Þrif á smáum fiskabúradælum

Greinar um fiska og umhirðu þeirra

Moderators: Vargur, Andri Pogo

Post Reply
User avatar
~*Vigdís*~
Posts: 525
Joined: 20 Sep 2006, 19:03
Location: Úthverfi dauðans Aldur: 30ára
Contact:

Þrif á smáum fiskabúradælum

Post by ~*Vigdís*~ »

Hef verið spurð svo oft um þetta um dagana
hvernig maður hreinsi fiskabúra dælur svo ég ákvað að skella
inn smá svona skref fyrir skref leiðbeiningum, þá get ég alltaf bara
bent á þetta :lol: og jafnvel aðrir :D

Það er ALDREI notuð sápa til að þrífa dælur eða neitt
tengt fiskabúrum. Þú notar bara vatn og skrúbb sem keyptur er sérstaklega
í fiskabúra stúss. Gott er að merkja þessi verkfæri ''fiskar'' svo enginn á
heimilinu noti þau fyrir slysni í sápu vinnu.
Mér finnst alltaf gott að eiga nokkrar stærðir af flöskuburstum,
uppþvottabursta og svo skrúbbsvamp.

Takið dæluna úr sambandi, verið með skál tilbúna og setjið dæluna í.
Besta vinnu aðstaðan er við vaskaborðið í eldhúsinu.

Image
Takið hólkinn af sem inniheldur filter efnið
(í tilfellinu á myndinni er það verksmiðjuframleiddur svampur)

Image
Skolið filter efnið mjög vel og kreistið undir vatnsbununni þar
til hættir að koma óhreinindi með vatninu sem kreistist úr.
Skolið einnig hólkinn vel, gott er líka að bursta hann.

Image
Fjarlægið úrtakið af og þrífið vel rörin með flöskubursta af minnstu gerð.
Image
Takið botninn af dælunni
(þann hluta sem filter hólkurinn var festur á)

Image
Þar undir sjáið þið rótorinn sem eru litlir spaðar,
Image
hann þarf að taka úr og fara með flöskubursta ofan í holuna sem hann var í.
Image
Takið framhliðina af, hún er oftast stíf á flestum tegundum dæla.
Image
Farið með flöskubursta í gegnum öll rör sem liggja á henni
og takið af alla smáhluti, á þessari dælu sem myndin sýnir
þurfti t.d. að taka af pinna sem stýrir kraft vatnsins sem dælan dælir.

Image
Setjið dæluna aftur saman, í búrið og stingið í samband :D

Gangi ykkur vel ;)
Birkir
Posts: 1150
Joined: 22 Oct 2006, 13:34
Contact:

Post by Birkir »

Flott!
Rúnar Haukur
Posts: 160
Joined: 13 Nov 2006, 19:13
Location: Akureyri - norðan við á
Contact:

Post by Rúnar Haukur »

Flottar leiðbeiningar - meira svona takk :)
Birkir
Posts: 1150
Joined: 22 Oct 2006, 13:34
Contact:

Post by Birkir »

Ég var einmitt að fá svona dælu um daginn sem ég ætla að skella í stóra búrið til bráðabyrgðar til að hjálpa Eheim 1000l dælunni. Þessir kanar eru svo miklir drulluspaðar.
Post Reply