stressaðir gullfiskar ! HJÁLP ! ?

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
telmabjorg
Posts: 11
Joined: 29 Aug 2008, 23:50

stressaðir gullfiskar ! HJÁLP ! ?

Post by telmabjorg »

á tvo svona gullfiska : http://www.edupics.com/goldfish-t8402.jpg

og ég er með þá í stórri kúlu með sandi og einum plastgróðri og ég hef kúluna fyrir neðan sjónvarpið mitt í svona hillusamstæðu !:)

málið er að þeir eru alltaf svo þvílíkt stressaðir, skjótast um allt á milljón.. ef ég labba framhjá, ef ég opna hurðina á skápnum eða skúffu eða jafnvel bara þegar ég gef þeim að borða !!

hvað ætli það sé? þeir hafa verið svona frá því að ég keypti þá, fyrstu 5 dagana hreyfðu þeir sig varla..

er farin að hafa frekar miklar áhyggjur.. búin að eiga þá í svona 2 mánuði..

hefði haldið að þetta væri ef að börn væru búin að vera að fikta í þeim, en það hafa engin börn komið inná heimilið mitt síðan ég fékk þá !
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Re: stressaðir gullfiskar ! HJÁLP ! ?

Post by Vargur »

telmabjorg wrote: og ég er með þá í stórri kúlu með sandi og einum plastgróðri og ég hef kúluna fyrir neðan sjónvarpið mitt í svona hillusamstæðu !:)
Svona hvernig ?
Annars þurfa þessir fiskar talsvert sundpláss og henta engan vegin í kúlu.
Það gæti verið ástæða fyrir stressinu.
User avatar
SteinarAlex
Posts: 293
Joined: 10 Feb 2008, 17:44

Post by SteinarAlex »

Fáðu þér bara búr undir þá, þá myndi þeim líða betur
telmabjorg
Posts: 11
Joined: 29 Aug 2008, 23:50

..

Post by telmabjorg »

en þessi kúla er rosalega stór sko ..

kærastinn minn á venjulegan gullfisk í lítilli kúlu og hann hefur voðalega gaman af lífinu..

skil ekki þetta stress . gæti þetta ekki verið einhvað annað en búrið ? við vorum alltaf með 2 gullfiska i þessu búri áður .. og þeir voru ekki svona smeikir..
User avatar
kiddicool98
Posts: 907
Joined: 04 Sep 2008, 16:13
Location: 104 rvk
Contact:

Post by kiddicool98 »

þessi tegund má ekki vera í kúlu! ef þú villt endilega hafa 2 gullfiska í KÚLU þá skaltu fá þér slæðusporða.
kristinn.
-----------
215l
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

kiddicool98 wrote:þessi tegund má ekki vera í kúlu! ef þú villt endilega hafa 2 gullfiska í KÚLU þá skaltu fá þér slæðusporða.
Og á hverju byggirðu þá ályktun?
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Já mjög sammála Kela, skiptir engu máli hvort að þeir séu í kúlu eða ferhyrndu búri :)
400L Ameríkusíkliður o.fl.
User avatar
gudrungd
Posts: 1301
Joined: 03 Mar 2008, 11:19
Location: 108, Rvk

Post by gudrungd »

kiddicool98 wrote:þessi tegund má ekki vera í kúlu! ef þú villt endilega hafa 2 gullfiska í KÚLU þá skaltu fá þér slæðusporða.
Sammála Keli.... ég hef aldrei séð neitt sem segir að það sé í lagi að hafa eina tegund gullfiska í kúlu en ekki aðra...... eini fiskurinn sem virkilega þolir að vera í kúlu er bardagafiskur. Getur verið að þeir séu bara stressaðir að eðlisfari? Það að hreyfa sig mjög lítið til að byrja með eru líka stressviðbrögð. Kannski eru þetta bara ekki góð eintök sem þú fékkst. :?
telmabjorg
Posts: 11
Joined: 29 Aug 2008, 23:50

..

Post by telmabjorg »

nei ég ákvað að skella þeim bara í búrið hennar mömmu 120 lítra búr og þeir eru bara mjög ánægðir þar.

En ég hef aftur á móti aldrei heyrt að gullfiskar eiga ekki að vera í kúlu !

ætla bara að prufa að fá mér einn gullfisk núna og sjá hvernig honum á eftir að líða, annars skelli ég honum bara í stóra búrið líka :)
User avatar
naggur
Posts: 494
Joined: 29 Aug 2007, 21:05
Contact:

Post by naggur »

ég átti líka svona comet (halastjörnugullfiskur) gullfisk (fiskur no 2 frá upphafi) og já ég verð bara að segja það að þeir eru eins og flugeldur í vatni (út um allt) líka að hann réðist á hinn fiskin sem ég átti (slæðusporður) og tætti sporðinn upp.

enda skilaði ég honum.

hér er smá upl. um comet:
http://www.aquaticcommunity.com/goldfish/comets.php
german blue ram (4 stk.)
tetrurnar 11
taugaveiklaði perlugúraminn
gullrún gúrami
já og síkliðan sem ég hélt að væri dauð :) sem er núna DAUÐ
User avatar
kiddicool98
Posts: 907
Joined: 04 Sep 2008, 16:13
Location: 104 rvk
Contact:

Post by kiddicool98 »

fékk þessar upplýsingar í Dýraríkinu. þeir meiga sosem alveg vera í kúlu en það er ekki eikkað til að mæla með.
kristinn.
-----------
215l
User avatar
gudrungd
Posts: 1301
Joined: 03 Mar 2008, 11:19
Location: 108, Rvk

Post by gudrungd »

Hmmm..... held að reynslan sýni að ráðleggingar héðan eru oftast öruggari en í stórum verslunum með mis vel upplýstu starfsfólki. Það eru líka til verslanir sem sérhæfa sig í fiskum með starfsfólki sem hefur margra ára og áratuga reynslu sem vill ekki bara selja þér og láta þig halda að það viti hvað það er að gera.
User avatar
naggur
Posts: 494
Joined: 29 Aug 2007, 21:05
Contact:

Post by naggur »

kiddicool98 wrote:fékk þessar upplýsingar í Dýraríkinu. þeir meiga sosem alveg vera í kúlu en það er ekki eikkað til að mæla með.
segir allt sem segja þarf. held að réttast sé að læsa þessum þræði
german blue ram (4 stk.)
tetrurnar 11
taugaveiklaði perlugúraminn
gullrún gúrami
já og síkliðan sem ég hélt að væri dauð :) sem er núna DAUÐ
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Auðvitað meiga gullfiskar vera í kúlu og það er vel hægt að bjóða gullfisk sæmilegt líf í kúlu með góðri umhirðu og daglegum vatnsskiptum.
Hefðbundin gullfiskakúla er hins vegar ekkert sérstaklega spennandi staður fyrir fisk og fæstir nenna að standa í daglegum vatnsskiptum.
Katarína
Posts: 9
Joined: 06 Sep 2008, 11:16

katarína

Post by Katarína »

hled að þú ættir bara að fá þér sterra búr,, :D eða prufa að breida um lögun á búrinu þeirra :P Ertu með steina eða einhvað þannig þeir geta sint í gegnum eða einhvað :roll: en prufaðu að gera einhvað :d
telmabjorg
Posts: 11
Joined: 29 Aug 2008, 23:50

..

Post by telmabjorg »

þeir eru komnir í stærra búr:) erum með 120l búr og ég setti þá í það.
Post Reply