Kribbahrogn/seiði - myndir (13/04/08)

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

User avatar
Agnes Helga
Posts: 1580
Joined: 18 Nov 2006, 14:05

Post by Agnes Helga »

Anna wrote:....

Jú það hljómar eins og þau séu búin að hrygna hjá þér! Færð fullt af iðandi steinum uþb 5 dögum eftir hrygningu :)

Ég er með tvo skala í búrinu hjá mér en ég held ekki að þeir hafi borðað nein seiði, þeir eru ekki nógu snöggir.
iðandi steina? halda þau sig á sínu yfirráða svæði? Hef ekki verið með kribba áður :oops: Hvað éta seiðin fyrst?
450 L amerískar síklíður, 120 L guppy/smáfiska gróðurbúr, 180 L malawii/skjaldböku búr og 85 L seiðabúr
User avatar
Anna
Posts: 232
Joined: 23 Jul 2007, 22:33
Location: Reykjavík

Post by Anna »

Agnes Helga wrote:
Anna wrote:....

Jú það hljómar eins og þau séu búin að hrygna hjá þér! Færð fullt af iðandi steinum uþb 5 dögum eftir hrygningu :)

Ég er með tvo skala í búrinu hjá mér en ég held ekki að þeir hafi borðað nein seiði, þeir eru ekki nógu snöggir.
iðandi steina? halda þau sig á sínu yfirráða svæði? Hef ekki verið með kribba áður :oops: Hvað éta seiðin fyrst?
Átti að vera iðandi seiði... :) ha ha ha

Seiðin éta bara þörung og eithvað tilfallandi í búrinu fyrst.
User avatar
Agnes Helga
Posts: 1580
Joined: 18 Nov 2006, 14:05

Post by Agnes Helga »

Okey, takk fyrir svarið!
geta þau fært seiðin/hrognin?

Því að hrognin eru horfin og það komast engin aðrir fiskar að þar sem þau voru, það eru líkur á því að þau séu búin að klekjast sko! Það eru liðnir c.a. 5 dagar síðan ég sá þau. Og hún er alltaf undir nuna öðrum steini.


hehe, sorry ef ég sé að eyðileggja þráðinn þinn.. þú bara virðist vita mikið um kribba og hafa reynslu! :D
450 L amerískar síklíður, 120 L guppy/smáfiska gróðurbúr, 180 L malawii/skjaldböku búr og 85 L seiðabúr
User avatar
Anna
Posts: 232
Joined: 23 Jul 2007, 22:33
Location: Reykjavík

Post by Anna »

:oops: nei - ég hef nánast enga reynslu og veit ósköp lítið. Hins vegar er ég með kribbapar sem er að standa í hrygningastússi núna í annað sinn á rúmlega mánuði.

Já, hrygnan færir stundum hrognin, hún gerði það nokkrum sinnum síðast, en hefur ekkert gert það í þessari hrygningu, bara haldið sig á sama stað með hrognin.

Spurðu bara ef þú heldur að ég (eða annar) geti hjálpað eitthvað :)

Mínir hryngdu á fimmtudaginn, hvenær hryngdi þitt par?
User avatar
Agnes Helga
Posts: 1580
Joined: 18 Nov 2006, 14:05

Post by Agnes Helga »

fyrir c.a. 4-5 dögum, gæti verið meira samt.. :P Allavega eru þau oftar nuna undir hinum steininum.. :) sennilegast eru þau búin að færa sig.
450 L amerískar síklíður, 120 L guppy/smáfiska gróðurbúr, 180 L malawii/skjaldböku búr og 85 L seiðabúr
User avatar
Anna
Posts: 232
Joined: 23 Jul 2007, 22:33
Location: Reykjavík

Post by Anna »

Í dag hafa seiðin orðið frísyndandi, komnir 8 dagar frá hrygningu. Hrygnan hefur haldið sig á sama stað allan tímann, inní rótinni, og núna er hún og hængurinn komin fyrir aftan rótina undir gróður og skiptast á að reka alla aðra í burtu. Ef vel er að gáð og slökkt er á dælunni þá má sjá smá iðandi kúlur, en samt sé ég ekkert með vissu um magn eða gæði :)

Ætli það borgar sig að flytja eldri seiðin í aukabúr? Parið er s.s. ásamt 7 seiðum úr fyrri hrygningu, 2 SAE og 4 ancistrum í 160 l búri með fullt af hellum og svolitlum gróðri...
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Það væntanlega borgar sig ef þú hefur pláss.
User avatar
Anna
Posts: 232
Joined: 23 Jul 2007, 22:33
Location: Reykjavík

Post by Anna »

Nú detta mér alla dauðar... það eru bara 5 seiði!!! Þau eru fín og pattaraleg en OMG!

Ég hef reyndar lúmskan grun um að staðurinn sem hrygnan valdi hafi verið nánast óaðgengilegur fyrir hænginn, hann hreinlega komst ekki að þar sem hún hryngdi. Enda er hann amk helmingi stærri en hún. En 5 seiði - jahérnahér...

Held að ég leggi ekki í eltingaleik við hin 7 stóru til að setja þau í annað búr. Sjáum bara til.
User avatar
jeg
Posts: 701
Joined: 30 Aug 2007, 22:58
Location: Hrútafjörður
Contact:

Post by jeg »

Já það eru líka færri hjá mér og stækka hraðar.
Voru mun fleiri í byrjun og smærri. Þau hrygndu ekki á sama stað og fyrst.
Eru einmitt farin að koma upp núna og sækja matinn.
User avatar
Anna
Posts: 232
Joined: 23 Jul 2007, 22:33
Location: Reykjavík

Post by Anna »

Jæja, það var stutt gaman.

Í gær var eitt seiði horfið, bara 4 eftir. Í dag þegar ég kom heim var bara eitt eftir og foreldrarnir sýndu því satt að segja mjög lítinn áhuga. Þannig að ég veiddi seiðið upp (saug það upp) og setti í sér búr og foreldrarnir bara komnir í tilhugalíf aftur :shock:

*hristihaus*

Sjaum til hvernig þessu eina litla greyi reiðir af, er nú ekkert allt of bjartsýn með það.
Rós
Posts: 128
Joined: 24 Jan 2008, 18:15

Post by Rós »

Skil þessa fiska ekki.

Gangi þér vel :)
User avatar
Agnes Helga
Posts: 1580
Joined: 18 Nov 2006, 14:05

Post by Agnes Helga »

Allt er líka horfið hjá mér :? étið eða e-h.. jæja, þetta var bara 1. hrygning og það hljóta að koma fleiri hrygningar :P

Þetta eru furðufiskar :D
450 L amerískar síklíður, 120 L guppy/smáfiska gróðurbúr, 180 L malawii/skjaldböku búr og 85 L seiðabúr
User avatar
Anna
Posts: 232
Joined: 23 Jul 2007, 22:33
Location: Reykjavík

Post by Anna »

Já, þeir eru iðnir við kolann og örugglega margar fleiri hrygningar framundan hjá þér :)

En þessu eina seiðagreyi virðist líða vel, það dafnar, étur artemíuegg í gríð og erg og nýtur þess að hafa búrið undir sig og ekkert nema sig. Ætli fiskum leiðist ekki??
User avatar
mixer
Posts: 700
Joined: 02 Feb 2008, 14:44
Location: Hvolsvöllur City/ Grafarholt

Post by mixer »

ég veit nú ekki með það en ég var að spá hvar getur maður lesið sig til um þessa fiska... langar að kynna mér þetta.
er að fikta mig áfram;)
User avatar
Anna
Posts: 232
Joined: 23 Jul 2007, 22:33
Location: Reykjavík

Post by Anna »

Smá uppdate af kribbunum:

Seiðin úr upphaflegu hrygningunni (1 des) eru í sér búri með 3 gúbbum og gengur það vel. Þau stækka og dafna, ég er reyndar ferlega hissa á því hvað það er mikill stærðarmunur á þeim. Ég held að það séu 3 hrygnur og 4 hængar. 1 hrygnan og 1 hængurinn eru lang stærst, hrygnan nálgast mömmuna í stærð núna, og eru þau farin að stunda tilhugalíf af miklum krafti :wub:

Þetta eina seiði síðan í janúar var í sér búri í ca mánuð, þá setti ég það í stóra búrið aftur í von um að það mundi spjara sig sem það gerði ekki...

1 apríl hryngdi kerlan í stóra búrinu (sem er nú ekki stórt), en ég er komin með nýjan karl þar sem hinn fyrirfór sér. Hrognin voru strax alveg hvít og ég hef grun um að þau séu ófrjó, þe karlinn er ekki að standa sig. Annars veit ég það ekki þar sem þetta er í fyrsta skipti sem ég sé hrognin! Hrognunum hefur nú samt fækkað, mamman greinileg aðeins að fá sér kavíar, eða að taka út ófrjó hrogn.

Svona er nú staðan á þessu... Ætli ég fari ekki að huga að því að losa mig við unglingana, í síðasta lagi í maí. Þá ætti vaxtarræktin að vera að mestu búin.
User avatar
Anna
Posts: 232
Joined: 23 Jul 2007, 22:33
Location: Reykjavík

Post by Anna »

Jæja, seiðin orðin 11 daga gömul, og það er alveg hrúga af þeim. Ég er búin að taka allar tetrurnar úr búrinu þar sem það var veisla hjá þeim - meira að segja neon tetrurnar voru að éta seiðin.

Svo setti ég 3 gúbba í búrið til að létta á litla búrinu þar sem allir fiskarnir eru í kös þar, en karlinn var drepinn umsvifalaust af kribbunum, ég bjargaði kerlingunum og nú er önnur þeirra horfin. Finna hana bara hvergi.

En foreldrarnir eru mjög samtaka í uppeldinu og allt gengur vel só far...
bibbinn
Posts: 156
Joined: 19 Feb 2008, 21:30
Location: brh

kribbar

Post by bibbinn »

heyrðu var að spá hvernig fer maður að því að látta kribba fjölga sér :)
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Nógu stórt búr (60l er alveg nóg held ég), Kribba par, Felustað(i).
Kribba parið hrygnir svo þegar það er tilbúið :)
Er nokkuð eitthvað annað sem að þarf, endilega nefndu það :D
400L Ameríkusíkliður o.fl.
bibbinn
Posts: 156
Joined: 19 Feb 2008, 21:30
Location: brh

kribbar

Post by bibbinn »

takk takk er með 60 litra bur og fullt af felustöðum en það eru nokkrar tetrur er það ekki alltílagi eða :) :?
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Það ætti að vera mjög fínt :D
400L Ameríkusíkliður o.fl.
User avatar
Agnes Helga
Posts: 1580
Joined: 18 Nov 2006, 14:05

Post by Agnes Helga »

Reyndar geta neon étið seiðin, eins og sagt var þarna áður ;
Jæja, seiðin orðin 11 daga gömul, og það er alveg hrúga af þeim. Ég er búin að taka allar tetrurnar úr búrinu þar sem það var veisla hjá þeim - meira að segja neon tetrurnar voru að éta seiðin.
Ég er bara með par af kribbum í 60 L ásam corydosa og ancistru... það er feikinóg finnst mér, reyndar stór hópur af 2 cm seiðum líka :D
450 L amerískar síklíður, 120 L guppy/smáfiska gróðurbúr, 180 L malawii/skjaldböku búr og 85 L seiðabúr
User avatar
Anna
Posts: 232
Joined: 23 Jul 2007, 22:33
Location: Reykjavík

Post by Anna »

Jæja, nýjar myndir:

Seiði frá hrygningu 1. apríl 08
Image

Image
Stoltir foreldrar

Image



Unglingarnir (hrygning ca 1. des 07)
Image
Líklega kerling

Image
Karl

Image
Stærsti karlinn orðinn um 3-4 cm

Image
Stærsta kerlingin - í lang mestum litum og lang stærst um 4 cm. Í sífelllu að gera sig til við stærsta karlinn (á myndinni fyrir ofan).
Post Reply