Hvítur blettur ?
Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli
Hvítur blettur ?
Hæhæ, ég er með 4 Piranha fiska og það er stór hvítur blettur á einum þeirra sem er svona með tannafari í og að flagna smá ( bletturinn er ofarlega fyrir miðju ) Þetta er alveg eins og þeir hafi reynt að bíta í hann enn svo sá ég að þeir eru allir að fá svona á nákvæmlega sama staðinn ... get samt svarið að það er bitfar hjá þessum sem er með mesta blettinn... hvað getr þetta verið ?
Re: Hvítur blettur ?
getur tekið mynd af þessu en annars er ekki óalgengt að Piranha sé með bitför hér og þar sérstaklega ef þeir eru í of litlu búri þá verða þeir agresifari á hvorn annan
1100L malawi, 200L jinlong samfélagsbúr, 1000L í uppsetningu
Re: Hvítur blettur ?
Þeir eru alveg með nógu stórt búr þessar elskur og fá alveg no að borða.. finnst skrýtið ef þetta er bit enn lítur samt út fyrir það.. skrýtið samt að allir séu að fá eins blett á sama stað..eða allavegana 3
Re: Hvítur blettur ?
hvað er búrið stórt, svona fyrir forvitnissakir ?
Re: Hvítur blettur ?
240 lítra..og þeir eru 9-10 cm, 4 saman stækka við mig fljótlega
Re: Hvítur blettur ?
komdu endilega með mynd af þessu þá skírist þetta örugglega
1100L malawi, 200L jinlong samfélagsbúr, 1000L í uppsetningu
Re: Hvítur blettur ?
Ég gerði margar tilraunir til þess að taka mynd ekki nokkur leið fyrir mig að ná mynd þar sem hann er KJUR og í FÓKUS ...syndir frekar á vegg heldur en að vera kjur þegar ég er fyrir framan búrið, Enn núna er bara 1 fiskur með þetta og mer finnst eins og það sé eitthvað að flyksast úr þessu eins og hann hafi verið bitin.... eg veit ekki neitt
Re: Hvítur blettur ?
Mæli með örum vatnskiptum hjá svona "sóðum", sérstaklega ef þú ert að gefa mikið og ert ekki með tunnudælu
Kv. Jökull
Dyralif.is
Dyralif.is