sýking í búri

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
Fiasko
Posts: 90
Joined: 02 Jun 2008, 23:39

sýking í búri

Post by Fiasko »

Komið sæl.

Ég er með bú þar sem ég var með slatta af molly, 2 SAE, 2 anchistrur og 2 albinoa ryksugur.

Það byrjaði að drepast einn og einn fiskur, horast niður og drepast, en síðustu viku hafa drápin verið frekar ör. það er eftir í búrinu 1 SAE,2 Molly og albinoa riksugurnar. Er einhver séns að ég geti tekið SAE fiskin og ryksugurnar úr búrinu og sett í annað búr, þrifið svo þetta búr og sett á aftur í það eftir c.a. viku eða er sýkingin alltaf til staðar í fiskunum og lítill tilgangur í að vera að geyma þessa eitthvað sérstaklega?

Er búinn að prófa nokkrar umferðir að tvennskonar lyfjum en án árangurs.


kv.
Fiasko
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Hvernig er vatnsskiptum háttað hjá þér og hvað er búrið stórt ?
Lyf við hverju ertu búinn að gefa ?

Ég hef lent í svipuðu og eina ráðið virðist að hreinsa strax burt ræfilslega fiska.
Fiasko
Posts: 90
Joined: 02 Jun 2008, 23:39

Post by Fiasko »

Ég er annars vegar búinn að gefa lyf frá Tetra Medica og heitir Contra spor og hinsvegar lyf frá King British sem heitir Bacteria Control.

Ég skipti um vatn á tveggja vikna fresti og er með tetra test sem ég geri á búrinu annars lagið.
Gudmundur
Posts: 2115
Joined: 20 Sep 2006, 14:30
Location: Kópavogur
Contact:

Post by Gudmundur »

tilraunir með lyf gera oftast bara vont verra
flest lyf drepa bakteríuflóruna í búrinu og síðan eru ýmis efni í lyfjunum sem í of miklu magni geta verið verri en veikin sem fyrir var ef það voru þá bara ekki vatnsgæðin í upphafi sem voru léleg

ps. Hugsaðu þetta svona
ef þú verður veikur ætlar þú þá að prufa nokkrar umferðir af mismunandi lyfjum til að athuga hvort þér líði betur :shock:
ég mæli ekki með því :)
www.fiskabur.is
skemmtileg heimasíða
Fiasko
Posts: 90
Joined: 02 Jun 2008, 23:39

Post by Fiasko »

Gerði nú reyndar bara það sem mælt var með í verslunum, en með hverju mælir þú?
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

starfsfólk í versunum er oftast fljótt til að mæla með lyfjum án þess að hafa hugmynd um hvað er að angra fiskana.

Mér þykir líklegt að þetta sé svokölluð wasting disease sem er innvortis bakteríu sýking, til að að drepa hana þarf lyf sem gagnast við innvortis sýkingu og fiskurinn þarf að éta lyfið.
Þetta virðist blunda í fiskum og kemur oftast upp í þrengslum en með því að slátra miskunarlaust fiskum sem sýna einkenni hef ég náð að hefta þetta.
Fiasko
Posts: 90
Joined: 02 Jun 2008, 23:39

Post by Fiasko »

Eftir mikinn lestur á sínum tíma og umræður við ýmsa sérfræðinga, þá var talið líklegast að um Costía sýkingu væri að ræða, og trúlega hefur hún komið í SAE fisk sem við keyptum og drapst langfyrst.

Öll meðferð sem við höfum notað hefur einnig verið eftir ráðleggingum m.a. sérfræðinga héðan af spjallborðinu og að sjálfsögðu höfum við ekki verið að gefa þessi lyf samtímis eða beint í framhaldi af hvort öðru. Við tókum tvö kúra með Contraspot en eftir tveggja mánaða hlé og ekkert lagaðist prófuðum við hitt lyfið.

En það sem við erum aðallaega að spá er hvort SAE og albinóarnir okkar séu dauðadæmdir og sýkingin blundi í þeim. Eða hvort það geti verið ef við tökum þá frá og hreinsum búrið og setjum það aftur upp hvort þeir beri sýkinguna með sér og þar af leiðandi endar allt í sama farinu?

kv.Fíaskó
Gudmundur
Posts: 2115
Joined: 20 Sep 2006, 14:30
Location: Kópavogur
Contact:

Post by Gudmundur »

Ef þú ert með sjúkdóm í búrinu þá eru líkur að hann sé í fiskunum þannig að hreinsun á búrinu væri til lítils þótt auðvitað sé gott að sjúga upp úr sandi og gera vatnsskifti

þú sagðir að þú værir með tetra test hvað mælir það ?
www.fiskabur.is
skemmtileg heimasíða
Fiasko
Posts: 90
Joined: 02 Jun 2008, 23:39

Post by Fiasko »

Ef ég á að segja eins og er er ég ekki viss hvað þetta mælir, þetta er tetra test 5 in 1. Sá sem seldi mér þetta(í dýragarðinum) merki við hvað væri eðlilegt merki í hverjum þætti prófsins.
En það stendur á þessu NO3, No2, GH, KH og pH
Fiasko
Posts: 90
Joined: 02 Jun 2008, 23:39

Post by Fiasko »

En takk fyrir svarið með að þetta myndi að öllum líkindum fylgja fiskunum þó búrið yrði tekið í tættlum, það var víst upphaflega spurningin :D
Post Reply