Búr sem er alltaf skítugt.

Spurningar og svör um uppsetningu búra, sjúkdóma, hvaða fiskar passa saman osf.

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
ins19
Posts: 82
Joined: 26 Apr 2011, 14:24

Búr sem er alltaf skítugt.

Post by ins19 »

Mig langaði til að fá smá ráð í sambandi við búrið hjá mér.

Mér finnst það alltaf svo skítugt þrátt fyrir að vera með fína dælu og regluleg vatnaskipti. Stundum finnst mér það skítugt að ég er að gera 50% vatnaskipti á 2-3 daga fresti og svo strax daginn eftir er það aftur orðið skítugt. Ég er ekki að gefa of mikið (eða ég held það).

Ég er með mjög fínann sand, ég er að pæla hvort sandurinn sé vandamálið. Þetta er mjög fínn sandur. Þegar ég horfi á búrið þá eru alltaf agnir út um allt í búrinu sem eru á sveimi.

Hvað haldið þið að geti verið vandamálið?
Attachments
búr.JPG
búr.JPG (64.06 KiB) Viewed 10442 times
User avatar
Sibbi
Posts: 1131
Joined: 09 Aug 2010, 18:29
Location: Hafnarfjörður

Re: Búr sem er alltaf skítugt.

Post by Sibbi »

Þetta er varla vegna of mikilla gjafar, það þarf lengri tíma svo það gerist.
Ég hef oftar en einu sinni lent í svona löguðu, og þá vegna sandsins, er einmitt núna með eitt lítið sem ávallt er "skítugt", og er það búr með ljósum fínum sandi, var með hann í fl. búrum, og það var eins í þeim.
Svo að,,, ég veðja á sandinn.
B.kv. SibbiS.
Sibbi. Ólæknandi og óviðbjargandi dellukarl.
Sími: 860 0 860. (Nova)
Netfang: iceland@internet.is
Gudmundur
Posts: 2115
Joined: 20 Sep 2006, 14:30
Location: Kópavogur
Contact:

Re: Búr sem er alltaf skítugt.

Post by Gudmundur »

ef það eru agnir á sveimi þá gæti dælan verið vitlaust upp sett sem gæti líka útskírt hvað vatnið er gruggugt
www.fiskabur.is
skemmtileg heimasíða
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Re: Búr sem er alltaf skítugt.

Post by keli »

Ég myndi giska á sandinn. Ég man að Andri Pogo var í svipuðum vandamálum með sand sem hann var með í búri hjá sér. Um leið og hann skipti sandinum út þá varð búrið tært.

Ágætis punktur hjá Guðmundi að fara yfir dæluna líka.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
ins19
Posts: 82
Joined: 26 Apr 2011, 14:24

Re: Búr sem er alltaf skítugt.

Post by ins19 »

takk kærlega fyrir þetta. Ég ætla klárlega að kaupa sand á morgun og sjá hvort þetta breytist ekki þá.
User avatar
casmak
Posts: 75
Joined: 03 May 2011, 09:24
Location: Hafnarfjörður

Re: Búr sem er alltaf skítugt.

Post by casmak »

Já þetta er líklega sandurinn eins og hann hafi ekki verið skolaður nóg, annars er ég að fara að breyta búri hjá mér viewtopic.php?f=2&t=12942, keypti ljósan sand í toysrus í gær og þurfti að skola hann vel og lengi, ég sá að hann var orðin hreinn þegar ég rótaði í honum þá var vatnið mjög fljótt að tærast, hef örugglega skolað í rúmlega 30 - 60 mín með því að hrófla við honum fram og aftur, en ég er ekki búin að setja hann í búrið þannig ég veit ekki hvernig þetta kemur út.
Attachments
IMAG0066 (Small).jpg
IMAG0066 (Small).jpg (52.54 KiB) Viewed 10400 times
4x200l Rekki.
180l ónotað
Canon EOS 500D EF-S 18-55mm

viewtopic.php?f=2&t=12580
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Re: Búr sem er alltaf skítugt.

Post by Vargur »

casmak wrote:Já þetta er líklega sandurinn eins og hann hafi ekki verið skolaður nóg, annars er ég að fara að breyta búri hjá mér viewtopic.php?f=2&t=12942, keypti ljósan sand í toysrus í gær og þurfti að skola hann vel og lengi, ég sá að hann var orðin hreinn þegar ég rótaði í honum þá var vatnið mjög fljótt að tærast, hef örugglega skolað í rúmlega 30 - 60 mín með því að hrófla við honum fram og aftur, en ég er ekki búin að setja hann í búrið þannig ég veit ekki hvernig þetta kemur út.
Tærast !? Ef talað er að eitthvað tærist þá er átt við að það eyðist upp, eins og td ryðgi.
Ef vatn er tært þá er það án sjáanlegra óhreininda.
Getur verið að þú meinir gruggast ? Þe óhreinindi sjáist þegar þú róflar við sandinum ?
ins19
Posts: 82
Joined: 26 Apr 2011, 14:24

Re: Búr sem er alltaf skítugt.

Post by ins19 »

Kominn með grófari sand/möl í búrið. Keypt hjá BM-Vallá á 694kr. 25kg.

Allt annað að sjá búrið :)
Attachments
asdf.JPG
asdf.JPG (73.25 KiB) Viewed 10359 times
User avatar
casmak
Posts: 75
Joined: 03 May 2011, 09:24
Location: Hafnarfjörður

Re: Búr sem er alltaf skítugt.

Post by casmak »

Vargur wrote:
casmak wrote:Já þetta er líklega sandurinn eins og hann hafi ekki verið skolaður nóg, annars er ég að fara að breyta búri hjá mér viewtopic.php?f=2&t=12942, keypti ljósan sand í toysrus í gær og þurfti að skola hann vel og lengi, ég sá að hann var orðin hreinn þegar ég rótaði í honum þá var vatnið mjög fljótt að tærast, hef örugglega skolað í rúmlega 30 - 60 mín með því að hrófla við honum fram og aftur, en ég er ekki búin að setja hann í búrið þannig ég veit ekki hvernig þetta kemur út.
Tærast !? Ef talað er að eitthvað tærist þá er átt við að það eyðist upp, eins og td ryðgi.
Ef vatn er tært þá er það án sjáanlegra óhreininda.
Getur verið að þú meinir gruggast ? Þe óhreinindi sjáist þegar þú róflar við sandinum ?
Held það viti allir hvað ég á við :wink:
4x200l Rekki.
180l ónotað
Canon EOS 500D EF-S 18-55mm

viewtopic.php?f=2&t=12580
Post Reply