Lítið gróðurbúr

Almennar umræður um plöntur, lýsingu og annað sem viðkemur gróðurbúrum

Moderators: Vargur, prien, Sven, Stephan

Post Reply
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Lítið gróðurbúr

Post by Andri Pogo »

Ég fékk mér eitt hrátt 50L búr áðan til að hýsa nokkra tígrisbarba og skellti því inn í stofu. Ég ætla s.s. að reyna að láta það líta vel út :P
Mig hefur lengi langað að hafa frekar lítið gróðurbúr í stofunni og þetta er því tilvalið tækifæri!

Í búrinu eru 29stk tígrisbarbar, fín ljós möl, nokkrar plöntur úr stóra búrinu, rót og Fluval 3plus (sem er fyrir 90-120L, 700L/klst).
Nú þarf ég bara að útbúa mér eitthvað stofuhæft ljós fyrir búrið en vil ekkert endilega hafa það of bjart.
Datt í hug að mixa einhverja klemmu á bakglerið fyrir ljósið.

Plönturnar sem ég er með núna eru java fern, mini-vallisnera og Cyperus helferi. En það er ekkert endilega fast, bara e-ð sem ég átti við höndina.
Skellti smá gróðurnæringartöflu við þær.

Hvað segja gróðursnillingar við þessu?
Er hægt að halda lífi á plöntunum með frekar daufu ljósi?
Einhverjar plöntur sem henta vel í svona uppsetningu... já og þigg bara öll góð ráð :)

Reyni að skella inn myndum af þessu fljótlega
-Andri
695-4495

Image
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Það eru ekki margar plöntur sem koma til greina með svona litlu ljósi, og svo er dælan full sterk í gróðurbúr...

Það ætti þó að vera hægt að gera gott úr þessu með anubias, javamosa og einhverju svoleiðis.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

já hún er stillt á minnsta styrk en er full öflug enda búrið bara 50cm á lengd. Ég á einhverjar minni en bara ljótari, versla líklegast bara minni.

Annars er ég ekkert að tala um eitthvað ör-ljósmagn, bara svona einsog er í standard litlum búrum, vil bara ekki að að það lýsi upp stofuna því ég ætla ekki að nota lok.
-Andri
695-4495

Image
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

var bara með gamla myndavél en tók myndir af búrinu, það verður vonandi hægt að gera e-ð myndarlegt úr þessu. Yfirfallsrörið fær að fjúka :P

Image

og þetta eru íbúarnir til að byrja með:
Image

Ekki hefðbundnir tígrisbarbar heldur Puntius partipentazona.
Ég veit svosem ekkert meiri deili á þessum gæjum og væri gott ef einhver veit meira um þá.
Fann bara þetta á netinu:
Puntius partipentazona is frequently misidentified as tiger barb (Puntius tetrazona).
At first glance, the fish appears to be identical to the tiger barb. However, when compared side-to-side, it can be seen that on P. tetrazona, the middle body stripe extends completely through the dorsal fin. On P. partipentazona, the blotch on the dorsal fin is not part of any of the body stripes, the colors are brighter, and the anal fin shows red.


Semsagt ekki mikill munur á.
Skrítið bara hvað ég finn lítið um þá og ég fann ekkert 'common name' yfir þá. Ætli þeir séu fágætir hehe
-Andri
695-4495

Image
User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Post by Sven »

margt til í dæminu með plöntur, hvað verður lýsingin mikil hjá þér? Ég mundi fara varlega í að gefa gróðurnæringu ef þú ert með svona lítið ljós, ætti ekki að vera mikil þörf á næringu þar sem að plönturnar munu vaxa frekar hægt við lítið ljós. Það væri helst að reyna að hækka smá hörkuna í vatninu.
Varðandi ljósið er þó annað sem þú getur gert ef þú vilt ekki hafa of bjart búr í stofunni hjá þér. Þú getur haft sæmilega góða lýsingu sem er samt frekar dimm, sylvania gro-lux perur eru mjög fínar gróðurperur, en frekar dimmar fyrir mannsaugað.
User avatar
Hrafnkell
Posts: 321
Joined: 16 Mar 2007, 21:03
Location: Kópavogur

Post by Hrafnkell »

Það eru margar leiðir til að viðhalda gróðri. CO2, ofurljós og að metta allt af næringu er ein leiðin.

Önnur leið er að gera nánast ekkert. Diana Walstad er gróðurgúrú sem er þekkt fyrir "natural" leiðina. Hún gengur út á að gera ekkert, nánast ekki einu sinni skipta um vatn :)

Sjá myndir og umfjöllun um hennar búr hér:
http://www.aquabotanic.com/diana_walstad_gallery.htm

Sjá einnig
http://www.aquaticquotient.com/forum/sh ... hp?t=13623

Hugmyndin er að leyfa plöntunum bara að vaxa hægt en hafa næringarríkt undirlag (e. substrate undir mölinni).
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

takk fyrir það strákar :-)

ég fór í dag og keypti mér ljós, 40W lýsing og mér finnst hún bara ansi góð og passlega mikil birta. Ekki ósmekkleg lausn heldur.

Birtan er samt meiri en myndin sýnir finnst mér, neðri myndin er nærri lagi.
Image

Image
-Andri
695-4495

Image
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Ljósið er ansi smekklegt, er það fest á vegginn ?
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

já ég ætlaði fyrst að kítta boxið semheldur því á glerið sjálft en það var auðveldara að færa búrið bara nær veggnum og skrúfa það á vegginn.
Þetta er ljós ætlað til að lýsa upp t.d. málverk.
-Andri
695-4495

Image
User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Post by Sven »

kemur mjög vel út
Stephan
Posts: 311
Joined: 17 Oct 2006, 14:57
Location: Seljabraut 72 109 RVK

Post by Stephan »

Þetta litur virkilega mjög skemmtilegt út :D til hamingju.
Er mjög hrifinn á litum( hvitan sand og græna plöntur) og þá er ég altaff hrifinn á smáfiskum i stórum hopum 8)
User avatar
jeg
Posts: 701
Joined: 30 Aug 2007, 22:58
Location: Hrútafjörður
Contact:

Post by jeg »

Þetta verður eflaust smekklegt þegar fram líður :wink:
Tekur smá tíma að ná upp réttu róli í búrinu.
En flott sem komið er.
User avatar
Hrafnkell
Posts: 321
Joined: 16 Mar 2007, 21:03
Location: Kópavogur

Post by Hrafnkell »

Þetta lítur vel út. Hvar fékkstu ljósið?

Getur verið að íslenskt heiti sé fimmráka barbi. Minnist þess að hafa verið seldir fimmráka barbar í "eldgamla daga" af einhverjum. Penta er amk fimm.

Fyrir ótrúlega tilviljun á ég eins búr :) Ertekki til í að græja stútinn á mínu um leið og þú tekur hann hjá þér? :)
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

ljósið kemur úr ikea.
þetta er ekki fimmrákabarbi, þeir eru aðeins öðruvísi.

hehe sjáum til með stútinn, ég er ekki búinn að pæla í neinni launs ennþá :P
-Andri
695-4495

Image
User avatar
Hrafnkell
Posts: 321
Joined: 16 Mar 2007, 21:03
Location: Kópavogur

Post by Hrafnkell »

Pæling sem ég mundi eftir áðan.

Í svona low-tech gróðurbúrum hef ég séð mælt með því að hafa einhverjar plöntu(r) sem vaxa uppúr vatninu. Ástæðan er sú að þar komast þær í meira CO2 og geta því vaxið hraðar og þar með verið duglegri að halda vatninu góðu, þ.e. næra sig á því sem fellur til við niðurbrot úrgangs í búrinu.

Gæti ekki verið fallegt að vera með eitthvað sem teygir sig uppúr?
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

jú það var einmitt pælingin með að hafa það opið, að láta eitthvað vaxa uppúr :-)
-Andri
695-4495

Image
Tommi
Posts: 50
Joined: 16 May 2007, 10:16
Location: Grindavík

Post by Tommi »

Þetta er ansi magnað hjá þér.
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

takk fyrir.

ég skipti stóru dælunni út fyrir miklu minni.
fyrir valinu varð Rena Filstar iV1, svipuð og ég er með í gullfiskabúrinu.
þessi er gefin upp fyrir 10-50L búr og dælir 220L/klst.
Stóra dælan var að dæla 700L/klst.
Hin sem er í gullfiskabúrinu er iV2, fyrir 40-75L búr og dælir 300L/klst.
Sú hefði líklega verið betri enda eru búrin jafn margir lítrar en ég læt þessa duga :)
Allt önnur og bara passleg hreyfing á vatninu núna.

Svo var tígrisbörbunum skipt út fyrir Convict. Tvö lítil 'pör', venjulegt og hvítt. Gaman af þeim en ætli ég minnki ekki niður í eitt par þegar eitthvað fer að gerast.

Svo hugsa ég að ég skipti um möl, það sést allt á þessum hvíta sandi og ég er ekki viss um að þetta sé það besta fyrir plönturnar.
Ég hef kveikt 12 tíma á dag á ljósinu og plönturnar líta vel út, fjölga þeim svo þegar ég skipti út mölinni.
-Andri
695-4495

Image
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

enn hálf tómlegt, vantar fleiri plöntur, en hérna sést nýja litla dælan:
Image

Image

Image
-Andri
695-4495

Image
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

Jæja þá er fyrsta hrygning farin af stað, heiðurinn á "venjulega" parið.
Erfitt að taka skýra mynd þarna í myrkrinu og ég neita að fara gegn lífsspeki minni og nota flass :)

Image

Gaman af þessu. Hvað tekur þetta svo langan tíma?

Annars er búrið frekar sjoppulegt, ég henti helling af gróðri í það, skipti um möl en svo fór að leka meðfram yfirfallsrörinu þannig að ég minnkaði vatnið. Ég er hreinlega of latur til að laga rörið og skipti búrinu sennilega hvort sem er út fyrir 100L fljótlega.

Image
-Andri
695-4495

Image
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Seiðin klekjast vanalega á 3-4 dögum, þetta verður ekki gróðurbúr lengur þegar foreldrarnir fara að moka upp fyrir seiðin. :)
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Vargur wrote:Seiðin klekjast vanalega á 3-4 dögum, þetta verður ekki gróðurbúr lengur þegar foreldrarnir fara að moka upp fyrir seiðin. :)
Rétt :)

Ég var einmitt að pæla hverskonar gróðurbúr gæti dafnað með 4 gröfum :)
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
ulli
Posts: 2777
Joined: 08 May 2007, 00:45
Location: Ísland

Post by ulli »

hvar fær maður þennan hvita sand?
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

hehe ætli maður þurfi ekki að færa convictana þá :P
ég er að byrja að smíða rekka með 3x100L búrum inn í forstofu og eitt búrið er frátekið fyrir þá.

ulli, ég veit það ekki, hann kom bara með búrinu.
-Andri
695-4495

Image
ulli
Posts: 2777
Joined: 08 May 2007, 00:45
Location: Ísland

Post by ulli »

en sá sem er i monster búrinnu?.var hann annars ekki hvitur?
User avatar
stebbi
Posts: 462
Joined: 30 Aug 2007, 19:05
Location: Breiðholt

Post by stebbi »

þess má til gamans geta að fyrrum barbarnir þínir eru búnir að vera að dúlla sér við hrygningar í kvöld, eða allavegana 3 úr hópnum :)
Don´t drink water
fish f*** in it
http://madkur.bloggar.is/
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

ulli wrote:en sá sem er i monster búrinnu?.var hann annars ekki hvitur?
Nei hann er svartur.
Ég var með hvítan poolfiltersand í einhverju búri samt og hann kemur frá Poulsen Skeifunni.
stebbi wrote:þess má til gamans geta að fyrrum barbarnir þínir eru búnir að vera að dúlla sér við hrygningar í kvöld, eða allavegana 3 úr hópnum :)
Glæsilegt :-)
-Andri
695-4495

Image
Post Reply