugsa að ég fari í það mál núna
er svo spennt yfir #7 að ég orka allan heimin núna...
...fyrir utan að laga bláu bakgrunns myndina, festi hana svo
vel að vatnið á milli hennar og búrsins fær að vera þarna
eitthvað lengur .... Búrið er hvort sem er enþá í ,,uppbyggingu"
Last edited by ~*Vigdís*~ on 28 Oct 2009, 13:34, edited 1 time in total.
Image
User avatar
~*Vigdís*~
Posts: 525
Joined: 20 Sep 2006, 19:03
Location: Úthverfi dauðans Aldur: 30ára
Contact:

Post by ~*Vigdís*~ »



Búin að grugga smá á gúgul vini mínum og gróf þetta upp:

Java burkna afbrigðið kallast ,,Windeløv"
Hugsanlega er #12 Myriophyllum tegund, kannski M.tuberculatum
#9 finnst mér líklegt að sé Rotala tegund, þá líklega Rotala rotundifolia
miðað við rauða litinn sem kemur undir á nýjustublöðunum en er
auðvitað ekki viss, kemur vonandi betur í ljós með tíð og tíma.
#8 mun halda áfram að vera ráðgáta þar til hún stækkar meira.
Image
User avatar
Jaguarinn
Posts: 1141
Joined: 20 Oct 2007, 16:07

Post by Jaguarinn »

flott búr hjá þér :)
:)
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Gaman að sjá myndir frá þér. Fallegt búr og vel uppsett.
400L Ameríkusíkliður o.fl.
User avatar
mambo
Posts: 123
Joined: 28 Oct 2006, 05:29
Location: Ísafjörður

Post by mambo »

stórglæsilegt :)
Hrifinn af svona smáum gróðurbúrum
User avatar
~*Vigdís*~
Posts: 525
Joined: 20 Sep 2006, 19:03
Location: Úthverfi dauðans Aldur: 30ára
Contact:

Post by ~*Vigdís*~ »

Þakka jákvæð viðbrögð :)
Ætla svo að reyna að fá lánaða betri myndavél,
dauð langar að ná almennilegum myndum af þessu verkefni.
Image
User avatar
~*Vigdís*~
Posts: 525
Joined: 20 Sep 2006, 19:03
Location: Úthverfi dauðans Aldur: 30ára
Contact:

Post by ~*Vigdís*~ »

Tók smá plöntu myndir
Image
Image
Image
Þessi sem mig grunar að sé Rotala rotundifolia
Image
Lysimachia numnularia (auratus)
Sést á þessari mynd að Eleocharis acicularis er farin að dreifa
aðeins úr sér, komin strá hér og þar um botninn, kannski fæ
ég grasbreiðu yfir forgrunninn eftir allt saman :)

Er að slást við þörung, en ég hef ekki verið dugleg að fylla
á CO2 dúnkinn, kemur eitthvað smá af þessum dökk hárþörung,
legst aðalega á Anubiasinn minn og svo neon græn slikja,
myndavélin dó svo ég gat ekki sýnt ykkur myndir af þessu
en einhverjar hugmyndir væri vel þegnar um hvað betur mætti fara,
er ekki reynd í gróður búrum. Kem auðvitað með myndir af þessu
um leið og ég fæ myndavéla garminn í gang aftur.
Image
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

bara að passa upp á að fylla á dúnkinn þegar bubblurnar fara minnkandi og gefa gróðurnæringu af og til :)

hafa limiurnar eitthvað náð að fjölga sér eða hefur bettan náð öllum seiðunum sem koma?
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
User avatar
~*Vigdís*~
Posts: 525
Joined: 20 Sep 2006, 19:03
Location: Úthverfi dauðans Aldur: 30ára
Contact:

Post by ~*Vigdís*~ »

Það eru einhver 3-4 kríli á svamli sem eru orðin
það stór að þau verða ekki étin úr þessu, flott mál þar sem fjölgun
var ekki atriðið, finnst hængarnir af þessari tegund svo æðislegir
að það dugir mér :)

Ég var líka að taka eftir því að dælan er ekki alveg í toppformi,
eitthvað lítið rennsli í henni svo kannski það og CO2 leysið sé
að vinna saman gegn mér
:moping:
Image
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

já finnst einmitt limiu karlarnir svo voðalega skemmtilegir útlits :P

þarft bara að passa að dælan gári ekki yfirborðið of mikið ef þú ert með co2, því þá sleppur kolsýran úr vatninu.
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
User avatar
~*Vigdís*~
Posts: 525
Joined: 20 Sep 2006, 19:03
Location: Úthverfi dauðans Aldur: 30ára
Contact:

Post by ~*Vigdís*~ »

Var einmitt með úrtakið stillt niður,
þess vegna fattaði ég svona seint að hún væri ekki
að dæla almennilega, tek hana og þríf hana í kvöld
og sé svo til :)
Image
User avatar
~*Vigdís*~
Posts: 525
Joined: 20 Sep 2006, 19:03
Location: Úthverfi dauðans Aldur: 30ára
Contact:

Post by ~*Vigdís*~ »

Smá klúðurspóstur...
Image
User avatar
~*Vigdís*~
Posts: 525
Joined: 20 Sep 2006, 19:03
Location: Úthverfi dauðans Aldur: 30ára
Contact:

Post by ~*Vigdís*~ »

Image
Corimbosan komin með nokkuð stór lauf

Image
Komin ný lauf á litlu rauðu plöntuna,
tegunda ágískanir vel þegnar :)



Image
Eleocharisinn að dreifa úr sér

Image
Heildarmynd eins og þetta er í dag,
tók rótina með javamosanum, var að yfirtaka búrið,
er smá mosi að vaxa á rauða steininum, kannski verður
eitthvað fallegt úr því, kemur í ljós.


Svo eru það hryllingsmyndirnar :roll:


Image
Image
Image
Image

Ég ræð ekkert við þetta :roll:
meira að segja CO2 stiginn er þakinn að jukki,
bubblurnar minnkuðu á sunnudaginn og hættu
alveg í gær, samt ný fylling.

Eftir síðastapóst hef ég aukið vatnskiptin (1x í viku 1/2) þar sem
ég óttaðist að þörungurinn væri að taka svona vel við sér vegna
of mikillar rotnunar. Spurning um að fá sér rækjur til að sporna
við lífrænum úrgang en frekar?

Svo hef ég verið að pæla hvort dælan sé ekki nógu öflug
en hún er ætluð fyrir 60L skjaldbökubúr, það er nú þokkalegur
úrgangur úr svoleiðis skepnum, veit ekki. Ætlaði að minnka
yfirborðshreyfinguna en því meira sem ég les því meira er
talað um að hafa ,,surface agitation" er með hreyfinguna í hófi
en samt örlitlar gárur. Spurning um að ég sé ekki með nægt
súrefni? Limi-urnar fjölguðu sér örlítið og svo bara einn bardagafiskur,
gæti varla kallast að búrið sé með ofmarga íbúa.

Öll hjálp vel þegin, er komin að því að slútta þessu búri.
Image
User avatar
Ragnarvil
Posts: 122
Joined: 26 Dec 2008, 03:46
Location: Kópavogur / Keflavík
Contact:

Post by Ragnarvil »

Ég lenti í því að fá svartan svona skeggþörung í búrið hjá mér. Ég keypti mér 6 rækjur og þá hvarf hann á viku.
Fiskabúr:
AqualEl 170L - Smáfiskar
Nanó 25L - Ónotað
He who laughs last didn't get it.
Eiki
Posts: 257
Joined: 21 Nov 2008, 11:57
Location: Selfoss

Post by Eiki »

Hef lent í því að fá þennan eða sambærilegan teppaþörung, breiðir úr sér eins og teppi og ef þetta er sami þörungur og ég fékk er vond lykt af honum þegar maður tekur hann uppúr(var neon grænn á litinn). það var sagt við mig að þetta væri bakteríu tengdur þörungur. setti bakteríu lyf í búrið og það drap hann, en ég var reyndar með gróðurlaust búr. Reyndi sama og þú fyrst að skipta út vatni ört, en þá jókst hann bara. vona að þetta hjálpi þér eitthvað.
User avatar
~*Vigdís*~
Posts: 525
Joined: 20 Sep 2006, 19:03
Location: Úthverfi dauðans Aldur: 30ára
Contact:

Post by ~*Vigdís*~ »

Algjörlega, það hjálpar allt,
ég hef fengið svona áður nefnilega en það
eru einhver 15 ár síðan og ég hreinlega man
ekkert hvað ég gerði þá, hvort ég hafi ekki bara
soðið allt dæmið :lol:
Alla vegna yfirtók þetta allt búrið þá, var ekki
eftir flötur sem ekki var neon grænn svo nú
vil ég helst bregðast við áður en það stefnir í slíkt :shock:

Ætla að prufa að gúggla aðeins í tengslum við
bakteríur & þörung, takk takk, alveg spurning líka að kíkja rækjur,
hefur einhver prófað að hafa limiu með rækjum? Kallinn hjá
mér er frekar skapvondur, spurning hvort ég verði ekki að
sleppa liminunum fyrir rækjurnar...
Image
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

þetta líkist cyano backter þörungnum eða hárþörung..

en kíktu endilega á þessa síðu :) http://www.aquariumalgae.blogspot.com/
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
User avatar
~*Vigdís*~
Posts: 525
Joined: 20 Sep 2006, 19:03
Location: Úthverfi dauðans Aldur: 30ára
Contact:

Post by ~*Vigdís*~ »

:D
Fann hana í einhverju innleggi frá Sven held ég :)
Snilldar síða! - Finn samt ekki þetta á henni,
ætla að kíkja á cyano bakteríuna :mrgreen: takk
Image
Post Reply