60L saltvatnsbúr í bígerð

Umræður um sjávarbúr, fiska, lífríki og búnað.

Moderators: keli, Squinchy, ulli

Post Reply
User avatar
davidge
Posts: 59
Joined: 01 Mar 2009, 14:59
Location: Hafnarfjörður

60L saltvatnsbúr í bígerð

Post by davidge »

Er að vinna í uppsetningu á 60L saltvatnsbúri, sem ég ætla hafa trúða, rækju,krabba og svo kannski einhverja auðvelda kóralla í.
En þar sem hér eru meiri sérfræðingar en ég, þá vil ég leggja undir ykkur hvort að þetta sé eitthvað sem að gengur.

1X15W 10.000kelvin
1Xhydor ljós með 4 LED
2X Eheim aquaball 2208 dælur (150-480)L/H
50W hitari
Og svo verður náttúrulega eitthvað liverock og sandur.
Davíð Geirsson
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Glæsilegt :), þessi útbúnaður virkar vel, ættir að fá gott flæði frá dælunum :)

getur haft eitthverja sveppi og Zoa kóralla undir þessari lýsingu

Vantar bara seltu mælir á listann hjá þér og þá ertu í góðum málum :góður:
Kv. Jökull
Dyralif.is
User avatar
davidge
Posts: 59
Joined: 01 Mar 2009, 14:59
Location: Hafnarfjörður

Post by davidge »

Takk fyrir skjót svör.
Seltumælirinn er að sjálfsögðu á innkaupalistanum, en svo ég haldi nú áfram að spyrja, ætti ég að hafa filterana í dælunum, eða láta liverockið bara um þetta?
Davíð Geirsson
User avatar
Österby
Posts: 106
Joined: 11 Apr 2009, 18:26
Location: HFJ

Post by Österby »

Ég var með 50L svipaða uppsetningu í saltinu í u.þ.b 3-4 mánuði og var að stækka í 130L, var líka með 2 Eheim dælur hjá mér, ég hafði filterana í og það virkaði fínt þar sem það settist hellingur af lífi í þá.

Ég var með c.a 20% live rock í mínu og var í hlægilega litlum vandræðum með að halda því stabílu, bara 20-30% vatnaskipti vikulega og ekkert vandamál, aðal málið að starta búrinu með nokkrum molly eða fá skítugan svamp e-h staðar, fá sér síðan krabba og snigla eftir 1-2 vikur og þá loksins geturu sett í það 2-3 fiska :)

Annars á ég gamla Fluval 304 tunnudælu sem ég skal selja þér á slikk, það myndi gera gæfumun fyrir búrið. Ég hef engin not fyrir hana þar sem það er innbyggð í mínu :D
.-Ívar
130L Sjávarbúr
User avatar
EiríkurArnar
Posts: 475
Joined: 30 Nov 2008, 21:18
Location: Garður

Post by EiríkurArnar »

það er alltaf sagt við mig að það sé nóg að skipta 10% vikulega
User avatar
davidge
Posts: 59
Joined: 01 Mar 2009, 14:59
Location: Hafnarfjörður

Post by davidge »

Ég hugsa að ég prófi þetta fyrst bara með aquaball dælunum, en ég þakka gott boð.
Davíð Geirsson
User avatar
Österby
Posts: 106
Joined: 11 Apr 2009, 18:26
Location: HFJ

Post by Österby »

EiríkurArnar wrote:það er alltaf sagt við mig að það sé nóg að skipta 10% vikulega
Fer allt eftir stærð búrs og búnaði, fyrir 50L nanó er nítrat/nítrít iðulega mjög óstabílt því æskilegt að skipta um sem mest án þess að skaða lífríkið. Þrátt fyrir að ég náði að minnka skiptin rækilega eftir að ég fékk tunnudæluna.

Betri búnaður = minni vatnaskipti = spar :D
.-Ívar
130L Sjávarbúr
User avatar
EiríkurArnar
Posts: 475
Joined: 30 Nov 2008, 21:18
Location: Garður

Post by EiríkurArnar »

ég er með 54l og það er eiginlega mælt með 10% hvort sem það er netinu eða hinum og þessum verslunum...en ég er svo sem enginn sérfræðingur :)
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Í flestum tilvikum eru 10% vikulega að gera meira en nóg, en ef 10% nægir ekki þá er oftast eitthvað vandamál eins og skítugir svampar eða slök Bio filteringí LR og LS

Ég persónulega vel náttúrulegu leiðina (fyrir utan skimmer sem ég nota) og sleppi svömpum nema þá bara hvítan bómull til að fín pússa vatnið en sá bómull er tekinn úr eftir max 7 daga
Kv. Jökull
Dyralif.is
User avatar
davidge
Posts: 59
Joined: 01 Mar 2009, 14:59
Location: Hafnarfjörður

Post by davidge »

Ég er búin að fá 8kg af kóralsandi, en hvað ætli ég þurfi af liverock?
Davíð Geirsson
User avatar
EiríkurArnar
Posts: 475
Joined: 30 Nov 2008, 21:18
Location: Garður

Post by EiríkurArnar »

3-20 kg :)
User avatar
davidge
Posts: 59
Joined: 01 Mar 2009, 14:59
Location: Hafnarfjörður

Post by davidge »

Jæja þá er ég búinn að setja búrið í gang.
Og nú er bara að bíða og sjá.


Image

Það er ennþá svolítið grugg.

Image

Image
Last edited by davidge on 19 Aug 2009, 16:52, edited 1 time in total.
Davíð Geirsson
ulli
Posts: 2777
Joined: 08 May 2007, 00:45
Location: Ísland

Post by ulli »

2 Aquaball++ :)
User avatar
Österby
Posts: 106
Joined: 11 Apr 2009, 18:26
Location: HFJ

Post by Österby »

lýst vel á þetta :góður:
.-Ívar
130L Sjávarbúr
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Mjög flott búr :)
Kv. Jökull
Dyralif.is
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Enginn fiskur kominn í búrið ? :)
Kv. Jökull
Dyralif.is
User avatar
davidge
Posts: 59
Joined: 01 Mar 2009, 14:59
Location: Hafnarfjörður

Post by davidge »

Jú jú mikil ósköp, er kominn með trúð og Goby, man ekki hvaða Goby samt, hreinsirækju og rauðan Hermit.
Þarf samt að fá mér snigil í þörunginn.
Ég hendi inn myndum við tækifæri.
Davíð Geirsson
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Okei snilld :), endilega koma með myndir :)
Kv. Jökull
Dyralif.is
Post Reply