***Búrin mín - BRYNJA ***

Umræður um afrískar sikliður og amerískar í stærri kantinum

Moderators: Vargur, Hrappur, Ásta

Post Reply
User avatar
Brynja
Posts: 1507
Joined: 04 Nov 2007, 20:36
Location: Fædd:1980

***Búrin mín - BRYNJA ***

Post by Brynja »

Hérna er þráður um búrin mín tvö og fiska sullið okkar fjölskyldunnar í gegnum tíðina...

Fyrst keyptum við 100L búr í kringum árið 2000.. en við stækkuðum fljótlega við okkur upp í 400L sem við eigum í dag... Ég seldi 100lítrana fyrir 3 árum.

Í dag eigum við enn þetta 400L og 125L Juwel á útsölu hjá Fiskabúr.is
Það eru allar tegundir búnar að vera 400L búrinu.. reglulega skipt út.. og nýjast er það að við létum hóp af misstórum gullfiskum upp í kokteil af Amerískum síkliðum..

Síkliðurnar koma allar frá Vargi og fiskabúr.is
Svona er búrið í dag...

Convict par..
Kerla..
Image
kallinn...
Image

4 oscarar... (vantar mynd af einum)
Image
Image
Image
Jack Dempsey..
Image

einnig er ég með..
2 Severum..
Image
2 Festae / red terror...
.... vantar góða mynd af þeim....
2 Hypsophrys nicaraguensis..
Image
2 Temporalis...
Image

svo er ég með einn fullvaxta Gibba.. 32cm
Image
og Synodontis...
Image

Svo að lokum erum við með 4 Procambarus Fallax - Humra...
Image
Image

Það eru miklar breytingar búnar að vera undanfarið í búrinu.. í næsta þræði verð ég með fyrir og eftir myndir...
Last edited by Brynja on 12 Nov 2009, 09:20, edited 2 times in total.
User avatar
jeg
Posts: 701
Joined: 30 Aug 2007, 22:58
Location: Hrútafjörður
Contact:

Post by jeg »

VÁ.... þetta eru askoti flottir fiskar hjá þér :wink:
Og verður gaman að sjá heildarmynd af búrinu.
Það spillir ekki fyrir að vera góður ljósmyndari :)
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Næs fiskar.

Gibbinn er sérlega flottur.
User avatar
Brynja
Posts: 1507
Joined: 04 Nov 2007, 20:36
Location: Fædd:1980

Post by Brynja »

Síkliðurnar eru allar mjög ungar og eru þvi algjör beibí ennþá.. hlakka mikið til þegar þær stækka... svo get ég ekki beðið eftir að sjá seiði hjá Convict parinu :wub:

Gibbinn er djásnið í búrinu.. í algjöru uppáhaldi hjá okkur :wub:
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

óskararnir eiga fyrr en seinna eftir að reyna að éta humrana... Þú veist þá allavega af því :) Þeir eru með ótrúlega stóran kjaft, og reyna að troða öllu uppí hann.

Fínir fiskar, það er alltaf gaman að kaupa þá svona litla og sjá þá stækka.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Brynja
Posts: 1507
Joined: 04 Nov 2007, 20:36
Location: Fædd:1980

Post by Brynja »

keli wrote:óskararnir eiga fyrr en seinna eftir að reyna að éta humrana... Þú veist þá allavega af því :) Þeir eru með ótrúlega stóran kjaft, og reyna að troða öllu uppí hann.

Fínir fiskar, það er alltaf gaman að kaupa þá svona litla og sjá þá stækka.
Vargurinn var búin að vara mig við þessu.. svo að fyrir rest þá fá þeir sér bara bita eða ég næ að selja humrana.. :)

Já þetta er mjög spennandi að sjá greyjin litlu stækka og dafna... :wub:
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Laglegt, eru convictarnir ekki enn búnir að hrygna ?
User avatar
Brynja
Posts: 1507
Joined: 04 Nov 2007, 20:36
Location: Fædd:1980

Post by Brynja »

Vargur wrote:Laglegt, eru convictarnir ekki enn búnir að hrygna ?
nei það bólar ekkert á krílum.. það getur verið að það séu hrogn sem ég sjái ekki... :roll:

hvað eru hrognin lengi áður en krílin láta sjá sig?
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Gullfiskastelpa wrote:hvað eru hrognin lengi áður en krílin láta sjá sig?
Sérð syndandi kríli svona 1-1.5 vikum eftir hrygningu.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Þeir hrygna líka stundum ofan í mölina svo hrognin sjást ekki.
En þú gætir alveg eins þurft að bíða einhvern tíma.
User avatar
Brynja
Posts: 1507
Joined: 04 Nov 2007, 20:36
Location: Fædd:1980

Post by Brynja »

ok ... ég bíð spennt eftir barnabörnunum... hehehe :D

hérna er ég með nokkrar heildar myndir af búrinu...

svona var það fyrir sirka 3 árum..


Image
í því voru þá KOIjar og gull fiskar og Gibbinn góði.

Svo hérna er það rétt áður en ég seldi gullfiskana og skipti yfir í ameríkurnar... með á myndinni er Hrafn litli aparass.. :D
Image

ég á eftir að taka myndir af því eins og það er í dag... það gerist vonandi í kvöld eða á morgun...
Lexis
Posts: 89
Joined: 24 Jul 2007, 23:05

Post by Lexis »

Flott búr! Gibbinn þinn er ótrúlega flottur :)

Óskararnir eru ótrúlega skemmtileg kvikindi, mjög gaman að fylgjast með átvöglunum reyna að koma sem allra allra mestu upp í sig :P
User avatar
Brynja
Posts: 1507
Joined: 04 Nov 2007, 20:36
Location: Fædd:1980

Post by Brynja »

Lexis wrote:Flott búr! Gibbinn þinn er ótrúlega flottur :)

Óskararnir eru ótrúlega skemmtileg kvikindi, mjög gaman að fylgjast með átvöglunum reyna að koma sem allra allra mestu upp í sig :P
Já hann er algjört bjútí eins og eigandinn... hehehe :P

já Óskararnir verða stundum afvelta af átu.. leggjast á botninn til að melta... ....eins og eigandinn HAHAHAHA.. :lol: :lol:
Lexis
Posts: 89
Joined: 24 Jul 2007, 23:05

Post by Lexis »

Gullfiskastelpa wrote: já Óskararnir verða stundum afvelta af átu.. leggjast á botninn til að melta... ....eins og eigandinn HAHAHAHA.. :lol: :lol:
:lol: kannast við það, ótrúlegt hvað kemst upp í þá, alveg "ég get VÍST komið einni rækju í viðbót upp í mig" og svo stendur helmingurinn út :lol:
Birkir
Posts: 1150
Joined: 22 Oct 2006, 13:34
Contact:

Post by Birkir »

Þú átt eftir að verða heltekin af könunum. Þeir láta líka hafa svolítið fyrir sér.

Það er fátt fallegra en Festae kerling í vondu skapi eða þegar hún er gröð og gerir sig breiða. Makalaust.
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Þarna meinti Birkir auðvitað:
Það er fátt fallegra en Ásta kerling í vondu skapi eða þegar hún er gröð og gerir sig breiða.
Inga Þóran
Posts: 1482
Joined: 20 May 2007, 01:16
Location: rvk

Post by Inga Þóran »

Ásta wrote:Þarna meinti Birkir auðvitað:
Það er fátt fallegra en Ásta kerling í vondu skapi eða þegar hún er gröð og gerir sig breiða.

hahahahhaha :lol:
User avatar
pípó
Posts: 1172
Joined: 05 Apr 2007, 09:28

Post by pípó »

Ég væri nú til í að sjá video af því Ásta :-)
User avatar
Brynja
Posts: 1507
Joined: 04 Nov 2007, 20:36
Location: Fædd:1980

Post by Brynja »

hehe.. fiskabúrsþráðurinn minn er farinn að vera um graðar breiðar kerlíngar...

huggulegt :P ..

Ég held að ég verði að setja inn myndir hérna svo að þetta fari að fjalla um fiska aftur.. 8)
User avatar
Brynja
Posts: 1507
Joined: 04 Nov 2007, 20:36
Location: Fædd:1980

Post by Brynja »

Það er ansi mikið búið að gerast í búrinu síðustu daga... ég asnaðist til að setja plat-plöntur í það og það var einn góður maður sem sagði mér að það gengi ekki svo hann lét mig hafa alvöru stuff...

Ég færði aðeins til í búrinu, færði rót og steina og svo settum við spegla á perurnar til að fá betri birtu í búrið... Við keyptum líka 2 vinnukonur í búrið til að ná að ryksuga í hornin þar sem gibbinn nær ekki.

Svo að núna er búrið 700x fallegra og við fjölskyldan erum að njóta þess alveg í oní ra**g*t.. :)

Það er líka betra núna að taka heildarmyndir af búrinu þar sem það er bjartara.. svo það þurfi ekki að faraí ISO 400. Reyni alltaf að taka sem mest á ISO 100.. til að fá sem tærustu myndirnar.

hérna er búrið eins og það er í dag.

Image

Image

Svo er annað að frétta úr búrinu.. okkur sýnist stæðsti humarinn vera að fjölga sér... hann sést ekki og við héldum að hann væri :omg: dauður.. en svo þegar ég lifti upp rótinni til að færa hana þá lá hann þar undir í kuðung og gat varla gengið.. þegar ég skoðaði hann nánar þá voru á honum egg og núna fer örugglega að koma að því að við förum að sjá litla humra um allt... fínt fóður fyrir óskarana :D

Image
Image

Ég get ekki beðið eftir að sjá seiði og litla humra í búrinu :wub:
Inga Þóran
Posts: 1482
Joined: 20 May 2007, 01:16
Location: rvk

Post by Inga Þóran »

fínt búr hjá ykkur :)
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Laglegt.
Allt annað eftir að plastblómin fóru. Þau ekki alveg fullorðins. :)
Mér sýnist maður sjá dagamun á þessum óskurum, spurning hvort eitthvað fleira en humrabörnin endi sem matur. :?
User avatar
Brynja
Posts: 1507
Joined: 04 Nov 2007, 20:36
Location: Fædd:1980

Post by Brynja »

Vargur wrote:Laglegt.
Allt annað eftir að plastblómin fóru. Þau ekki alveg fullorðins. :)
Mér sýnist maður sjá dagamun á þessum óskurum, spurning hvort eitthvað fleira en humrabörnin endi sem matur. :?
já það er spurning.. ég er ekki alveg til í að láta þá ná í t.d. litla FireMouth kjána... :?
User avatar
Brynja
Posts: 1507
Joined: 04 Nov 2007, 20:36
Location: Fædd:1980

Post by Brynja »

Eins og glöggir menn og konur hafa tekið eftir þá hef ég sagt skilið við smá part af gelgjunni í mér og ákveðið að breita um nikk..

Svo líka hef ég sagt skilið við Gullfiskana í bili.

fór úr barnadótinu í fullorðins
User avatar
Piranhinn
Posts: 917
Joined: 22 Apr 2007, 15:55
Location: Hafnarfjörður
Contact:

Post by Piranhinn »

hvað ákvaðstu að fá þér í staðinn fyrir gullfiskana?
User avatar
Brynja
Posts: 1507
Joined: 04 Nov 2007, 20:36
Location: Fædd:1980

Post by Brynja »

Piranhinn wrote:hvað ákvaðstu að fá þér í staðinn fyrir gullfiskana?
Við erum núna með...
*3 fallax-humra.. einn af þeim er með halann fullan af eggjum.
*1 gibba og 2 litlar vinnukonur/glersugur
* 2 Hypsophrys nicaraguensis
* 2 severum
* Convikt par
*1 Jack Dempsey
* 2 Festae - red terror / þeir eru núna farnir að sýna geggjaðan lit. svart og appelsínugult.
*2 Temporalis
* svo er ég að fá 4 firemouth til viðbótar.

Það er svo gaman að kaupa svona mikið af ungum fiskum og sjá þá stækka og alast upp saman.
Last edited by Brynja on 11 Dec 2007, 12:55, edited 1 time in total.
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Piranhinn wrote:hvað ákvaðstu að fá þér í staðinn fyrir gullfiskana?
Einn sem las ekki þráðinn. :D
User avatar
Brynja
Posts: 1507
Joined: 04 Nov 2007, 20:36
Location: Fædd:1980

Post by Brynja »

hehe nákvæmlega :lol:
En ég ákvað samt að koma aftur með talningu fyrir þá sem sjá ekki svona hátt :wink:
User avatar
Hrappur
Posts: 459
Joined: 16 Sep 2006, 16:28

Post by Hrappur »

helv. flott!
User avatar
Piranhinn
Posts: 917
Joined: 22 Apr 2007, 15:55
Location: Hafnarfjörður
Contact:

Post by Piranhinn »

ég er einmitt rosalega mikið fyrir "page down" hnappinn og fór þá væntanlega yfir uppfærsluna *roðn*
Post Reply