Viðgerð á plastbúri!!!

Búrasmíði, bakgrunnar, lok osf

Moderators: Vargur, keli, Squinchy

Post Reply
User avatar
haffi85007
Posts: 185
Joined: 31 Mar 2008, 21:09
Location: Njarðvík

Viðgerð á plastbúri!!!

Post by haffi85007 »

Má nota superglue til að festa það saman eða þarf að nota eitthvað annað...það datt nefnilega í gólfið og það kom sprunga í það :?
70 ltr og 21ltr
12x stk gúbbí (21ltr)
1xalbínóa koparryksuga (21ltr)
1x Gibbi (70ltr)
1xAnchistrur (4-5.cm) (21ltr)
User avatar
sirarni
Posts: 624
Joined: 18 Jan 2009, 17:46
Location: Kópavogur

Post by sirarni »

ég held þú þurfir eitthvað sérstakt lím í það og svo er líka superglue ban eitrað.
User avatar
drepa
Posts: 136
Joined: 16 Feb 2009, 09:46
Location: Hafnarfjörður 220

Post by drepa »

veit ekki hversu mikið sannleikur er í að superglue er baneitrað en eitrað ábyggilega, ég skar mig einusinni doldið illa og læknirinn límdi mig samann og ég spurði hann hvernig lím þetta væri , hann sagði nokk sama og super glue nema bara sérhæft í þetta , svo sagði hann að superglue hefði verið fundið upp til að líma samann bilaða hermen í vietnam, enn ég sel það ekki dýrara enn ég keypti það.

t.d. limpits reef notar superglue gel til að stilla millispjöldinn í sumpinum sínum þegar hann er að fara kýtta. svo er líka til eitthvað spes aquarium superglue.

enn eins og sirarni segir þá mundi ég kanski forðast flest superglue t.d. byko og húsó nema þú veist nokkuð hvað er í þeim
User avatar
sirarni
Posts: 624
Joined: 18 Jan 2009, 17:46
Location: Kópavogur

Post by sirarni »

Ég held allavega að það sé baneitrað fyrir fiska ef það kemst í vatnið sem þeir lifa í en notaðu bara eitthhvað sem að þú veist að mun pottþétt ekki drepa fiskana þína og halda saman búrinu þínu :-)
User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Post by Sven »

Ég hef nú reyndar heyrt um að superglue sé notað í fiskabúrum, m.a. til að líma anubias á rætur, grót og þess háttar. Googlaðu þetta bara til að vera viss.
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Super Glue sem er gert úr Cyanoacrylate er aquarium safe super glue
Kv. Jökull
Dyralif.is
User avatar
Herra Plexý
Posts: 208
Joined: 11 Jan 2007, 13:17
Location: Vogar.
Contact:

Post by Herra Plexý »

Veistu hvenig plast er í búrinu?
Svo mikið til að gera, svo lítill tími.
Post Reply