Langar þig að prófa LED lýsingu?

Hér getur þú auglýst til sölu eða óskað eftir fiskum og fiskavörum

Moderators: Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Langar þig að prófa LED lýsingu?

Post by keli »

Ég var að fá nokkra drivera og LED til að föndra með og datt í hug að einhver ykkar myndi vilja prófa svona nýtískulýsingu. Þetta er klárlega framtíðin í lýsingu, og ekki skemmir að maður þarf aldrei að skipta um perur. Borgar sig fljótt ef maður horfir á það þannig :)

Sama lýsing og ég er með á þessu búri:
Image

Get gert svona pakka fyrir ca 10þús ef þú kannt að lóða sjálf/sjálfur. Get líka sett saman fyrir fólk fyrir smá auka pening. Svona lýsing (10-12 díóður) myndi auðveldlega ganga fyrir stærri búr, til dæmis 50, 100 og jafnvel stærra, eftir því hvaða ljósmagni þú ert að leita eftir.

Get líka hannað eitthvað í þessvegna 500 lítra búr ef áhugi er fyrir hendi. Get ímyndað mér að 30-36 díóður kæmu mjög vel út í svo stóru búri.

Ég er með LED lýsingu í rekkanum mínum, það eru 11 LED hér:
Image
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Pjesapjes
Posts: 118
Joined: 30 Dec 2008, 14:40

Post by Pjesapjes »

snillingur ertu ! var einmitt að bíða eftir að einhver myndi koma með svona :D hvað helduru að myndi henta fyrir 60 L búr? hvað myndi það kosta hjá þér? ég kann að lóða ;)
Kv. Pjesi
___________
180L Juwel
4x 105L rekkabúr
63L ancistru ríðubúr og seiðabúr
54L Juwel óselt
20L í útláni
13L búr
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

10þús pakkinn ætti að duga ágætlega, 10 LED. Það fer samt auðvitað eftir því hvað þú ætlar að vera með í búrinu. Ef það á að vera lítið af plöntum þá þarf ekki að vera mikil lýsing :)
Last edited by keli on 23 Nov 2010, 16:27, edited 1 time in total.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Snædal
Posts: 202
Joined: 27 Apr 2009, 21:37
Location: Rvk

Post by Snædal »

LED er málið. Mikla reynslu af því að sjá það (ef svo orða) upp í vinnu og þetta er töluvert flottara. Um að gera að splæsa í þetta ef þú átt fallegt búr.
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Snædal wrote:LED er málið. Mikla reynslu af því að sjá það (ef svo orða) upp í vinnu og þetta er töluvert flottara. Um að gera að splæsa í þetta ef þú átt fallegt búr.
Klárlega. Þetta kemur ótrúlega vel út, og auðvelt að búa til lausn fyrir hvaða stærð af búri sem er.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
diskokongen
Posts: 42
Joined: 11 Jun 2010, 22:00
Location: rvk

Post by diskokongen »

hvað mundirðu giska á að svona mundi kosta í 250l (100x50x50) gotfiska/gróðurbúr??
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Það væri hægt að gera það fyrir svona 30þús. Hugsanlega minna, en það færi bara eftir því hvað þú þarft mikið ljós. Það væri lítið mál að byrja með til dæmis 24 LEDs og bæta við ef þér finnst það þurfa. Það myndi kosta um 25þús.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
prien
Posts: 562
Joined: 02 Jul 2009, 22:00
Location: Innri Njarðvík

Post by prien »

Er styrkur þessara Led díóða gefin upp í wöttum?
Er hægt að fá svona díóður í mismunandi kelvin?
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Þessar sem ég er með eru uþb 6500 kelvin.

Díóðurnar eru 3w, en það er ekki hægt að bera saman wattafjölda á þeim og öðrum perum - Enda eru wött mælieining fyrir orkunotkun, ekki birtu.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
animal
Posts: 930
Joined: 07 Aug 2007, 22:49

Post by animal »

Er hægt að fá þær í hvaða kelvin sem er ef svo má að orði komast?. Mjög áhugavert þar sem ég er með svívirðilegan rafmagnsreikning.
Ace Ventura Islandicus
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Nei það er svolítið takmarkað, en það er hægt að blanda saman litum og fleira föndur.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
prien
Posts: 562
Joined: 02 Jul 2009, 22:00
Location: Innri Njarðvík

Post by prien »

Þessi Led ljós eru klárlega framtíðin í fiskabúrsljósum, enda mikið skrifað um þau í erlendum fiskatímaritum.
Þau eiga að eyða u.þ.b. 40% minna rafmagni og lítill sem enginn hiti frá þeim.
Þau eiga að endast í 50.000 klst, þannig að ef maður væri með slíka lýsingu kveikta hjá sér í 12 klst á sólarhring, þá myndu díóðurnar endast í rúm 10 ár.
Þetta er bara snilld.
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Hvaða driver ertu að fara nota í þetta ?
Kv. Jökull
Dyralif.is
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Ég fann noname (en ce merkta) drivera sem taka AC og eru nettir og vatnsheldir. Pantaði nokkra til að fikta með. Þeir eru reyndar ekki dimmable en annars mjög efnilegir. 670mA þannig að maður sleppur við mesta hitann frá LEDunum en fær samt hellings birtu.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Snædal
Posts: 202
Joined: 27 Apr 2009, 21:37
Location: Rvk

Post by Snædal »

prien wrote:Þessi Led ljós eru klárlega framtíðin í fiskabúrsljósum, enda mikið skrifað um þau í erlendum fiskatímaritum.
Þau eiga að eyða u.þ.b. 40% minna rafmagni og lítill sem enginn hiti frá þeim.
Þau eiga að endast í 50.000 klst, þannig að ef maður væri með slíka lýsingu kveikta hjá sér í 12 klst á sólarhring, þá myndu díóðurnar endast í rúm 10 ár.
Þetta er bara snilld.
Myndi ekki segja 50.000klst beinlínis þar sem þetta er mjög mismunandi. Það er alla vega ekki minna en 25þús.
Fer hreinlega eftir hvernig notkunin er. Stór LED ljós sem notuð eru til að lýsa studíó í sjónvarpi eru að duga í svona 30.000klst.

Gæti samt alveg farið upp í 100.000klst :-)
Svavar
Posts: 385
Joined: 03 Sep 2007, 08:51
Location: Sauðárkróki

Post by Svavar »

animal wrote:Er hægt að fá þær í hvaða kelvin sem er ef svo má að orði komast?. Mjög áhugavert þar sem ég er með svívirðilegan rafmagnsreikning.
Ég skal skipat við þig um rafmagnsreykning í mánuð eða 2 ef þú villt :wink: Alveg furðulegt að ég hafi ekki fengið jólakort frá RARIK.
Diskus og aðrir skrautfiskar.

Heimasíða http://www.facebook.com/#!/pages/Skraut ... 2348325143
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Snædal wrote:Myndi ekki segja 50.000klst beinlínis þar sem þetta er mjög mismunandi. Það er alla vega ekki minna en 25þús.
Fer hreinlega eftir hvernig notkunin er. Stór LED ljós sem notuð eru til að lýsa studíó í sjónvarpi eru að duga í svona 30.000klst.

Gæti samt alveg farið upp í 100.000klst :-)
Þessi sem ég er með eru gefin upp að eftir 50 þúsund klukkustundir (rúm 17 ár með ljósin kveikt 8klst á dag) er birtan 80% af því sem hún var þegar ljósin voru ný. Þeas á 50.000klst er birtan búin að minnka um 20%.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Re: Langar þig að prófa LED lýsingu?

Post by keli »

Ég var að fá slatta af díóðum og driverum í viðbót ef fleirum langar að prófa :)
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
ibbman
Posts: 271
Joined: 26 Jan 2009, 19:02

Re: Langar þig að prófa LED lýsingu?

Post by ibbman »

Hvað helduru að það kosti ca að gera led lýsingu í 720 lítra aquastibil búr ?
ulli
Posts: 2777
Joined: 08 May 2007, 00:45
Location: Ísland

Re: Langar þig að prófa LED lýsingu?

Post by ulli »

Fyrir sjó þá kostar það örugglega helling.
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Re: Langar þig að prófa LED lýsingu?

Post by keli »

Það fer eftir því hvað á að vera í búrinu.. Er þetta sjór eða ferskvatn? mikið af kóröllum? Miklið af plöntum?
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
ibbman
Posts: 271
Joined: 26 Jan 2009, 19:02

Re: Langar þig að prófa LED lýsingu?

Post by ibbman »

Þetta er ferskt, fer ekki út í svona stórt sjóbúr...
Er ekki með plöntur eins og er, en vill klárlega hafa möguleikann á því að hafa þær
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Re: Langar þig að prófa LED lýsingu?

Post by keli »

Ég mundi prófa svona 30 dióður til að byrja með. Það er lítið mál að gera þetta þannig að það er hægt að bæta við ef manni langar. Þetta er svolítið "hands on", þannig að þú þarft að smíða smávegis til að koma þessu fyrir. Þarft þó ekki að leggja lokið í rúst eða neitt svoleiðis. Bara skemmtilegra ef maður þarf að gera smá sjálfur :)

30 díóður og 3 driverar kosta 30þús.

Verð:
Driver fyrir 9-12 LED: 2400kr
Driver fyrir 2-3 LED: 850kr
LED: 800kr
Rúnnast kannski smá niður ef fólk kaupir slatta, en ég er ekki að okra á þessum ljósum og get ekki farið neðar.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
hrefnah
Posts: 44
Joined: 27 Nov 2010, 20:55

Re: Langar þig að prófa LED lýsingu?

Post by hrefnah »

keli wrote:Ég var að fá slatta af díóðum og driverum í viðbót ef fleirum langar að prófa :)
hæhæ ég hef áhuga á LED
er með 570 akvastabil búr ferskvatns (lítill gróður) þarf að græja lok samhliða ljósunum. Sýnist á því sem þú hefur skrifað í þræðinum að þetta séu 25-30 díóður stemmir það?
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Re: Langar þig að prófa LED lýsingu?

Post by keli »

hrefnah wrote:
keli wrote:Ég var að fá slatta af díóðum og driverum í viðbót ef fleirum langar að prófa :)
hæhæ ég hef áhuga á LED
er með 570 akvastabil búr ferskvatns (lítill gróður) þarf að græja lok samhliða ljósunum. Sýnist á því sem þú hefur skrifað í þræðinum að þetta séu 25-30 díóður stemmir það?
Það væri amk mjög góður byrjunarpunktur. Ég myndi samt gera ráð fyrir meiru, t.d. ef þig myndi langa að bæta við plöntum eða eitthvað svoleiðis. Með 3 driverum þá getur þú verið með 36 díóður. Þá gætir þú gert ráð fyrir 5 lengjum af ledum, en notar bara 3 til að byrja með, þannig að þú gætir bætt við 2 lengjum seinna meir ef þér svo sýndist. Þú þyrftir líklega að gera ráð fyrir einhverri loftræstingu í lokinu, t.d. viftu. Það eru til fínar viftur á lítinn pening sem heyrist ekkert í (bókstaflega).
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Re: Langar þig að prófa LED lýsingu?

Post by keli »

Fyrir forvitna þá hef ég verið að festa þetta svona saman:
Image

Það er hægt að nota ýmislegt sem kæliplötu, til dæmis ef maður er með állok þá er hugsanlega hægt að nota lokið sjálft með kæliplötu. Það þarf ekki endilega að nota skrúfur til að festa LEDin við kæliplötuna - einnig er hægt að fá hitaleiðandi epoxy og einfaldlega líma LEDin við kæliplötuna.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Ostur
Posts: 7
Joined: 13 Jun 2010, 20:59
Location: Grundó

Re: Langar þig að prófa LED lýsingu?

Post by Ostur »

Er eithvað verið að nota linsur eða er það alger óþarfi? hef sé eithvað minnst á það á erlendum forums, til að ná alla leið niður á botn og fá víðara birtu svið. Ertu bara með sömu liti af led ljósum eða hefuru eithvað fyrir nætur lýsingu líka?? (tunglskin)
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Re: Langar þig að prófa LED lýsingu?

Post by keli »

Ég er bara með hvítar díóður en get alveg reddað bláum líka. það er samt óþarfi að nota svona öflugar díóður í tunglsljós, það dugar alveg að nota litlar 5mm díóður og svo eru þær líka ódýrari.

Varðandi linsur þá þarf það venjulega ekki í ferskvatnsbúr, en í saltvatnsbúr þarf maður að fara að skoða það ef búrið er dýpra en 30-40cm. Það fer þó líka mikið eftir því hvað maður ætlar að vera með í búrinu. Ef maður setur linsur (40-60 gráðu) þá þarf maður auðvitað að hafa díóðurnar þéttari til að fá jafna lýsingu. Sem þýðir að maður þarf fleiri díóður, öflugri kæliplötu og aukinn kostnað.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Re: Langar þig að prófa LED lýsingu?

Post by keli »

Ég eitthvað af díóðum ef einhverjum langar að prófa led lýsingu :)
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Post Reply