Búr á byrjunarstigi

Almennar umræður um plöntur, lýsingu og annað sem viðkemur gróðurbúrum

Moderators: Vargur, prien, Sven, Stephan

Post Reply
User avatar
Ragnarvil
Posts: 122
Joined: 26 Dec 2008, 03:46
Location: Kópavogur / Keflavík
Contact:

Búr á byrjunarstigi

Post by Ragnarvil »

Jæja þá er ég búinn að láta búrið standa síðan á föstudaginn, er búinn að setja smá áburð í sandinn, vatnið og svo bakteriuflóru í dæluna og smá í vatnið. Ég er með heimatilbúinn Co2 reactor svo ég vona að plönturnar fari að taka kipp hjá mér.


Það sem ég hef mestar áhyggjur af eru plönturnar. Ég óttast að þær séu að visna hægt og bítandi. Þær líta svona út:


Image
Saururus cernuus.


Image
Samolus floribundus 1.


Image
Samolus floribundus 2.


Image
Echinodorus "Rose" eða sverðplanta.




Ég tók eftir því að blöðin eru aðeins tætt á sumum plöntunum kannist þið við þetta vandamál ? Hvað getur eiginlega verið að valda þessu ? Svo er líka ljótur brúnn litur á sumum blöðunum...

:shock:

Image
Svona lítur búrið út í heild sinni.
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

perur og gróðurnæring skipta líka máli, ertu með eitthvað spes svoleiðis fyrir plönturnar?
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
User avatar
Ragnarvil
Posts: 122
Joined: 26 Dec 2008, 03:46
Location: Kópavogur / Keflavík
Contact:

Post by Ragnarvil »

Ef allt er í lagi með sýrustig og hörku þá næ ég í fiskapöntunina mína á miðvikudaginn til Tjörva. Þetta verða allt smáfiskar ég er náttúrulega með svo lítið búr og pláss eins og er.

Í búrið fara:
~10 Cardinal Tetrur
~5 Dverggrannar
~6 Zebra Dannar
~2 Síams fljúgandi refir
~3 Kongó dvergfroskar

Þetta eru allt mjög smávaxnir fiskar minni en 3 cm fullvaxta, nema fljúgandi refirnir þeir verða alveg 10 - 15 cm. Vona að þeir verði ekki fyrir hvor öðrum :)
User avatar
Ragnarvil
Posts: 122
Joined: 26 Dec 2008, 03:46
Location: Kópavogur / Keflavík
Contact:

Post by Ragnarvil »

Lindared wrote:perur og gróðurnæring skipta líka máli, ertu með eitthvað spes svoleiðis fyrir plönturnar?
Já ég er með Sera florena fertilizer með járni setti um 10ml, svo er ég með Tetra Crypto rótarnæringu í töfluformi, ég braut 2 töflur í 3 parta hvora og dreyfði í sandinn í búrinu.

Peran sem ég er með er Aquastar 15W og ég læt hana glóa í 12 tíma á dag.
User avatar
Arnarl
Posts: 1233
Joined: 15 Feb 2008, 22:26

Post by Arnarl »

12 tímar á dag er Alltof mikið :shock: mæli með svona 8-10
Minn fiskur étur þinn fisk!
User avatar
Ragnarvil
Posts: 122
Joined: 26 Dec 2008, 03:46
Location: Kópavogur / Keflavík
Contact:

Post by Ragnarvil »

Arnarl wrote:12 tímar á dag er Alltof mikið :shock: mæli með svona 8-10
Flott ég tek þetta vel til greina, spurning hvort ég hafi þá tímann ekki 9 klst á dag. Það gæti hjálpað. Eruði með fleiri góð ráð ?
User avatar
Arnarl
Posts: 1233
Joined: 15 Feb 2008, 22:26

Post by Arnarl »

ertu ekki með tímarofa á ljósonum?
Minn fiskur étur þinn fisk!
User avatar
Ragnarvil
Posts: 122
Joined: 26 Dec 2008, 03:46
Location: Kópavogur / Keflavík
Contact:

Post by Ragnarvil »

Arnarl wrote:ertu ekki með tímarofa á ljósonum?
Jú ég er tímarofa úr byko var að kaupa hann í dag. Ég stillti hann á 13:20 - 22:20, læt hann slökkva á loftdælunni og ljósinu en hef dæluna og Co2 reactorinn í gangi allann sólahringinn.
User avatar
Arnarl
Posts: 1233
Joined: 15 Feb 2008, 22:26

Post by Arnarl »

ekki hafa kveikt á co2 á nóttinni þar sem plöntur nota co2 á daginn og gera súrefni en nota súrefni til að gera co2 á nóttinni þannig fiskarnir eiga eftir drepast úr súrefnisleysi svo þýðir lítið að hafa súrefnis dælu og co2 í gangi á sama tíma, þá ertu bara að eyða Kolsýruni. :-)
Minn fiskur étur þinn fisk!
User avatar
Ragnarvil
Posts: 122
Joined: 26 Dec 2008, 03:46
Location: Kópavogur / Keflavík
Contact:

Post by Ragnarvil »

Takið þið það úr sambandi á nóttunni ? Ég las nefninlega að það skapi ójafnvægi í PH á vatninu ? Mér fannst það eitthvað skrýtið að setja Co2 í vatnið þegar plönturnar eru ekki að nota það og fiskarnir framleiða það hvort eð er í ágætu magni.

Ég þarf að ná mér í próf til að skoða gæði vatnsins ég sá að það er selt í versluninni hér á spjallinu ætli maður taki ekki bara einn pakka.
User avatar
Hrafnkell
Posts: 321
Joined: 16 Mar 2007, 21:03
Location: Kópavogur

Post by Hrafnkell »

Arnarl wrote:ekki hafa kveikt á co2 á nóttinni þar sem plöntur nota co2 á daginn og gera súrefni en nota súrefni til að gera co2 á nóttinni þannig fiskarnir eiga eftir drepast úr súrefnisleysi svo þýðir lítið að hafa súrefnis dælu og co2 í gangi á sama tíma, þá ertu bara að eyða Kolsýruni. :-)
Það er allt í lagi að hafa CO2 í gangi á nóttunni, sérstaklega þegar það er bara úr einföldu gerjunarkerfi eins og sést á myndum hér.
Ég er með slíkt í gangi og miklu meira en það allan sólarhringinn og það er bara allt í góðu lagi hjá mér.

Hvað varðar plöntur visni getur það bara verið mjög eðlilegt ef um er að ræða nýjar plöntur úr búð eða plöntur úr allt öðru umhverfi. Blöðin eru vön allt öðrum aðstæðum og plantan þarf að laga sig að nýjum aðstæðum. Flestar plöntur sem seldar eru í búðum eru ekki ræktaðar í vatni t.d.
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Brúnu skellurnar á plöntunum er þörungur - flestar þörungaætur éta brúnan þörung með bestu lyst.

Annars hittir Hrafnkell naglann í höfuðið - það er algengt að nýjar plöntur visni áður en þær taka við sér í nýjum aðstæðum.


Edit: Skrifaði Sven, átti að vera Hrafnkell ;)
Last edited by keli on 05 Jan 2009, 10:37, edited 1 time in total.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Post by Sven »

Með loftdæluna, þá skalt þú mikið frekar hafa hana í gangi á nóttunni en ekki á daginn.
Á daginn þarft þú að reyna að halda eins miklu af kolsýrunni í vatninu og þú getur, það þýðir að halda vatnsyfirborðinu lygnu. þetta snýst hinsvegar við á nóttunni, þá þarftu að koma súrefni í vatnið og því gott að hafa loftdælu í gangi. En þar sem að þú ert ekki með neina fiska, þá þarftu í raun ekkert að vera með loftdæluna yfir höfuð þangað til þeir koma.
Eins og Hrafnkell og Keli benda á þá eru plöntur oft mjög vesælar til að byrja með, enda margar þeirra ekki ræktaðar í vatni og fá því sjokk þegar þær fara í vatn og eru nokkuð ljótar í einhvern tíma.
Ertu búinn að vera með þessar lengi? Þær líta út fyrir að hafa ekki verið í mikilli lýsingu, brúnþörungurinn bendir til þess.
Varðandi rótartöflurnar, þá mundi ég bara setja þær niður hjá echinodorusnum, og þá svona 5-6 cm frá honum. Þar sem þú ert að gefa næringu í vatnið, þá menga hinar rótartöflurnar bara.
User avatar
Ragnarvil
Posts: 122
Joined: 26 Dec 2008, 03:46
Location: Kópavogur / Keflavík
Contact:

Post by Ragnarvil »

Snilld ég prófa þetta. Bara einn galli, hafiði fundið leið til að lækka hávaðann í loftdælunni ? Mér finnst svo pirrandi surg í henni samt mun betri en sú sem ég var með á undan, þessi sem ég er með núna er glæný og er silent en hljóðið finnst mér samt frekar hátt hehe.

Ætli það sé ekki framleitt einhver svampur utan um hana eða box til að drepa hljóðið aðeins niður ?
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Það er gott að smella þeim ofaná eitthvað mjúkt, t.d. svamp.. Það minnkar hljóðið. Svo virkar ágætlega líka að hengja hana upp inní dæluskápnum.

Annars heyrist svolítið í öllum svona loftdælum fyrir venjuleg búr.. Mér hefur þó þótt tetra dælurnar vera hvað lágværastar.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Urriði
Posts: 78
Joined: 10 Oct 2008, 15:30
Location: Rvk

Post by Urriði »

Kaupir svamp til að þrýfa bíla. Skerð út fyrir dælunni, þannig að hún nái inn lofti. Stingur dælunni ofní og málið er dautt. Þetta hfur reynst vel.
Tommi
Posts: 50
Joined: 16 May 2007, 10:16
Location: Grindavík

Post by Tommi »

12 tímar á dag er Alltof mikið mæli með svona 8-10
Ég myndi halda að 8 klukkutíma lýsing væri of lítið. Við miðbaug þar sem margar vatnaplöntur finnast skín sólin í 12 tíma á dag, allt árið. Tólf tíma lýsing hefur gefist vel hjá mér. Allavega kvarta plönturnar ekki ;)
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Já, plönturnar eru líka í mörgum tilfellum neðar í vatninu sem að minnkar lýsingu, ég hef alltaf kveikt í 10 tíma.
400L Ameríkusíkliður o.fl.
User avatar
Ragnarvil
Posts: 122
Joined: 26 Dec 2008, 03:46
Location: Kópavogur / Keflavík
Contact:

Post by Ragnarvil »

Urriði wrote:Kaupir svamp til að þrýfa bíla. Skerð út fyrir dælunni, þannig að hún nái inn lofti. Stingur dælunni ofní og málið er dautt. Þetta hfur reynst vel.
Þetta er snilld ég geri þetta.

Ég fer bara milliveginn og læt ljósið skýna í 10 tíma það ætti ekki að breyta svo miklu.
User avatar
Ragnarvil
Posts: 122
Joined: 26 Dec 2008, 03:46
Location: Kópavogur / Keflavík
Contact:

Post by Ragnarvil »

Þá er maður búinn að fjárfesta í fleiri plöntum og hluti af fiskunum eru komnir smá sýnishorn:

Image
Tetrurnar eru cardinal tetrur

Image
Þessir brúnu eru firecrackers sem ég fékk hjá Tjörva í furðufuglum.

Image
Fiskarnir urðu sérstaklega órólegir þegar þeir sáu myndavélina áður en ég tók mynd.
Post Reply