Biluð tunnudæla

Spurningar og svör um uppsetningu búra, sjúkdóma, hvaða fiskar passa saman osf.

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
User avatar
Sibbi
Posts: 1131
Joined: 09 Aug 2010, 18:29
Location: Hafnarfjörður

Biluð tunnudæla

Post by Sibbi »

Eitthvað er Eheime Professional ll tunnudælan mín að stríða mér.
Ég veit ekki hvað þetta heitir, en um er að ræða segulinn og dæluhjólið, virðist vera einhver stirðleiki í því, stoppar, en fer aðeins af stað ef ég banka í það, eða húsið.

Ég reif þetta í sundur, en sé náttúrulega ekkert hvað er að, er þetta bara slit?

Hefur einhver lent í þessu með Eheim Professional ll dælu?

Er hægt að kaupa í þetta? einhvernveginn sýndist mér ég eingöngu getað skipt um segulkólfinn sem plastdæluhjólið er á.
Sibbi. Ólæknandi og óviðbjargandi dellukarl.
Sími: 860 0 860. (Nova)
Netfang: iceland@internet.is
User avatar
Guðjón B
Posts: 1510
Joined: 13 Mar 2009, 13:59
Location: Kópavogur
Contact:

Post by Guðjón B »

þetta var held ég eitthvað svipað hjá mér.. þá var gatið í gegnum rotorinn orðið egglaga
Kv. Guðjón Bergmann
180L
54 L
User avatar
Sibbi
Posts: 1131
Joined: 09 Aug 2010, 18:29
Location: Hafnarfjörður

Post by Sibbi »

Guðjón B wrote:þetta var held ég eitthvað svipað hjá mér.. þá var gatið í gegnum rotorinn orðið egglaga

Ok, og er þá dælan bara ekki ónýt? maður þarf þá sennilega að kaupa allan hausinn ofaná tunnuna.

Hvað var þín orðin gömul? þessi er búin að ganga stanslaust í held ég þrjú ár, finnst það nú engin spes ending, minnir að hún hafi kostað 40 + - á sínum tíma.
Sibbi. Ólæknandi og óviðbjargandi dellukarl.
Sími: 860 0 860. (Nova)
Netfang: iceland@internet.is
User avatar
Guðjón B
Posts: 1510
Joined: 13 Mar 2009, 13:59
Location: Kópavogur
Contact:

Post by Guðjón B »

hún er ekki baun í bala ónýt.. maður fær bara nýjan rotor ;)
Kv. Guðjón Bergmann
180L
54 L
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Það getur verið erfitt að fá rótorinn og hann er dýr.
Ég held ég eigi þrjár Eheim dælur með ónýtum rótor.
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Dýr hérna, en er hann ekki á þolanlegra verði á netinu? Vitiði part númer?
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Sibbi
Posts: 1131
Joined: 09 Aug 2010, 18:29
Location: Hafnarfjörður

Post by Sibbi »

keli wrote:Dýr hérna, en er hann ekki á þolanlegra verði á netinu? Vitiði part númer?
Neibb, finn ekkert slíkt.
Sibbi. Ólæknandi og óviðbjargandi dellukarl.
Sími: 860 0 860. (Nova)
Netfang: iceland@internet.is
Post Reply