jæjaa gott fólk :)

Spurningar og svör um uppsetningu búra, sjúkdóma, hvaða fiskar passa saman osf.

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

User avatar
lilja karen
Posts: 536
Joined: 14 Oct 2007, 21:21
Location: Akureyri. 17 ára

jæjaa gott fólk :)

Post by lilja karen »

Ég loksins fór i það og fékk mer eitt stk 200l bur!
Ég var að spá, hvað yrði svona flottast og gáfulegast að setja i það (semsagt fiska :wink: )
uppástungur og ráðleggingar eru vel þegnar. !! :P
User avatar
pípó
Posts: 1172
Joined: 05 Apr 2007, 09:28

Post by pípó »

Discusa :wink:
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Til hamingju með búrið, flott hjá þér.

Það er spurning hvaða fiskar höfða mest til þín og þér finnst flottastir.
Viltu hafa gróður, hrjóstrugt, litfagra gotfiska eða klikkaðar síkliður?

Skoðaðu myndir, það er t.d. mikið af myndum af fiskum hér á spjallinu og er Guðmundur líka með góða síðu http://www.fiskabur.is
Svo googlaru og þreifar þig aðeins áfram.
You can fool some people sometimes, but you can´t fool all the people all the time.
User avatar
gudrungd
Posts: 1301
Joined: 03 Mar 2008, 11:19
Location: 108, Rvk

Post by gudrungd »

hmm....... hvernig væri að byrja á fá að vita t.d. hvað þér finnst flott?.... viltu plöntur/ekki plöntur, viltu gotfiska, síkliður, amerískar eða afrískar, tetrur, fiska sem þú getur nærri því klappað eða sem bíta í puttana á þér? Þú hlýtur að hafa einhverja hugmynd og svo getur þú fengið upplýsingar hérna hvað passar saman og hvernig er best að gera þetta! :D
User avatar
lilja karen
Posts: 536
Joined: 14 Oct 2007, 21:21
Location: Akureyri. 17 ára

Post by lilja karen »

Vááá likar vel við þessa uppástungu !! .. enn er ekki svoddan vesen að hafa þá .. þá meina eg fyrir byrjenda eins og mig sem hefur ekkert att nema gubby !?!
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

High5 gudrung, við erum alveg í takt :-)
You can fool some people sometimes, but you can´t fool all the people all the time.
User avatar
gudrungd
Posts: 1301
Joined: 03 Mar 2008, 11:19
Location: 108, Rvk

Post by gudrungd »

ekkert smá kjánaleg að sjá að einhver er búinn að skrifa nákvæmlega það sama og maður sjálfur :lol: mín reynsla er að gúbbí eru ekkert sérstaklega auðveldir svo að ef þér gekk vel með þá, gengur þér örugglega vel með það sem þér dettur í hug. Þú verður bara að fá heimboð hjá öllum hérna til að sjá hvað þér finnst flott! :dansa:
User avatar
lilja karen
Posts: 536
Joined: 14 Oct 2007, 21:21
Location: Akureyri. 17 ára

Post by lilja karen »

hahaha .. váá .. vorum allar 3 álveg i takt :P
enn jaa mer gekk mjög vel með gubbana og lenti i engu veseni með þá..
enn jaa .. eg er ákveðin i að hafa gróður.. finnst það bara svo fallegt og róandi eh.. og er að reyna að finna mer co2 sistemi til að sa draumur rætist :P
haha.. pabbi verður örugglega ekkert serstaklega sattur þegar draumarnir fara að hlaðastu upp með fiskaburið :twisted:
þott að mer gruni að hann se jafnt spenntur og eg nema syni það ekki...... :roll:
User avatar
lilja karen
Posts: 536
Joined: 14 Oct 2007, 21:21
Location: Akureyri. 17 ára

Post by lilja karen »

áhvað að skella þessu herna inna lika ... hvað kostar CO2 i dýrabúðum.. veit það einhver ?
User avatar
Höddi
Posts: 176
Joined: 30 Jul 2007, 14:46
Location: Kópavogur

Post by Höddi »

Ég keypti stiga fyrir Co2 í fiskó fyrir skömmu, kostaði 2.500 ef ég man rétt.
Svo er hagstæðast að þú blandir bara sjálf á flöskur. Þú getur fundið allar upplýsingar um það hér á síðunni.
ZX-6RR
User avatar
gudrungd
Posts: 1301
Joined: 03 Mar 2008, 11:19
Location: 108, Rvk

Post by gudrungd »

Vargur er með einfalt heimabrugg system til sölu hérna á síðunni, ég er búin að nota sambærilegt í dáldinn tíma, ætlaði að skipta yfir í kút en það var það dýrt að ég hætti við.
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

mér langar að koma með smá uppástungu

getur sett í búrið:

Einhverjar tetru tegundir, það eru til margar mjög fallegar, bestar saman í hóp og eru einnig ódýrar og einfaldar í umgengni
t.d rummy nose, demantatetrur, congo tetrur, svart neon netrur, neon eða cardinal tetrur og black widow tetrur

með þeim er hægt að hafa fallega botnfiska, einhverja plegga, corydoras, ancistrur, bótiur og svo framvegis.

getur haft SAE og otocinclus

par af dvergsíklíðum, t.d Ramirezi eða Altispinosa

molly: t.d segl molly, dalmtíu molly eða black molly
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
Gremlin
Posts: 260
Joined: 04 Nov 2007, 20:03
Location: Grafarvogur 112. Reykjavík

Post by Gremlin »

Ég ætla að stinga uppá Regnbogasíkliðum. Virkilega fallegar og skemmtilegar.
ulli
Posts: 2777
Joined: 08 May 2007, 00:45
Location: Ísland

Post by ulli »

Sjávar fiskar og kórallar.
ef þetta á að vera gróðurbúr þá mæli ég sterklega með að kaupa nýjar perur.

ertu kominn með búrið?
User avatar
lilja karen
Posts: 536
Joined: 14 Oct 2007, 21:21
Location: Akureyri. 17 ára

Post by lilja karen »

næjjj.. ekki enn .. en ég bið spennt eftir þvi :P
Gudmundur
Posts: 2115
Joined: 20 Sep 2006, 14:30
Location: Kópavogur
Contact:

Post by Gudmundur »

byrjaðu bara með einfaldar plöntur og þá þarftu ekkert að hafa áhyggjur af co2 eða perum

þetta búr var sett upp sept 2006
Image
ekkert co2 engin gróðurnæring engin peruskifti

sept 2008
eina sem er gert er að taka slatta af gróðri úr búrinu reglulega svo fiskarnir hafi sundstaði og einstaka vatsskifti
Image
þetta er aðallega java fern sem er svona hrikalega einföld planta
auðvitað þyrfti að snyrta gróðurinn betur til að gera búrið flottara og nýjar perur mundu draga úr líkum á þörungi en það er önnur saga

fleiri myndir frá sept 08 af gróðrinum
http://www.fiskabur.is/myndir_vefur/Gre ... iskar6.htm
www.fiskabur.is
skemmtileg heimasíða
User avatar
gudrungd
Posts: 1301
Joined: 03 Mar 2008, 11:19
Location: 108, Rvk

Post by gudrungd »

Þegar ég var komin upp í rúm í gærkvöldi þá fór ég að hugsa.. (ok. ég er meðvirk :shock: ) skoðaðu fiskana í búðunum og spurðu um þá sem þér finnst spennandi, líka um verðið þar sem það er frekar fúlt að vera orðinn heitur fyrir fiskum og komast að því að þeir kosta 15 þús stykkið og þurfa helst að vera 5 í hóp. skrifaðu niður nöfnin og skoðaðu á netinu þegar þú kemur heim og getur spáð betur í hvað passar saman og hvað þeir þurfa mikið pláss. Upplýsingarnar í búðunum eru stundum ekki alveg réttar og stundum bara hreinlega rangar. Það er líka pirrandi að langa í fiska sem eru jafnvel ekki fluttir inn nema einstöku sinnum. :takk: mér finnst hrikalega gaman að sjá áhugasama krakka hérna! (sorry, mamma dauðans!)
User avatar
lilja karen
Posts: 536
Joined: 14 Oct 2007, 21:21
Location: Akureyri. 17 ára

Post by lilja karen »

hahaha... enn eg vil bara þakka öllum sem syndu þessum þráði áhuga.. og þvi hafið hjalpað mer mjög mikið og eg er bara virklega þakklát fyrir það..!! :O :D
ulli
Posts: 2777
Joined: 08 May 2007, 00:45
Location: Ísland

Post by ulli »

Náðiru í búrið í dag?.

var ekki allt i lagi með allt?
User avatar
lilja karen
Posts: 536
Joined: 14 Oct 2007, 21:21
Location: Akureyri. 17 ára

Post by lilja karen »

heyrði neii.. eg kommst ekki i það að na i það i dag .. það var lokað svo snemma. þannig eg fer i það a mrg eða hinn. !
User avatar
lilja karen
Posts: 536
Joined: 14 Oct 2007, 21:21
Location: Akureyri. 17 ára

Post by lilja karen »

Heyrðu búrið er komið og eg langleiðina buin að setja það upp :P :D :wink:
User avatar
gunnarfiskur
Posts: 298
Joined: 18 Jun 2008, 15:30

Post by gunnarfiskur »

mæli með að setja oscara og kannski corydas með litlar tetrur
oskararnir gefa þessu svaka mikinn karakter og hinir sja um að skemmt aþeim er með oskara sjalfur og karakterinn er svakalegur
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

gunnarfiskur wrote:mæli með að setja oscara og kannski corydas með litlar tetrur
oskararnir gefa þessu svaka mikinn karakter og hinir sja um að skemmt aþeim er með oskara sjalfur og karakterinn er svakalegur
Óskara með litlum tetrum og corydoras ?! :shock:
Óskarinn étur hvoru tveggja eins og snakk.
User avatar
Bob
Posts: 531
Joined: 07 Dec 2008, 21:06
Location: Reykjavík

Post by Bob »

var einmitt að hugsa um þetta.... sá það ekki alveg fyrir mér að ganga upp. :?
Ekkert - retired
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Já þetta með tetrurnar og Cory virkar eins á óskarana eins og Doritos á okkur fólkið. SNAKK. Reyndar ef að óskararnir geta einfaldlega ekki náð tetrunum getur verið gaman að horfa á eltingaleik. :)
400L Ameríkusíkliður o.fl.
User avatar
Bob
Posts: 531
Joined: 07 Dec 2008, 21:06
Location: Reykjavík

Post by Bob »

já en maður setur bara tetrurnar útí til þess eins að horfa á eltingarleikinn. setur þær ekki útí til að vonast til að þær lifi af. myndi allavega ekki gera það persónulega
Ekkert - retired
User avatar
gunnarfiskur
Posts: 298
Joined: 18 Jun 2008, 15:30

Post by gunnarfiskur »

er með 14 cm oscar og 2 3cm corydas og allt i friði
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

gunnarfiskur wrote:er með 14 cm oscar og 2 3cm corydas og allt i friði
For now.
400L Ameríkusíkliður o.fl.
User avatar
Bob
Posts: 531
Joined: 07 Dec 2008, 21:06
Location: Reykjavík

Post by Bob »

ég held að það sé bara tímaspursmál hvenar þú vaknar upp og sérð að þú ert ekki lengur með cory hjá þér :?
Ekkert - retired
User avatar
gunnarfiskur
Posts: 298
Joined: 18 Jun 2008, 15:30

Post by gunnarfiskur »

afhverju ætti hann einhvað frekar að fara i cory en brusk þeir alast upp saman og lata hvorn anan vera
Post Reply