DIY 3D bakgrunnar??

Búrasmíði, bakgrunnar, lok osf

Moderators: Vargur, keli, Squinchy

Post Reply
Gabriel
Posts: 123
Joined: 14 Jul 2007, 01:55
Location: Húsavík

DIY 3D bakgrunnar??

Post by Gabriel »

Þeir sem að hafa gert bakgrunna úr frauðplasti, er nauðsynlegt að kítta þetta fast í búrið? Er ekki hægt að hafa þetta laust aftan í búrinu ef að það heldur jafnvægi? Bara upp á það að geta losað þetta úr seinna meir, eða er kannski ekki mikið mál að losa kítti?
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Það er ekki séns að hafa frauðplast laust í búrinu nema þú setjir ekki vatn í það, um leið og þú fyllir búrið flýtur bakgrunnurinn upp. Sumir hafa jafnvel lent í vandræðum með það þó bakgrunnurinn sé límdur.
Önnur ástæða til að festa bakgrunna vel á alla kanta er sú að annars safnast drulla þar á bakvið sem sem getur valdið nitrat bombu og einnig eiga fiskar til að troða sér þar og festast.
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Frauðplast hefur mjög mikið flotgildi þannig að það mun reyna allt til að komast upp úr vatninu, besta leiðin er að nota fiskabúrssilikon til að festa það,

Hef séð suma sem hafa notað sterka segla og spennur til að festa þetta en ég myndi ekki treista því, ég ætla bara að líma allt í klessu í mínu búri, er ekki að nenna að vera slást við frauðplastið ef það ætlar sér upp einn daginn
Kv. Jökull
Dyralif.is
User avatar
Rodor
Posts: 935
Joined: 29 Dec 2006, 13:39
Location: Reykjavík

Post by Rodor »

Hérna er einn með hellum í. Efnið sem notað er í þetta er plastþakrenna.

http://www.duboisi.com/diy/BNdiygrotto/bndiygrotto.htm
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Haha vá góð hugmynd hjá þessum :D
Kv. Jökull
Dyralif.is
Gabriel
Posts: 123
Joined: 14 Jul 2007, 01:55
Location: Húsavík

Post by Gabriel »

Flýtur það jafnvel eftir að búið er að klína múrblöndunni á það? :shock: En hvernig er að ná því aftur úr búrinu ef að það er kíttað á bakhliðina?
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

já það myndi fljóta og það þyrfti bara að skafa það burt.
-Andri
695-4495

Image
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Það er alveg smá vinna að taka þetta úr en ég gerði þetta á 54L búri fyrst og tók það síðan úr og það tók kanski einhvern klukkutíma eða 2 að hreinsa allt burt

ég tók hann úr því ég var ekki sáttur við útlitið sem ég skar út, bara um að gera að gera þetta virkilega vel og eiða góðum tíma í það að skera þetta vel út, síðan að setja þetta ofan í búrið og ákveða hvort þú sért sáttur síðan halda áfram þegar útskurðurinn er erðinn flottur :)
Kv. Jökull
Dyralif.is
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Rodor wrote:Hérna er einn með hellum í. Efnið sem notað er í þetta er plastþakrenna.

http://www.duboisi.com/diy/BNdiygrotto/bndiygrotto.htm
Þetta sniðugt... Fyrir afrískar síkliður allavega.. Hentar kannski ekki öllum fiskum.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Góð hugmynd.
User avatar
Rodor
Posts: 935
Joined: 29 Dec 2006, 13:39
Location: Reykjavík

Post by Rodor »

Er ekki bara málið að fá sér kókoshnetur.
Image
User avatar
lilja karen
Posts: 536
Joined: 14 Oct 2007, 21:21
Location: Akureyri. 17 ára

Post by lilja karen »

VÁÁ.... þetta er gg flott :D
hvar fær maður svona 1 stk kókosnetu :D
User avatar
Rodor
Posts: 935
Joined: 29 Dec 2006, 13:39
Location: Reykjavík

Post by Rodor »

Hagkaup, Nóatún, etc.
User avatar
lilja karen
Posts: 536
Joined: 14 Oct 2007, 21:21
Location: Akureyri. 17 ára

Post by lilja karen »

oki ég hélt kannski að maður mætti ekki taka úr búðunum bara úr dýrabúiðinni

hihi ég veit, ég veit ég er ljóska :lol:
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Til svona kókoshnetur í dýragarðinum veit ég.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
pípó
Posts: 1172
Joined: 05 Apr 2007, 09:28

Post by pípó »

Ég keypti kókoshnetur í Hagkaup og sagaði endann af og plokkaði inn úr þeim og sauð þær og svo bara beint í búrinn,ekkert mál :)
User avatar
Rodor
Posts: 935
Joined: 29 Dec 2006, 13:39
Location: Reykjavík

Post by Rodor »

Mér finnst gott að einhver hérlendis skuli vera búinn að fá sér kókoshnetu í búr.
Nú ætla ég að vera svolítið leiðinlegur, ekki það að ég sé eitthvað skemmtilegur dags daglega. En það sem fer verst í mig þegar ég sé fiskabúr, eru leirpottar. Það er sennilega einhver brenglun í hausnum á mér, en mér finnst leirpottar í fiskabúri ömurlegir. Ég bara þoli þá ekki :æla:
Þegar ég sá kókoshnetu á vefnum þá hugsaði ég strax, þetta er málið. Algjörlega náttúrulegur hellir í fiskabúr og formið á þeim heillar mig :D
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Það er fullt af kókoshnetum í búrum hér á landi.
Skrýtið með leirpottana, ég þoli yfirleitt ekki tilbúna hluti í fiskabúr nema hvað mér finnast leirpottar eða pottabrot smellpassa í fiskabúr.
Ég er sérstaklega hrifinn af pottum sem eru klofnir í tvennt og mynda þannig helli.
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Ég er rosalega hrifin af leirpottum í búrum, þó ekki sama hvernig þeim er komið fyrir.
Gudjon
Posts: 1308
Joined: 18 Sep 2006, 19:34

Post by Gudjon »

Leirpottar fara svakalega í tagarnar á mér.
Post Reply