útbrot á handlegg

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
Pjesapjes
Posts: 118
Joined: 30 Dec 2008, 14:40

útbrot á handlegg

Post by Pjesapjes »

Kannast einhver við það að hafa fengið útbrot á handlegg eftir að hafa farið ofaní fiskabúr?
Kv. Pjesi
___________
180L Juwel
4x 105L rekkabúr
63L ancistru ríðubúr og seiðabúr
54L Juwel óselt
20L í útláni
13L búr
User avatar
jonsighvatsson
Posts: 185
Joined: 24 Jun 2010, 12:06

Re: útbrot á handlegg

Post by jonsighvatsson »

Margir sem hafa áhyggjur af þessu en bara uppgvötað einhvern húðsjúkdóm hjá sér ....

Hérna er listi yfir nasty´s sem smitast í menn
http://www.aquarticles.com/articles/man ... umans.html
Svavar
Posts: 385
Joined: 03 Sep 2007, 08:51
Location: Sauðárkróki

Re: útbrot á handlegg

Post by Svavar »

Einn sem ég kannast við sem fékk eitthvað sem læknirinn kallaði fiskaberkla. sel það ekki dýrara en ég keipti.
Diskus og aðrir skrautfiskar.

Heimasíða http://www.facebook.com/#!/pages/Skraut ... 2348325143
Tango
Posts: 162
Joined: 15 Apr 2011, 10:44
Location: Hafnafjörður

Re: útbrot á handlegg

Post by Tango »

hehe fiskaberklar.... anyway ég sá heimildarmynd fyrir nokkrum dögum um einfrömung sem lifir á fiskum nánar tiltekið í blóðrás fiska, þessi einfrumungur komst í tæri við nautgripablóð frá sláturhúsi og nautgripirnir voru á sterum svo einfrumungurinn stökkbreyttist og fór að lifa á mannablóði... þetta er ekki grín gerðist í alvöru og er enn töluvert heilbrigðisvandamál í usa.. þessi einfrumungur át fólk bókstaflega innanfrá og mynduðust furðuleg útbrot á sjómönnum, fólki í veiðitúrum, fólki sem bjó nálægt vatni og öllum vísindamönnum sem rannsökuðu þetta vandamál ef ekkert var gert til að drepa einfrumunginn réðst hann endanlega á miðtaugakerfið og orsakaði minnistap og lömun, CDC í usa viðurkenndi ekki fiskasjúkdóm sem mannasjúkdóm fyrr en 2 af færust sérfræðingum þeirra voru orðnir minnislausir með miðtaugakerfissjúkdóm á alvarlegu stigi. Svo hvaðan koma fiskarnir þínir hmmmm
---------------------------
530 L síklíðu búr.
200 L þrískipt uppeldisbúr.
130 L Gotfiskabúr.
130 L froskabúr.
4 X 200 L Rekki.
User avatar
Sibbi
Posts: 1131
Joined: 09 Aug 2010, 18:29
Location: Hafnarfjörður

Re: útbrot á handlegg

Post by Sibbi »

Tango wrote:Svo hvaðan koma fiskarnir þínir hmmmm

Ha? fiskar???, hvað er það? :idea:
Sibbi. Ólæknandi og óviðbjargandi dellukarl.
Sími: 860 0 860. (Nova)
Netfang: iceland@internet.is
Tommi
Posts: 50
Joined: 16 May 2007, 10:16
Location: Grindavík

Re: útbrot á handlegg

Post by Tommi »

Svavar wrote:Einn sem ég kannast við sem fékk eitthvað sem læknirinn kallaði fiskaberkla. sel það ekki dýrara en ég keipti.
Ég veit líka um einn sem fékk fiskaberkla. Það er frekar sjaldgæft að fólk fái þetta, en í mörgum tilfellum sýkist fólk eftir að hafa farið með höndina ofan í fiskabúr með opið sár. Mér skilst að það geti tekið langan tíma að losna við bakteríuna úr líkamanum eins og gengur og gerist með aðrar berkla bakteríur.
Post Reply