Fiskafjöldi í 54L búr?

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
User avatar
Maris
Posts: 27
Joined: 15 Oct 2009, 00:29
Location: Kópavogur

Fiskafjöldi í 54L búr?

Post by Maris »

Er með 54l búr nýuppsett.
Íbúar eru:

3 Black Molly (2kvk&1kk)
3 Gúbbý kallar
2 Dannar ( leopard&zebra)
1 Platy
1 Brúsknefur
2 Eplasniglar

Er þetta fullskipað búr eða gæti ég ekki bætt við einhverjum fjölda neon tertra til viðbótar til dæmis? Og einum platy líka?

Hef ekki hugmynd um hvað má vera mikið af smáfiskum í svona stærð af búri- Allar ráðleggingar vel þegnar :)
User avatar
Bambusrækjan
Posts: 443
Joined: 06 Apr 2009, 23:52
Location: Reykjavík

Post by Bambusrækjan »

Samkv. krökkunum í Practical Fishkeeping magazine er mælt með 28 cm af fiski í 54L búr. T.d 10 fiskar sem eru 2.8 cm eða 5 fiskar sem eru 5.6 cm o.s.f.v. :P. Ég hef hinsvegar fleirri í mínum 54L búrum ( á 3). Það kallar hinsvegar á talsvert ör vatnskipti og svo er ég búinn að modda aðeins dælukerfið til að fá meira yfirborð á lífræna síun á vatninu.
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Ég mæli ekki með því að nota cm/2L reglu í fiskabúr. En annars finnst mér búrið vera með passlega mikið af fiskum.
400L Ameríkusíkliður o.fl.
User avatar
M.Logi
Posts: 162
Joined: 31 Mar 2009, 19:53
Location: Espoo, Finnland

Post by M.Logi »

hvað er Dannar ( leopard&zebra) á Ensku eða Latínu?
Hrafnhildur
Posts: 107
Joined: 19 Jan 2007, 15:04

Post by Hrafnhildur »

ætli það sé ekki danio, eins og zebra danio
User avatar
Maris
Posts: 27
Joined: 15 Oct 2009, 00:29
Location: Kópavogur

Post by Maris »

Hrafnhildur wrote:ætli það sé ekki danio, eins og zebra danio
Passar! Ég átti við dano, zebra danio og hinn er leopard danio. Einhver sem sagði danni við mig og ég greip það bara á lofti. Best að halda sig við upprunalegu nöfnin.
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Það er kannski óhætt að bæta nokkrum smáfiskum í búrið ef hóflega er fóðrað og vatnsskiptin ör.
User avatar
Petur92
Posts: 193
Joined: 15 Dec 2008, 18:12
Location: Reykjavík

Post by Petur92 »

brúsknefur verður samt 15 cm.. á hann eftir að passa í búrið ?
Pétur
8455242
---------------------------------
mikill áhugamaður hér á ferð
User avatar
Maris
Posts: 27
Joined: 15 Oct 2009, 00:29
Location: Kópavogur

Post by Maris »

Þá sel ég drenginn og fæ minni snáða í staðinn :)
User avatar
Sirius Black
Posts: 842
Joined: 12 Oct 2007, 19:11
Location: Hafnarfjörður

Post by Sirius Black »

Petur92 wrote:brúsknefur verður samt 15 cm.. á hann eftir að passa í búrið ?

Er búin að vera með brúsknef í mínu búri í 1 og hálft ár, og þeir eru enn alveg slatta litlir, held það taki nokkur ár fyrir brúsknefi að ná fullri stærð þannig að þetta búr er alveg nógu stórt fyrir hann í heillangan tíma.
200L Green terror búr
User avatar
Maris
Posts: 27
Joined: 15 Oct 2009, 00:29
Location: Kópavogur

Post by Maris »

Tveir gúbbýjar dauðir. Vonandi ekki vegna kvenmannsleysis?
Fann hálfgerða beinagrind af þeim eftir mikla leit. Reyndar sá ég áður en ég fann þann seinni að það var partý hjá sniglunum á ákveðnum stað í búrinu. Við nánari athugun lá þar skjannahvítur gúbbý, eiginlega bara beinagrindin af honum.

Sniglarnir eru sprækir og pattaralegir- kannski drápu þeir gúbbýana 8)
En mér finnst þeir vera ansi gráðugir á vallisneriurnar mínar. Hélt að þeir ætu bara þörunga en ekki gróðurinn sjálfan?

Búin að bæta við 10 nenon-tetrum og ætla mér að fá 1 platy í nánustu framtíð.
Brúsknefurinn er ca 10 cm . Vona að ég sé ekki að sprengja búrið!

Kom mér á óvart hvað neon tetrunar eru sprækar og gráðugar á matmálstímum. Hélt fyrst að ég þyrfti að mylja flögurnar í míkróstærð til að þær gætu borðað þær :-) En þær sjúga kröftulega stærstu flögurnar upp í sig með látum. Botnfóðrið sjúga þær líka og rembast eins og rjúpan við staurinn að éta það. Hinir fiskarnir eru heppnir að ná einhverju!
User avatar
Sirius Black
Posts: 842
Joined: 12 Oct 2007, 19:11
Location: Hafnarfjörður

Post by Sirius Black »

Maris wrote:Tveir gúbbýjar dauðir. Vonandi ekki vegna kvenmannsleysis?
Nei það gerist ekki :P of oft er flottara að hafa bara kalla í búrinu þar sem þá verða þeir fallegri og eyða orku í liti og þessháttar en ekki í að eltast við kellingarnar :P. T.d var ég alltaf bara með kalla sem voru líka rosalega flottir :)
200L Green terror búr
User avatar
Maris
Posts: 27
Joined: 15 Oct 2009, 00:29
Location: Kópavogur

Post by Maris »

Sirius Black wrote:
Maris wrote:Tveir gúbbýjar dauðir. Vonandi ekki vegna kvenmannsleysis?
Nei það gerist ekki :P of oft er flottara að hafa bara kalla í búrinu þar sem þá verða þeir fallegri og eyða orku í liti og þessháttar en ekki í að eltast við kellingarnar :P. T.d var ég alltaf bara með kalla sem voru líka rosalega flottir :)
OK, ég hélt að það yrði að hafa kellingar með þeim til að þeir viðhéldi litnum og skörtuðu sínu fegursta- Vissi þetta ekki.
Fanna
Posts: 7
Joined: 09 Aug 2008, 21:10
Location: Mosfellsbær

Post by Fanna »

Síkliðan wrote:Ég mæli ekki með því að nota cm/2L reglu í fiskabúr.
Hverju mælir þú með?
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Ég mæli með því að byrja á því að spyrja ráða hjá gæludýraverslunum um það hvaða fiskar eru hæfir í búrið til að byrja með, bæta síðan hægt og rólega við eftir því hve búrið er stórt, sem sagt hætta að bæta við þegar að það er passlega mikið af fiskum í búrinu.
400L Ameríkusíkliður o.fl.
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Síkliðan wrote:Ég mæli með því að byrja á því að spyrja ráða hjá gæludýraverslunum um það hvaða fiskar eru hæfir í búrið til að byrja með, bæta síðan hægt og rólega við eftir því hve búrið er stórt, sem sagt hætta að bæta við þegar að það er passlega mikið af fiskum í búrinu.
Þú villt sem sagt meina að það sé betra að leita til starfsfólks í verslunum sem er misjafnlega reynslumikið í fiskamálum frekar en að fara eftir þeim svörum sem hafa fengist í þessum þræði ?
Ég hefði haldið að td cm/l viðmiðið sé með betri ráðum sem hægt er að fara eftir, þannig er td ómögulegt að overstokka búr.
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Þegar ég meinti starfsmann í gæludýraverslun var mér nú hugsað til félaganna í dýragarðinum. En auðvitað er meira vit í því að spyrja hér heldur en að spyrja einhvern reynslulausan starfsmann í ónefndri gæludýraverslun.

En það er vel hægt að overstocka búr með þessari reglu. Fer mjög eftir hreinsibúnaði og stærð fiska hinsvegar.
Ég vil bara koma því á framfæri að ég sagði ÉG PERSÓNULEGA mæli ekki með þessari reglu. :)
400L Ameríkusíkliður o.fl.
Post Reply