smá spurning - mold í búr

Almennar umræður um plöntur, lýsingu og annað sem viðkemur gróðurbúrum

Moderators: Vargur, prien, Sven, Stephan

Post Reply
Alli&Krissi
Posts: 331
Joined: 28 Oct 2008, 16:21
Location: rvk

smá spurning - mold í búr

Post by Alli&Krissi »

er hægt að setja íslenska flúðarmold í gróður búr?? er með eitt 60L gróðurbúr .semsagt undirlag kanski 1-2 cm og svo möl yfir
500L,60L,30L,25L.
User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Post by Sven »

Það er hægt, en ég veit ekki hversu mikið gagn það gerir. þú þyrftir að passa mjög vel að hreyfa lítið við mölinni. Ég mundi reyndar ekki mæla með þessu, veit ekki hvort þetta hafi einhver jákvæð áhrif fyrir plönturnar hjá þér.
Alli&Krissi
Posts: 331
Joined: 28 Oct 2008, 16:21
Location: rvk

Post by Alli&Krissi »

eg helt að það væri fínt fyrir plönur að hafa mold og sand:D
500L,60L,30L,25L.
Gudmundur
Posts: 2115
Joined: 20 Sep 2006, 14:30
Location: Kópavogur
Contact:

Post by Gudmundur »

Ég hef aldrei prufað þetta þar sem líkur eru á að búrið gæti orðið frekar "skítugt"
en ef þú ert með tómt búr þá getur þú bara prufað og fengið reynslu fyrir okkur sem höfum ekki prufað
www.fiskabur.is
skemmtileg heimasíða
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Ég hef prófað að setja svoleiðis í tjörn með liljum og það gekk vægast sagt illa. Moldin flaut upp og gruggaði mikið. Það er hugsanlega hægt að redda því með að hafa hana í bleyti. Svo gætu líka verið aukaefni sem eru ekki æskileg í fiskabúr.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
~*Vigdís*~
Posts: 525
Joined: 20 Sep 2006, 19:03
Location: Úthverfi dauðans Aldur: 30ára
Contact:

Post by ~*Vigdís*~ »

Ég hef prófað þetta með mold úti, keypti ekki,
ég þjappaði henni vel með höndunum, kom fyrir stærra grjóti
og svo fiskabúra möl yfir, plantaði plöntunum og fyllti búrið af
vatni afar varlega, getur notað matardisk, ég notaði eitt af
stærri grjótunum til að hella á.
Svo lengi sem þú ert ekki að sulla með krafti þá gengur þetta fínt upp
plönturnar fengu öflugt rótarkerfi af þessu og urðu ,,betri"
en ég þurfti að gæta mín í hvert skipti sem ég gerði vatnskipti,
prufaði þetta ekki lengi, 6-8 mánuði c.a.

Moldin sem ég gróf upp úti var ekki eins þurr og flúðamold svo
ég myndi fara að ráðum Kela og bleyta hana aðeins :)
Image
Post Reply