Red Parrot

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
IAmTheSun
Posts: 41
Joined: 13 Oct 2008, 19:22
Location: HFJ beibý ;)
Contact:

Red Parrot

Post by IAmTheSun »

Geta Red Parrot verið í ca. 60 lítra búri?
Og hvað þurfa þeir að vera margir saman í búri, eða geta þeir bara verið einir í búri?
Hvað kosta þeir?
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Það er ágætis byrjun að reyna að lesa sér eitthvað til sjálf og spyrja svo hér en red parrot getur engan vegin verið í 60 l búri.
IAmTheSun
Posts: 41
Joined: 13 Oct 2008, 19:22
Location: HFJ beibý ;)
Contact:

Post by IAmTheSun »

Vargur wrote:Það er ágætis byrjun að reyna að lesa sér eitthvað til sjálf og spyrja svo hér en red parrot getur engan vegin verið í 60 l búri.
Ok, hvað stórt búr myndi henta fyrir red parrot?
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

180-200 lítrar ætti að passa fyrir einn fisk en ef þeir eru fleiri þá er best að hafa þá nokkra í hóp og í vel stóru búri.
IAmTheSun
Posts: 41
Joined: 13 Oct 2008, 19:22
Location: HFJ beibý ;)
Contact:

Post by IAmTheSun »

Ok :)
Erum kanski að fara fá okkur 200-250 lítra búr í stofuna, aftur, og okkur langar svoldið að prófa að fá okkur einn svona fisk í búrið.
Munum örugglega bara fá okkur Óskara og einhverja aðra líka ;)

Ekki veistu um einhverja litríka fiska sem geta búið með Gubby fiskum?
Mun fá mér í vetur eða á næsta ári Gubby fiska, kanski fyrr, langar að hafa nokkrar tegundir af fiskum í búrinu og frekar litríka fiska
Búrið er 54 lítra sem ég verð með, er að fara sækja búrið um helgina eða næstu viku :)
Last edited by IAmTheSun on 13 May 2009, 19:17, edited 2 times in total.
User avatar
Guðjón B
Posts: 1510
Joined: 13 Mar 2009, 13:59
Location: Kópavogur
Contact:

Post by Guðjón B »

aðrir gotfiskar, flestar tetrur, barbar, botnfiskar (í minni kantinum) + alveg hellingur af litlum fiskum í öllum betri verslunum
.. (svo er möguleiki að syrja starfsmann þegar maður er kominn í eina betri verslun :D - ekki það að ég sé að banna þer að spyrja spjallverja :lol: )
Kv. Guðjón Bergmann
180L
54 L
User avatar
Sirius Black
Posts: 842
Joined: 12 Oct 2007, 19:11
Location: Hafnarfjörður

Post by Sirius Black »

IAmTheSun wrote:
Vargur wrote:180-200 lítrar ætti að passa fyrir einn fisk en ef þeir eru fleiri þá er best að hafa þá nokkra í hóp og í vel stóru búri.
Ok ;)
Erum kanski að fara fá okkur 200-250 lítra búr í stofuna, aftur, og okkur langar svoldið að prófa að fá okkur einn svona fisk í búrið.
Munum örugglega bara fá okkur Óskara og einhverja aðra líka :)
Þú verður að átta þig á því að óskarar verða stórir og menga mikið, myndi t.d ekki setja fleiri en 2 í 400L búr og þá í mesta lagi 1 í svona lítið búr :roll: myndi t.d bara aldrei setja óskar í 200L búr, finnst þeir verða svo stórir og þurfa slatta sundpláss, einnig er ekki mælt með mörgum óskörum saman nema að búrið sé mjög stórt, ég veit t.d ekki hvort ég geti haft mína 2 saman til frambúðar þó að búrið sé svona stórt. Myndi frekar fara bara í einhverjar litlar síklíðutegundir eins og malawi og þessháttar, þar sem búrið er ekki stærra.
200L Green terror búr
IAmTheSun
Posts: 41
Joined: 13 Oct 2008, 19:22
Location: HFJ beibý ;)
Contact:

Post by IAmTheSun »

Sirius Black wrote:

Við vorum með 2 óskara í 7 ár í 220 lítra búri, þeir höfðu það fínt þar :)
Vorum með helling af fiskum í því búri, einhverja svona gula Malawi fiska, Skalla og helling :)
Það var nóg pláss í búrinu.
Samt munum við örugglega fá okkur stærra búr en 200 lítra ef við fáum okkur aftur óskara ;)
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

IAmTheSun wrote: Við vorum með 2 óskara í 7 ár í 220 lítra búri, þeir höfðu það fínt þar :)
Vorum með helling af fiskum í því búri, einhverja svona gula Malawi fiska, Skalla og helling :)
Það var nóg pláss í búrinu.
Samt munum við örugglega fá okkur stærra búr en 200 lítra ef við fáum okkur aftur óskara ;)
Ég efast einhvern vegin um að þeir hafi haft það fínt í 220 l og með helling af fiskum í burinu.
User avatar
Sirius Black
Posts: 842
Joined: 12 Oct 2007, 19:11
Location: Hafnarfjörður

Post by Sirius Black »

Vargur wrote:

Úff sammála Vargi, er með 180L sem er nú ekki mikið minna og ég sé ekki fyrir mér 2 óskara og nokkra skala og fleiri fiska í því :S finnst skalarnir meiri segja í það stærsta í búrið til að hafa það fínt hvað þá ef það væri tveir 30cm óskarar með þeim :S þeir væru allir liggur við kramdir upp við glerið að synda og ég tala nú ekki um mengunina sem kemur, þyrfti örugglega að skipta allavega tvisvar í viku :S ef vatnið ætti að haldast fínt.
200L Green terror búr
IAmTheSun
Posts: 41
Joined: 13 Oct 2008, 19:22
Location: HFJ beibý ;)
Contact:

Post by IAmTheSun »

Var að tala við pabba og búrið var 200 og einhvað cm á lengd, ekki 200 og e-h lítrar :oops:
Þetta var víst rangt hjá mér!
En allavega höfðu fiskarnir það fínt í því búri.
Man ekki hvað breiddin og hæðin á því var, en minnstalagi 50 á breidd og hæðin örugglega 60-70 cm.

Ruglaðist bara á lítrum og centímetrum :? :oops: :oops:
User avatar
sirarni
Posts: 624
Joined: 18 Jan 2009, 17:46
Location: Kópavogur

Post by sirarni »

Átti þetta þá að vera svona :roll:

Við vorum með 2 óskara í 7 ár í 220 cm búri, þeir höfðu það fínt þar Smile
Vorum með helling af fiskum í því búri, einhverja svona gula Malawi fiska, Skalla og helling Smile
Það var nóg pláss í búrinu.
Samt munum við örugglega fá okkur stærra búr en 200 cm ef við fáum okkur aftur óskara Wink
IAmTheSun
Posts: 41
Joined: 13 Oct 2008, 19:22
Location: HFJ beibý ;)
Contact:

Post by IAmTheSun »

sirarni wrote:Átti þetta þá að vera svona :roll:

Við vorum með 2 óskara í 7 ár í 220 cm búri, þeir höfðu það fínt þar Smile
Vorum með helling af fiskum í því búri, einhverja svona gula Malawi fiska, Skalla og helling Smile
Það var nóg pláss í búrinu.
Samt munum við örugglega fá okkur stærra búr en 200 cm ef við fáum okkur aftur óskara Wink
:P
Ruglast svo oft á Cm og Lítrum :roll:
User avatar
Sirius Black
Posts: 842
Joined: 12 Oct 2007, 19:11
Location: Hafnarfjörður

Post by Sirius Black »

Það er allt annað :) þá er það orðið ágætlega stórt búr :) var mikið að spá hvernig þeir höfðu haft það fínt í svona litlu búri hehe :P
200L Green terror búr
Post Reply