Slönguvesen

Spurningar og svör um uppsetningu búra, sjúkdóma, hvaða fiskar passa saman osf.

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
User avatar
Gúggalú
Posts: 161
Joined: 19 Mar 2007, 21:27
Location: Norðurland

Slönguvesen

Post by Gúggalú »

Nú langar mig aðeins að fá ráð hjá ykkur gúrúum. Málið er að ég er búin að kaupa mér slöngu til að nota til að tæma búrið og til að setja vatn í búrið. En vandamálið er að mig vantar eitthvað millistikki til að tengja slöngujúnitið við sturtutækið mitt. s.s skrúfgangurinn passar ekki og það er eitthvað ferlegt vesen að fá þetta hérna á siglo, er búin að bíða í held ég 3 vikur og hann klórar sér enn í höfðinu hvernig ég eigi að fara að þessu. Hann segir s.s. að bilið sé of stórt milli sturtutækisins og slöngusjúnitsins. Ég bara trúi því ekki að það sé ekki hægt að græja þetta einhvernvegin þó svo það þurf þá 2 millistikki. Vil nefnilega helst fá þetta í sturtutækið því þar er hitastillir, en það er ekkert svoleiðs á eldhúskrananum.

Vitið þið til þess að þetta eigi að vera eitthvað svona rosalegt vandamál að útbúa þetta ? Þeir eru svo rosalega slow þarna í búðinni að ég er að verða klikk.
Sveinn
Posts: 7
Joined: 13 Feb 2007, 11:51
Contact:

Post by Sveinn »

Skil það reyndar vel að hann klóri sér í hausnum við að reyna græja einhver millistykki. Ég reyndi sjálfur að græja svona fyrir sjálfann mig en það var bara redding.
Ég reyndar hef ekki hugmynd um hversu slangan er sver hjá þér en mér dettur í hug að það gæti verið ráð að taka gamlann sturtubarka og skera hann í miðju ná sér svo í einn rörbút sem að passar inní sturtubarkann og annan rörbút sem að passar inní slönguna sem að þú notar og fá svo einhvern til að sjóða bútana saman t.d. á S.R. vélaverkstæði og nota svo hosuklemmur til að festa allt saman. Þetta verður reyndar engin fegurð en samt nokkuð öruggt að það virkar.
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Ég fann millistykki til að koma vatnsskiptiunitinu mínu á þvottahússkranann í byko...
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
~*Vigdís*~
Posts: 525
Joined: 20 Sep 2006, 19:03
Location: Úthverfi dauðans Aldur: 30ára
Contact:

Post by ~*Vigdís*~ »

Sveinn heldur að það sé bara hefðbundið,
sturtu haus er allt annað (hann nennir ekki að signa sig inn rassálfurinn)

Spurning að tala líka við píparann æji pabba Helga Svavars,
fá hann til að sjá þetta, væri fljótlegra að græja svona ef maður
sér þetta heldur Sveinninn
Image
User avatar
Gúggalú
Posts: 161
Joined: 19 Mar 2007, 21:27
Location: Norðurland

Post by Gúggalú »

~*Vigdís*~ wrote: Sveinn heldur að það sé bara hefðbundið,
sturtu haus er allt annað (hann nennir ekki að signa sig inn rassálfurinn)

Spurning að tala líka við píparann æji pabba Helga Svavars,
fá hann til að sjá þetta, væri fljótlegra að græja svona ef maður
sér þetta heldur Sveinninn
Já, æji, þetta er bara vesen.

Langar s.s. að skrífa bara sturtubarkann úr sturtutækinu og ná að tengja slönguna þar í, í staðin fyrir sturtubarkann. Þó það kæmi einhver slöngu bútur á milli skiptir engu máli, bara að það sé hægt að tengja þetta einhvernvegin.
User avatar
~*Vigdís*~
Posts: 525
Joined: 20 Sep 2006, 19:03
Location: Úthverfi dauðans Aldur: 30ára
Contact:

Post by ~*Vigdís*~ »

sveinn hefur nebbla teipað þetta eitthvað þegar ég væli :lol:
Image
Mr. Skúli
Posts: 463
Joined: 10 Nov 2006, 19:54
Location: Hafnafjörður
Contact:

Post by Mr. Skúli »

Vatnsvirkinn í hfj er vinur þinn í þessum málum!.. næst þegar þú kemur í bæinn þá ferðu þangað!
User avatar
Gúggalú
Posts: 161
Joined: 19 Mar 2007, 21:27
Location: Norðurland

Post by Gúggalú »

Það kom pípari í vínbúðina í dag og var að kjafta við okkur, og ég spurði hann hvort þetta ætti að vera eitthvað mál að tengja slönguna í sturtutækið. Hann sagðist nú ekki halda það. Ég fór heim og náði í stykkið sem ég var með og hann tók það, kom eftir smá stund með græju á þetta þannig að núna þarf ég ekki lengur að burðast með vatnið í fötum :D

Alger snilld. Þeir verða bara að halda áfram að klóra sér í höfðinu þarna í búðinni.... vissi að þetta ætti ekki að vera neitt mál
User avatar
Gúggalú
Posts: 161
Joined: 19 Mar 2007, 21:27
Location: Norðurland

Post by Gúggalú »

Alger snilld, var að skipta út vatni og þurfti EKKI að nota fötu (eða tertuhjálm) og ekkert sull útum allt :D j
One out of three people is mentally ill. Ask two friends how they're doing. If they say they're OK, then you're it
Mr. Skúli
Posts: 463
Joined: 10 Nov 2006, 19:54
Location: Hafnafjörður
Contact:

Post by Mr. Skúli »

kannast við þetta marh!.. slöngur rúla marrr!..
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Já Gúggalú, þetta er þvílíkur munur.
Ég var alltaf að druslast með þetta í fötum, fyrst 25 fötur inn á klósett og sturta, svo í eldhúsvaskinn að fylla og svo að lyfta þessu upp í búr til að hella. Shæt, hvernig nennti maður þessu?? Fyrstu mánuðina sauð ég reyndar allt vatn og blandaði áður en ég setti í búrið :lol: þvílíkt rugl!
You can fool some people sometimes, but you can´t fool all the people all the time.
Birkir
Posts: 1150
Joined: 22 Oct 2006, 13:34
Contact:

Post by Birkir »

Tertuhjálm?
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

svo vatnsbunan fari ekki beint í botnin og allt útum allt
-Andri
695-4495

Image
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Hvaða rugl er þetta með þennan tertuhjálm alltaf ? :rofl:

Alltaf gaman að Googla hin og þessi orð,
http://www.google.is/
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Andri Pogo wrote:svo vatnsbunan fari ekki beint í botnin og allt útum allt
Newbie :D Veit ekki sannleikan um tertuhjálminn.
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

Vargur wrote:
Andri Pogo wrote:svo vatnsbunan fari ekki beint í botnin og allt útum allt
Newbie :D Veit ekki sannleikan um tertuhjálminn.
ó, ég gerði bara ráð fyrir að það væri notkunin, ég lagði alltaf djúpan disk í gamla búrið svo sandurinn myndi ekki mokast út í horn
-Andri
695-4495

Image
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Mjög góð ályktun. En ótrúlegt en satt, tertuhjálmur getur átt veigameira hlutverk í því að fylla stór fiskabúr af vatni og er af mörgum talinn ómissandi áhald fyrir fiskaáhugamenn.

Image
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

endilega útskýrðu, ég googlaði þetta og fann bara þessa fínu mynd af Birki með tertuhjálm sem hann notaði til að fylla 400l búr :lol: dropi í hafið ?
Image

ekki nema það sé bara húmorinn hjá ykkur :?:
-Andri
695-4495

Image
Rut
Posts: 69
Joined: 11 Nov 2006, 13:38

Post by Rut »

:lol: Þessi tertuhjálmur virkaði fínt, hvað er þetta!!
User avatar
Gúggalú
Posts: 161
Joined: 19 Mar 2007, 21:27
Location: Norðurland

Post by Gúggalú »

:rofl:
One out of three people is mentally ill. Ask two friends how they're doing. If they say they're OK, then you're it
Post Reply