Guppy, endler, platy, sverðdragarar og aðrir gotfiskar
Moderators: Elma , Vargur
evaolafs
Posts: 29 Joined: 05 Apr 2008, 12:41
Post
by evaolafs » 04 May 2009, 20:56
Ég er með Black Molly sem er komin fast að goti og var að velta því fyrir mér hvort einhver ákveðin gerð af gotbúri henti betur en önnur. Ég er með frekar lítið gotbúr, svona týpískt box þar sem seiðin fara ofan í sér hólf en mér finnst það svo lítið fyrir svona stóra fiska.
gudrungd
Posts: 1301 Joined: 03 Mar 2008, 11:19
Location: 108, Rvk
Post
by gudrungd » 04 May 2009, 21:25
þegar ég las póstinn þá mundi ég allt í einu að ég var með gúbbíkellingu í gotbúri, hún var að sjálfsögðu stokkin uppúr!
evaolafs
Posts: 29 Joined: 05 Apr 2008, 12:41
Post
by evaolafs » 04 May 2009, 21:32
Já, mínar gera þetta alltaf líka. Ég vil samt ekki hafa lokið á gotbúrinu svo þetta er oft eltingaleikur
Guðjón B
Posts: 1510 Joined: 13 Mar 2009, 13:59
Location: Kópavogur
Contact:
Post
by Guðjón B » 04 May 2009, 22:41
ég set bara gúbbíana í annað búr
Kv. Guðjón Bergmann
180L
54 L
gudrungd
Posts: 1301 Joined: 03 Mar 2008, 11:19
Location: 108, Rvk
Post
by gudrungd » 04 May 2009, 23:00
hehh...... ég er með 7 búr í húsinu og þau eru öll upptekin
Vargur
Posts: 8605 Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær
Post
by Vargur » 04 May 2009, 23:05
evaolafs wrote: Ég er með Black Molly sem er komin fast að goti og var að velta því fyrir mér hvort einhver ákveðin gerð af gotbúri henti betur en önnur. Ég er með frekar lítið gotbúr, svona týpískt box þar sem seiðin fara ofan í sér hólf en mér finnst það svo lítið fyrir svona stóra fiska.
Stærra gotbúr er þá klárlega málið.
evaolafs
Posts: 29 Joined: 05 Apr 2008, 12:41
Post
by evaolafs » 05 May 2009, 07:15
Já ég veit, en er einhver sérstök gerð sem þið mælið með? Eru netbúr t.d. sniðugri?
Snædal
Posts: 202 Joined: 27 Apr 2009, 21:37
Location: Rvk
Post
by Snædal » 05 May 2009, 15:52
1. Hvernig veistu þegar hún er að fara að gjóta?
2. Er það algjört must að færa hana?
evaolafs
Posts: 29 Joined: 05 Apr 2008, 12:41
Post
by evaolafs » 05 May 2009, 15:56
Snædal wrote: 1. Hvernig veistu þegar hún er að fara að gjóta?
2. Er það algjört must að færa hana?
1. Hún lítur út eins og svartur körfubolti með sporð
2. Já, ég er með tvær kerlingar (og karla) og það er allt étið jafn óðum :/
Snædal
Posts: 202 Joined: 27 Apr 2009, 21:37
Location: Rvk
Post
by Snædal » 05 May 2009, 16:01
evaolafs wrote: Snædal wrote: 1. Hvernig veistu þegar hún er að fara að gjóta?
2. Er það algjört must að færa hana?
1. Hún lítur út eins og svartur körfubolti með sporð
2. Já, ég er með tvær kerlingar (og karla) og það er allt étið jafn óðum :/
Éta fiskarnir seyðin á meðan þau eru í eggjunum eða þegar þau eru búin að klekjast eða bæði?
EiríkurArnar
Posts: 475 Joined: 30 Nov 2008, 21:18
Location: Garður
Post
by EiríkurArnar » 05 May 2009, 16:12
Molly eru gotfiskar þannig að það eru engin egg...bara beint lítil seiði