Kostnaður við lítið heimasmíðað búr

Búrasmíði, bakgrunnar, lok osf

Moderators: Vargur, keli, Squinchy

Post Reply
User avatar
Sirius Black
Posts: 842
Joined: 12 Oct 2007, 19:11
Location: Hafnarfjörður

Kostnaður við lítið heimasmíðað búr

Post by Sirius Black »

Jæja ég hef verið að spá bara, en maður er bara að heyra af svona heimasmíðuðum búrum sem að eru nokkur hundruð lítra búr, en núna langaði mig að spyrja hvort að það sé hægt að búa til bara kannski 40-50L heimasmíðað búr og hvort að það myndi borga sig?
200L Green terror búr
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Ef þú átt glerið fyrir, þá borgar það sig líklega. Ef þú þarft að láta skera fyrir þig glerið og allt það, þá tekur það því líklega ekki.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Sirius Black
Posts: 842
Joined: 12 Oct 2007, 19:11
Location: Hafnarfjörður

Post by Sirius Black »

keli wrote:Ef þú átt glerið fyrir, þá borgar það sig líklega. Ef þú þarft að láta skera fyrir þig glerið og allt það, þá tekur það því líklega ekki.
Já ok, á nefnilega ekki glerið né neitt í þetta :) langaði bara svona að forvitnast um þetta :)
200L Green terror búr
User avatar
skarim
Posts: 96
Joined: 10 May 2007, 16:34
Location: Hfj

Post by skarim »

60x30x30 kostaði mig circa 3000-4000 þús
Silikonið circa 800 kr
Málingartape circa 300kr

Töluvert ódýrara en að kaupa verksmiðjuframleitt
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Ég var að smíða 83x40x40 og það kostaði mig 6-7þús með öllu. Það er hinsvegar ekkert ofurfallegt nema maður noti svart kítti. Annars er maður aðallega að borga fyrir lokið á verksmiðjuframleiddum búrum - það eru lokin sem gera búrin falleg.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
vkr
Posts: 166
Joined: 02 May 2008, 23:55

Post by vkr »

keli wrote:Ég var að smíða 83x40x40 og það kostaði mig 6-7þús með öllu. Það er hinsvegar ekkert ofurfallegt nema maður noti svart kítti. Annars er maður aðallega að borga fyrir lokið á verksmiðjuframleiddum búrum - það eru lokin sem gera búrin falleg.

Voðalega finnst mér þetta vel sloppið :shock: ..
Ég talaði við þá hjá íspan um daginn og ætlaði að tjasla saman búri sem
átti að vera 100*40*40 úr 6mm gleri.
Það besta sem þeir gátu gert var 17þús og eitthvað ..
Ég var ekki sáttur, þá þóttist hann eitthvað gera og græja og sló af
þessu verði 2000kall ég gat ekki annað en hlegið af þessu okri :shock:
Þið eruð asnar og ég er fífl..
Þess vegna getum við verið vinir;)
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Galdurinn er að láta þá ekki gera neitt nema skera glerið - Slípunin er það sem dregur verðið upp undir eins. Svo nota ég bara stein sem er notaður til að brýna hnífa (brýnistein?) og pússa kantana með honum þegar ég er búinn að setja búrin saman.

Þessi verð sem ég gaf upp eru með gleri frá íspan, án alls afsláttar - ég er apparently ekki nógu góður til að fá afslátt ;)

Svo er maður í svona 1klst að setja þetta saman, með uppstillingu, kíttí og svo pússa kantana þegar það er liðinn sólarhringur.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Sirius Black
Posts: 842
Joined: 12 Oct 2007, 19:11
Location: Hafnarfjörður

Post by Sirius Black »

keli wrote: Annars er maður aðallega að borga fyrir lokið á verksmiðjuframleiddum búrum - það eru lokin sem gera búrin falleg.


Já mér finnst einmitt búr verða að vera með loki til að vera mjög flott, þó að maður hafi nú séð hér á spjallinu loklaus búr sem að eru mjög flott.

En ég er hætt að pæla í svona heimasmíðuðu þar sem að mig langar að hafa lok og ef að maður kaupir lok þá er verðið orðið svipað held ég, með svona lítið búr , eins og ef að ég hefði keypt það bara í dýrabúð með loki og öllum græjum :)
200L Green terror búr
ulli
Posts: 2777
Joined: 08 May 2007, 00:45
Location: Ísland

Post by ulli »

aðeins að forvitnast.hvernig setjið þið búrinn ykkar saman.eða hvað notiði til að fá bil á milli glersins til að kýtið komist á milli?
sjálfur hef ég notað eldspýtur.
User avatar
skarim
Posts: 96
Joined: 10 May 2007, 16:34
Location: Hfj

Post by skarim »

Þetta er góð síða hvað varðar að setja búr saman.

http://www.austinglass.com.au/aquariums.html
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Ég nota eldspýtur, tek þær í burtu rétt áður en ég byrja að kítta.

Svo passa ég að gera ráð fyrir 2mm bili allsstaðar þegar ég panta glerið (auka 2mm hér og þar og svona)
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Birgir Örn
Posts: 207
Joined: 03 Jan 2008, 20:55
Location: 201 Kóp Aldur: 23 ára

Post by Birgir Örn »

Ég er ekki alveg að skilja hvar vilji þið hafa bil á milli glerjana?
Birgir Örn

396l Convict, Black Band, JD, RT, Marmara Pleggi,Gibbi og fl.
60l Tiger Shovelnose og ancistur(grow out búr)
User avatar
vkr
Posts: 166
Joined: 02 May 2008, 23:55

Post by vkr »

Birgir Örn wrote:Ég er ekki alveg að skilja hvar vilji þið hafa bil á milli glerjana?
Bara bil til þess að koma siliconi á milli ;)
Þið eruð asnar og ég er fífl..
Þess vegna getum við verið vinir;)
User avatar
Piranhinn
Posts: 917
Joined: 22 Apr 2007, 15:55
Location: Hafnarfjörður
Contact:

Brýni

Post by Piranhinn »

keli wrote:Galdurinn er að láta þá ekki gera neitt nema skera glerið - Slípunin er það sem dregur verðið upp undir eins. Svo nota ég bara stein sem er notaður til að brýna hnífa (brýnistein?) og pússa kantana með honum þegar ég er búinn að setja búrin saman.

Þessi verð sem ég gaf upp eru með gleri frá íspan, án alls afsláttar - ég er apparently ekki nógu góður til að fá afslátt ;)

Svo er maður í svona 1klst að setja þetta saman, með uppstillingu, kíttí og svo pússa kantana þegar það er liðinn sólarhringur.
Brýnisteinn=Hverfisteinn/nátturubrýni. Og btw, þá er ekki nauðsynlegt að búa til bil milli glers og kíttis og persónulega kýs ég að nota "milligrófan" sandpappír í að slípa niður glerkantana, works like a charm.
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Það er nauðsynlegt að hafa bil á milli þegar maður er að gera búr í stærri kantinum. Ég notaði sandpappír fyrst, en svo varð ég of ákafur og reif hann og skar mig á glerinu þannig að ég nota bara steininn - öruggara :)
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Piranhinn
Posts: 917
Joined: 22 Apr 2007, 15:55
Location: Hafnarfjörður
Contact:

Post by Piranhinn »

já, það er rétt :lol: safe is better.
En svo með kíttunina þá er bara hægt að setja kítti á endilanga gler endann áður enn þú leggur hliðina að og slétta svo úr því sem klessist út úr samskeytunum... Kítta svo innan á glerið þegar þetta er þornað ef þörf þykir á.
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Piranhinn wrote:En svo með kíttunina þá er bara hægt að setja kítti á endilanga gler endann áður enn þú leggur hliðina að og slétta svo úr því sem klessist út úr samskeytunum... Kítta svo innan á glerið þegar þetta er þornað ef þörf þykir á.
Það er ekki alveg jafn auðvelt og það hljómar :)
Það er ágætis ástæða fyrir því að það er mælt með því að stilla upp öllu draslinu fyrst og kítta svo - það er einfaldlega miklu miklu þægilegra, believe me :)

Ég hef amk prófað þessar báðar leiðir og fannst "mín" leið ansi mikið auðveldari. Kíttið lætur ekki sérstaklega vel að stjórn þegar maður er að reyna að púsla svona saman og kítta bæði í einu.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
gunnarfiskur
Posts: 298
Joined: 18 Jun 2008, 15:30

Post by gunnarfiskur »

hver er til i að smiða búr fyrir mig með þessum málum :?: :?:
37 hæð
51 og 60
vil tilboð :)
Post Reply