Vesen á gubby kellu

Guppy, endler, platy, sverðdragarar og aðrir gotfiskar

Moderators: Elma, Vargur

Post Reply
User avatar
Bob
Posts: 531
Joined: 07 Dec 2008, 21:06
Location: Reykjavík

Vesen á gubby kellu

Post by Bob »

ég er með eina xl gubby kellu sem hefur ávalt verið frekar skrítin. semsagt hún er það löng að hún syndir alltaf með sporðinn niður.. ekkert frásögufærandi með það en núna þá er hún byrjuð að leggjast á botninn.. ofanda og hegða sér mjög undarlega.

Það ætti að vera löngu komið að goti hjá henni þannig að ég bjóst ivð því að hún væri bara að fara að gjóta og setti hana í fötu uppí skáp. en núna 1 sólahring seinna er ekkert komið og hún liggur bara á hlið á botninum og ofandar..

hvað gæti verið að? er hún bara að deyja eða er einhverskonar stífla í henni? :roll: eða hvað?
Ekkert - retired
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

líklega að drepast. Ekki ólíklegt að hún sé orðin frekar gömul.. gúbbar verða oftast bara um 2-3 ára gamlir, og þegar maður kaupir stórar kerlingar þá eru þær mjög líklega orðnar frekar gamlar.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Bob
Posts: 531
Joined: 07 Dec 2008, 21:06
Location: Reykjavík

Post by Bob »

já ættli það ekki bara.. RIP then

leifi henni bara að deyja úr elli þá. :)
Ekkert - retired
forsetinn
Posts: 305
Joined: 10 Oct 2006, 13:32

Post by forsetinn »

Einkennin benda tvímælalaust til costiu
User avatar
Bob
Posts: 531
Joined: 07 Dec 2008, 21:06
Location: Reykjavík

Post by Bob »

ok costiu.. hef ekki heyrt um það. þetta er samt eini fiskurinn sem er svona.

tjahh.. reyndar eru 2 fiskar (kvk) dánar í þessum mánuði en það voru engin einkenni þá. bara hressar um kvöldið. svo morguninn eftir dánar..

þessi afturámóti hefur alltaf verið funky. fyrir utan extreme funky síðustu daga..
Ekkert - retired
User avatar
Bob
Posts: 531
Joined: 07 Dec 2008, 21:06
Location: Reykjavík

Post by Bob »

jæja hún s.s. dó. og ég fór aðeins að lesa mér til um costium. skv. því sem ég las þá verða tálknin svona brúnleit eftir snýkjudýr og sporðurinn fellur saman. tók ekki eftir þeim einkennum hjá henni..

en hún er farin. var eflaust bara gömul :)

takk fyrir svörin :)
Ekkert - retired
User avatar
Tigra
Posts: 42
Joined: 18 Sep 2008, 10:40

Post by Tigra »

Ég var með tvær óléttar guppy kerlingar sem gerðu þetta nákvæmlega sama og eru núna báðar steindauðar.
Ég var ný búin að kaupa þær, þær voru bara nokkurra mánaða samkvæmt sölumanninnum, þannig að ég átta mig ekki alveg á þessu.
Guppy karlinn og aðrir fiskar í búrinu (3 sverðdragarar, axarfiskur, 2 skalar og 2 ryksugur) eru spræk.
Post Reply