Ég hef lesið það hér á spjallinu að bakgrunnar fólks hafa flotið upp, sennilega vegna þess að sílikonið hefur ekki náð að þorna.
Það gæti verið góð leið að nota double tape með sílikoninu. Það heldur þá bakgrunninum meðan sílikonið er að þorna. Setja búta af double tape hér og þar.
Fyrir þá sem ekki vita hvað double tape er, þá er það límband með lími á báðum flötum og hægt er að fá það í fleiri en einni þykkt. Ég mæli með því að ekki sé notað næfurþunnt double tape því þá verður lítið bil á milli bakgrunns og glers, sem þýðir að erfiðara verður að skera bakgrunninn frá ef maður vill breyta til seinna.
Líming bakgrunna
Moderators: Vargur, keli, Squinchy
Þolinmæðin er betri kosturinn og hún kostar ekkert
Gott er að bíða 42 tíma, Og þrífa glerið með asinton
Gott er að bíða 42 tíma, Og þrífa glerið með asinton
Kv. Jökull
Dyralif.is
Dyralif.is
Þolinmæðin er góð, en sumir virðast hafa minna af henni en aðrirSquinchy wrote:Þolinmæðin er betri kosturinn og hún kostar ekkert
Gott er að bíða 42 tíma, Og þrífa glerið með asinton
Það vinnst í það minnsta tvennt við að nota double tape með sílikoni.
1. Bakgrunnurinn verður strax fastur á sínum stað og minni hætta er á að hann fljóti upp.
2. Hægt er að byrja strax á að prófa hinar ýmsu uppsetningar í búrinu án vatns, án þess að hann fari á hreyfingu.
Hér eru smá tækniupplýsingar um sílikon:
http://www.henkel-technical-services.co ... 0945TD.pdf