Tanganyika búr

Umræður um afrískar sikliður og amerískar í stærri kantinum

Moderators: Vargur, Hrappur, Ásta

Post Reply
HLH
Posts: 40
Joined: 07 Feb 2007, 05:36
Location: Kópavogur

Tanganyika búr

Post by HLH »

Já jæja, þá er ég loksins búin að setja upp búrið mitt...
Það eru reyndar engir fiskar í því í augnablikinu en ég get vonandi bætt úr því fljótlega.

Svona lítur búrið út

Image

Svona til gamans þá má kannski nefna að ég hafði mikið fyrir að ná í þennan sand! Hann kemur úr fjöru hérna í nágrenninu og þurfti ég að klöngrast upp með hann svaka brekku :lol: - en alveg þess virði!
Steinarnir eru svo ættaðir úr borgarfirði. Náði mér í þá þegar var verið að sprengja fyrir nýja veginum og notaði þá í gamla búrið. Passaði mig svo á því að geyma þá á vísum stað til að geta notað þá aftur enda ekta steinar til að hlaða og búa til hella ;) Verst að ég hefði þurft að taka svolítið fleiri, en ég get alltaf bætt við.
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Kuðungasikliðurnar mínar slefuðu yfir kuðungunum þegar ég sýndi þeim þessa mynd. :-)
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Flottur sandur.

Það verður gaman að sjá hvað endar í búrinu hjá þér.
Því miður á ég enga fiska sem ég tími að láta frá mér.
You can fool some people sometimes, but you can´t fool all the people all the time.
ragz
Posts: 84
Joined: 16 Oct 2006, 15:18

Post by ragz »

Nohh nákvæmlega sá sandur sem ég er að leita mér að en finn hvergi, langar þig að deila með okkur hvar þú fannst herlegheitin? :D
User avatar
~*Vigdís*~
Posts: 525
Joined: 20 Sep 2006, 19:03
Location: Úthverfi dauðans Aldur: 30ára
Contact:

Post by ~*Vigdís*~ »

ragz wrote:Nohh nákvæmlega sá sandur sem ég er að leita mér að en finn hvergi, langar þig að deila með okkur hvar þú fannst herlegheitin? :D
tek undir það, hvar er ,,í nágrenninu" :twisted:
og þurftirðu að sigta/hreinsa hann mikið?
HLH wrote: Hann kemur úr fjöru hérna í nágrenninu og þurfti ég að klöngrast upp með hann svaka brekku :lol:

Virkilega flottir kuðungar, slef!
Image
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Kuðungarnir eru klárlega úr RL búðinni (Fína orðið yfir Rúmfatalagerinn). Ég fékk svona kuðó þar og skilst mér að þeir séu uppseldir? Er langt síðan þú keyptir þessa, Hrafnhildur?
You can fool some people sometimes, but you can´t fool all the people all the time.
HLH
Posts: 40
Joined: 07 Feb 2007, 05:36
Location: Kópavogur

Post by HLH »

jájá ég get alveg deilt því með ykkur hvar ég náði í þennan sand, þetta er nú samt sennilega ekki í ykkar nágrenni :P

Allavega þá náði ég í hann á Vatnsnesi í Húnaþingi vestra hjá Hvítserk. Semsagt í þessari fjöru:

Image

Og jú þessir kuðungar eru úr RL búðinni, það eru samt alveg 2 ár síðan ég keypti þá...
User avatar
~*Vigdís*~
Posts: 525
Joined: 20 Sep 2006, 19:03
Location: Úthverfi dauðans Aldur: 30ára
Contact:

Post by ~*Vigdís*~ »

nauh bara hvítserkur!
Þetta er nú á leiðinni heim til ma og pa :D

Næst þegar ég tek rúntin mun ég sko athuga það að stoppa, tek
með mér tóma dúnka til sand ,,veiða" :D

Hann virðist svo hreinn hjá þér og laus við svona skeljar brots drasl og
fleira sem maður fær vanalega með fjörusand :)
Image
HLH
Posts: 40
Joined: 07 Feb 2007, 05:36
Location: Kópavogur

Post by HLH »

~*Vigdís*~ wrote:nauh bara hvítserkur!
Þetta er nú á leiðinni heim til ma og pa :D

Næst þegar ég tek rúntin mun ég sko athuga það að stoppa, tek
með mér tóma dúnka til sand ,,veiða" :D

Hann virðist svo hreinn hjá þér og laus við svona skeljar brots drasl og
fleira sem maður fær vanalega með fjörusand :)
Núnú hvar eru ma og pa þín?
En já hann er akkúrat alveg mjög fínn og alveg laus við allt! var búin að ná mér í sand hérna niðrí fjöru fyrir neðan hjá mér sem virkaði voða fínn en svo þegar hann var kominn í búrið var hann bara grófur og ljótur :(
og þó að ég hreinsaði hann rosa vel varð vatnið í búrinu grænbrúnt!

Og já sé það núna að þú varst að spurja vigdís hvort ég hefði hreinsað hann mikið og sigtað hann, gerði það ekki, setti smá skamta af honum í lítinn bala og skolaði með heitu vatni nokkrum sinnum, endaði svo á því að hella sjóðandi vatni ofaní búrið þegar ég var búin að setja sandinn í... - þurfti ekkert að sigta
User avatar
Gúggalú
Posts: 161
Joined: 19 Mar 2007, 21:27
Location: Norðurland

Post by Gúggalú »

~*Vigdís*~ wrote:nauh bara hvítserkur!
Þetta er nú á leiðinni heim til ma og pa :D

Næst þegar ég tek rúntin mun ég sko athuga það að stoppa, tek
með mér tóma dúnka til sand ,,veiða" :D

Hann virðist svo hreinn hjá þér og laus við svona skeljar brots drasl og
fleira sem maður fær vanalega með fjörusand :)
Geturðu þá ekki tekið líka á leiðinni til ma og pa og látið mig fá, og svo tekið handa þér í bakaleiðinni ?
One out of three people is mentally ill. Ask two friends how they're doing. If they say they're OK, then you're it
User avatar
~*Vigdís*~
Posts: 525
Joined: 20 Sep 2006, 19:03
Location: Úthverfi dauðans Aldur: 30ára
Contact:

Post by ~*Vigdís*~ »

HLH wrote:Núnú hvar eru ma og pa þín?
Siglufjörður City :ojee:
Gúggalú wrote: Geturðu þá ekki tekið líka á leiðinni til ma og pa og látið mig fá, og svo tekið handa þér í bakaleiðinni ?
Veistu why not, þarf að stoppa einhverstaðar að hleypa
vóffum að míga hvort sem er (eins gott að meina þeim frá sandinum :? )

En það gæti aftur á móti orðið pínu langt þangað til ég kem,
líklega ekkert fyrr en um versló :oops:

Image
HLH
Posts: 40
Joined: 07 Feb 2007, 05:36
Location: Kópavogur

Post by HLH »

Jæja, skellti mér í fiskabúr.is í gær og náði mér í 3 fiska, 1 brúsknef og

2 svona
Image

Ég er ekki alveg viss hvort þeir ætli að verða "vinir" eða ekki... Annar þeirra er pottþétt hængur en ég hef ekki hugmynd með hinn, það eru engin svakaleg slagsmál í gangi en þeir eru ekki heldur klesstir upp við hvorn annan... sjáum til hvða gerist
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Þetta er góð byrjun hjá þér, þetta er fallegir fiskar.
You can fool some people sometimes, but you can´t fool all the people all the time.
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Sýnist þetta vera leptosoma, þú vilt líklega hafa amk 5stk af þeim.. Þeir plumma sig ekkert sérstaklega vel bara 2 saman..
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Þetta eru Lamprologus caudopunctatus, fínir 2 saman ef hittist á par.
Post Reply