Ja það er a næstuni að gera lok. bara ekki mikið um aurinn þessa dagana. en ja lokin eru flott. er að fara skera mitt ut ur malmi og eftir að rivetta það. svo verður það malað eftir lit sem kaupandinn vill.
Keypti búr af Leifi og það er óhætt að mæla með þessum búrum.
Frágangur til fyrirmyndar,kittunin eins og eftir fagmann og vel frágengið i alla staði. og ekki er hægt að kvarta undan verðinu.
Það er ekkert mál fyrir laghenta að smiða lok yfir svona búr.
gudrungd wrote:hmm..... son sinn? Bur? ég ekki skilja......145l.??? hvernig er hægt að misskilja þetta? er ég ekki að fatta eitthvað djók?
Ég fattaði þetta fljótlega, en þetta var það fyrsta sem kom upp í hugann.
Þú hefur ábyggilega heyrt, þau áttu börn og buru, sem þýðir þau áttu börn og son. Það þótti svo mikilvægt að eiga son í gamla daga að það var sérstaklega tekið fram
"145 lítra sonur fæst í skiptum fyrir hestvagn sem rúmar 3 farþega, 2 kindur og 4 kálfa. einnig möguleiki að taka 2 góða reiðhesta uppí. Hann étur mjög mikið en er góður í að þvo þvott. "
Last edited by gudrungd on 05 Dec 2008, 19:08, edited 1 time in total.
gudrungd wrote:"145 lítra sonur fæst í skiptum fyrir hestvagn sem rúmar 3 farþega, 2 kindur og 4 kálfa. einnig möguleiki að taka 2 góða reiðhesta uppí. Hann étur mjög mikið en er góður í að þvo þvott. "
He He. bara fyndið. ég afsaka villuna hjá mér. BÚR. Hvað fólk nenir að spá í svona. og gudrun takk fyrir mig. vonandi að ég get glatt fleiri kaupendur.
ég passa upp á mitt heimafólk! Reyndar finnst mér kjánalegt að láta stafsetningarvillur trufla mig, það er fullt af fólki sem er líka lesblint, ekki fæddir íslendingar og bara ekki mjög gott í stafsetningu þarna úti, maður þarf ekkert að missa sig yfir því!
leifur0707 wrote:He He. bara fyndið. ég afsaka villuna hjá mér. BÚR. Hvað fólk nenir að spá í svona. og gudrun takk fyrir mig. vonandi að ég get glatt fleiri kaupendur.
Æ, æ, ég sem hélt að ég hefði verið að segja besta brandarann.
Jæja, það er víst ljótt að setja út á, sérstaklega stafsetningu, ég játa mig sekan
En þið verðið bara að fyrirgefa mér að vita muninn á bur og búr. Ég skal reyna að segja ekki aftur frá því sem mér finnst fyndið við ranga stafsetningu, en ég lofa samt engu.
Ps.
gudrungd, ég skal passa mig að missa mig ekki svona algjörlega yfir svona löguðu aftur, ég er eiginlega alveg eyðilagður maður yfir því að hafa minnst á þetta
var að fá 2 búr frá honum, 80x38x38.... er ekki búin að setja vatn í þau en frágangurinn er alveg til fyrirmyndar... ekkert að því að hafa þessi búr í stofunni!