Sverðdragarakarl

Guppy, endler, platy, sverðdragarar og aðrir gotfiskar

Moderators: Elma, Vargur

Post Reply
User avatar
Tigra
Posts: 42
Joined: 18 Sep 2008, 10:40

Sverðdragarakarl

Post by Tigra »

Var að fá mér sverðdragara í dag, einn karl og tvær kerlur og einn karlinn og önnur kerlingin liggja voðalega mikið.

Ég sá karlinn fyrst liggja upp við dæluna, en núna liggur hann á botninum bara. Fer einstaka sinnum og syndir smá hring, en leggst svo bara aftur út í horn.

Kerlingin er öllu hressari en liggur samt mikið á steini sem ég er með í búrinu.
Hin kerlingin er svaka spræk og syndir um með gúbbífiskunum eins og ekkert sé - og allir aðrir fiskar eru sprækir.


Nú hef ég lent í nitureitrun einu sinni og þá fóru fiskarnir að synda á ýmsa hluti og virtust ekki halda jafnvægi - en sverðdragarkarlinn syndir eðlilega - þ.e. þegar hann syndir... og sama með kerluna.
Ég veit að tegundir eru líka mis næmar fyrir svona... en er þetta eðlilegt?

Ég mældi nitrið fyrr í dag og það virtist í góðu lagi - en ég á ekki fleiri strimla til að mæla aftur. Ég gerði samt smá vatnsskipti til öryggis.

Eru einhverjar hugmyndir hvað þetta gæti verið?

Þegar þau komu í búrið var karlinn og slappari kerlan bara út í horni og svona til baka (eins og reyndar mjög margir fiskar eru þegar þeir koma fyrst í búr) en hressa kerlan fór strax að synda með gúbbífiskunum og er mikið í kringum þá núna.


Eitthvað sem þið mælið með að gera?
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Gæti verið stress. Ég mundi slökkva ljósin og gefa þeim frið til morguns og ath stöðuna þá.
User avatar
Tigra
Posts: 42
Joined: 18 Sep 2008, 10:40

Post by Tigra »

Ég gerði þetta og þau virðast nokkuð hress í dag. Þetta hefur líklega bara verið stress.

Takk fyrir það!
User avatar
Tigra
Posts: 42
Joined: 18 Sep 2008, 10:40

Post by Tigra »

Almáttugur minn hvað þessir sverðdragarar kúka.
Þau eru öll þrjú búin að vera skítandi bara síðan ég fékk þau - non stop!
Eru yfirleitt öll með svaka lengjur dinglandi neðan úr sér.

Hef aldrei vitað neina aðra af mínum fiskum skíta svona mikið! :o
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Þeir hafa sennilega bara fengið vel að éta áður en þeir komu til þín.
animal
Posts: 930
Joined: 07 Aug 2007, 22:49

Post by animal »

Já eða með niðurgang yfir að vera komin til þín :roll:
Ace Ventura Islandicus
User avatar
Tigra
Posts: 42
Joined: 18 Sep 2008, 10:40

Post by Tigra »

Já eitthvað er það.
Þeir eru ennþá bara kúkandi eins og þeim sé borgað fyrir það.
Eru líka ekkert að hafa fyrir því að reyna að slíta þetta af eins og ég hef séð suma fiska gera... þetta lafir bara margfalda lengd þeirra. (ég á Maingano síklíður sem verða oft pirraðar ef það eru komnar lengjur og slá sér utan í eitthvað til að losa það)

Stórfurðulegar skepnur.
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Þegar fiskarnir skíta svona þá er öruggt að þeir eru að fá eða hafa fengið allt of mikið að éta. Ef það er algengt að þetta sjáist á fiskum hjá þér þá er sennilega óhætt að minnka fóðurgjöfina um helming.
User avatar
Tigra
Posts: 42
Joined: 18 Sep 2008, 10:40

Post by Tigra »

Nei sverðdragarnir eru einu fiskarnir sem eru svona.
Það er kannski bara komin cm langur skítur hjá Maingano fiskunum þegar þeir fara að pirra sig á þessu... og það er líka frekar sjaldan sem ég sé þá gera þetta.
Sé fiskana mína bara yfirleitt mjög sjaldan skíta.

Kannski þessvegna sem mér finnst þetta svona furðulegt.

Engir aðrir fiskar í þessu búri skíta svona svakalega.
User avatar
Tigra
Posts: 42
Joined: 18 Sep 2008, 10:40

Post by Tigra »

Ég er búin að vera að horfa á fiskana og var allt í einu að fatta eitt...
Það er svolítið af þörungi í búrinu sem ryksugurnar okkar eru hægt og bítandi að vinna á... en ég sé fiskana stundum kroppa í þetta.

Getur verið að sverðdragarnir séu bara að éta yfir sig af þörungi?
Post Reply