Mundi þetta ganga upp?

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
User avatar
EymarE
Posts: 54
Joined: 05 Dec 2007, 11:28
Location: Grundarfjörður

Mundi þetta ganga upp?

Post by EymarE »

Ég er að spá hvort það mundi ganga upp að hafa DvergGúrama , bardagafiska og kribba saman í búri.. ? Í 140-180 L búri... Og hvort það sé möguleigi að einhverjir þeirra mundu hrygna??

En mundi það ganga að hafa þessar þrjár tegundir og líka convict par??

Vona eftir góðum svörum, Takk fyrir mig..
Eymar Eyjólfsson
animal
Posts: 930
Joined: 07 Aug 2007, 22:49

Post by animal »

Já þetta gengur, en slepptu convictunum
Ace Ventura Islandicus
Bjarkinn
Posts: 32
Joined: 10 Nov 2007, 14:01

Post by Bjarkinn »

hmm... það er allt hægt en ég er sammála fyrri ræðumanni með convictinn og svo myndi ég líka taka bardagafiskana úr jöfnunni, þeir eru alltaf til vandræða. En ég tel það líklegt að kribbarnir hrygni en það er yfirleitt aðeins sérstakari aðstæður sem að gúramar velja sér, hærra hitastig og yfirleitt lág vatnsstaða.
Gudjon
Posts: 1308
Joined: 18 Sep 2006, 19:34

Post by Gudjon »

Bjarkinn wrote:og svo myndi ég líka taka bardagafiskana úr jöfnunni, þeir eru alltaf til vandræða.
Afhverju segirðu það?
bardagafiskur í búri er í flestum tilvikum meinlaus
Bjarkinn
Posts: 32
Joined: 10 Nov 2007, 14:01

Post by Bjarkinn »

ég er nú bara að tala frá eiginn reynslu, bardagafiskar ráðast á alla aðra fiska þeas ef þeir ná þeim.
Gudjon
Posts: 1308
Joined: 18 Sep 2006, 19:34

Post by Gudjon »

Eigum við að heyra hvað aðrir hafa að segja um þetta?

Að mínu mati á bardagafiskur ekkert í kribba og gúrama.
Ég veit um örfá dæmi þar sem að bardagafiskar hafa nartað í sporða á hægfara fiskum með stóran sporð, t.d. guppy
Last edited by Gudjon on 07 Dec 2007, 23:34, edited 1 time in total.
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Bardaga fiskar geta verið dyntóttir.
Sumir eru alveg til friðs, aðrir eru óþolandi böggarar og enn aðrir eru bara fórnarlömb fyrir jafnvel smáfiska.
User avatar
Agnes Helga
Posts: 1580
Joined: 18 Nov 2006, 14:05

Post by Agnes Helga »

Mér finnst bardagafiskar einn af rólegustu fiskum sem ég hef átt... Jaðra vi það að vera latir... :roll: Eru bara að dóla sér e-h, éta og svona... ekkert bögg hjá mér amk.. og ég var með gúrama líka ;)
450 L amerískar síklíður, 120 L guppy/smáfiska gróðurbúr, 180 L malawii/skjaldböku búr og 85 L seiðabúr
User avatar
EymarE
Posts: 54
Joined: 05 Dec 2007, 11:28
Location: Grundarfjörður

Post by EymarE »

Haldið þið að það fari ekki bara eftir búrastærð?

Ef það er nóg pláss fyrir alla þá eru allir vinir ? :D

Allavega eftir þessa umræðu, þá er ég næstum því fullviss um að fá mér þessa blöndu í búrið hjá mér, finnst þeir allir mjög fallegir, og allir með mismunandi útlit og því skemmtilegt að sitja og "horfa" :)

Svo verð ég bara að fá mér annað búr seinna fyrir convicta, finnst þeir alveg glæsilegir :P
Eymar Eyjólfsson
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Ég hef átt nokkra bardagafiska og þeir hafa aldrei verið með neinn skandal.
Post Reply