Hamstrabúr til sölu :) - SELT

Hér er hægt að auglýsa hluti tengda gæludýrahaldi eða bara draslið úr geymslunni

Moderators: Vargur, Ásta

Post Reply
User avatar
Sirius Black
Posts: 842
Joined: 12 Oct 2007, 19:11
Location: Hafnarfjörður

Hamstrabúr til sölu :) - SELT

Post by Sirius Black »

Jæja ætla að losa mig við öll hamstrabúrin mín og hérna koma þau :)

Image
Hérna er það fyrsta, þetta er svona búr sem að er hægt að tengja rör við, alveg heilt búr og lítur mjög vel út. Með því fylgir matardallur, hús, hlaupahjól og vatnsdallur , og sést þetta allt á myndinni :)
Verð: 2000 kr

Image
Númer tvö er svo þetta fína rimlabúr sem að er sérhannað fyrir dverghamstra enda lítið bil á milli rimla. Með því fylgir það sem er á myndinni
Verð:2000 kr


Image
Hérna er svo þriðja. En það er líka svona búr sem að hægt er að tengja rör í. Með því fylgir vatnsdallur, matardallur, hlaupahjól, en það er svona önnur hæð með einhversskonar húsi. Eini gallinn hérna er sá að það er brotið á hliðinni , held að það sé alveg hamstrahelt enda kemur hæðin þar megin :) Bar ekki hægt að nota þá útgöngu til að festa rör í.
Verð: 1000 kr

Image
En hérna kemur sprungan á búrinu.

Image
Hérna kemur svo alveg lokað plastbúr, með því er svo þetta sem að er á myndinni og einhver kattakúla :P fylgdi með því þegar ég fékk það og læt ég það fylgja með bara. alveg í fullkomnu standi :D
Verð: 3000 kr

Image
Hérna er svo ágætlega stórt búr með rimlum. En það fylgir allt þetta sem að er á myndinni, sem að er matardallur (inn í búrinu), hús, hlaupahjól, klósett og eitthvað dót. Það vantar réttu festingarnar en það fylgja einhverjar með sem að passa samt ekki alveg en halda því samt saman.
Verð: 2500 kr

Image
Hérna er svo eitthvað dót.
Kastalinn: 500 kr
Bláa húsið : 100 kr - smá nagað
Kúlan: 200 kr - vantar svona stand undir hana þannig að hún verður að rúla á gólfinu
Timburhúsið: 600 kr, held ónotað :)
Pelinn - 200 kr

Einnig er ég með einhvern slatta af rörum fyrir rörabúrin, en rörin eru græn að lit og eru heldur skítug, en ekkert notuð af mér, keypti þau notuð :)
Verð: 1500 kr

Einnig er eitthvað af sagi og smá bómull sem að fer bara með einhverju búri ef að einhver vill :)

Endilega ef að þið viljið eitthvað af þessu þá sendið mér póst hérna, eða bara svara á spjallinu og svo er síminn minn 8944344

Má einnig bjóða bara í þetta :)
Last edited by Sirius Black on 07 Jun 2008, 17:17, edited 1 time in total.
200L Green terror búr
User avatar
Sirius Black
Posts: 842
Joined: 12 Oct 2007, 19:11
Location: Hafnarfjörður

Post by Sirius Black »

Öll búrin farin nema búr 1. Einnig er stóri kastalinn, tréhúsið og öll rörin eftir :)
200L Green terror búr
Post Reply