Trúðar hræddir við anemónu?

Umræður um sjávarbúr, fiska, lífríki og búnað.

Moderators: keli, Squinchy, ulli

Post Reply
RosaH
Posts: 103
Joined: 29 Mar 2009, 21:15

Trúðar hræddir við anemónu?

Post by RosaH »

Fékk mér anemónu á fimmtudaginn, stór malu anemónía, að mér sýnist. Er með 2 rauða trúða í búrinu, og síðan ég setti hana í búrið eru þeir alltaf hinu megin í búrinu að fela sig við power headinn, og rétt koma yfir á hinn endann þegar ég gef þeim að borða þar (er með feeding hring þeim megin) og halda sér þá alltaf sem lengst frá anemónunni.

Tekur það trúða svona langan tíma að venjast anemónunum, eða getur verið að þeir bara vilji hana ekki?
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Ég fékk mína anemone í lok nóvember '08 og mínir trúðar vildu ekki sjá hana fyr en nýlega
Last edited by Squinchy on 05 Apr 2009, 18:15, edited 1 time in total.
Kv. Jökull
Dyralif.is
RosaH
Posts: 103
Joined: 29 Mar 2009, 21:15

Post by RosaH »

ok. Langaði annars líka að spurja... ég fór í dýralíf um daginn og keypti salt í búrið mitt hjá þeim og hann átti bara eitthvað sem var í töfluformi. Ég keypti það en leyst svo ekkert á það svo ég fór og keypti þetta venjulega í dýragarðinum. Nú er ég í krísu og bráðvantar salt NÚNA og á ennþá þessar töflur. Ég er að pæla, ER þetta í sjávarbúr eða er þetta bara eitthvað sem er notað til að bæta vatnið hjá KOI fiskum eða eitthvað. fannst þetta eitthvað svo ótrúlegt, því sölumaðurinn sagði að það ætti að fara EIN tafla í 60 lítra af vatni, sem ég er svona... ekki beint að trúa..
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Afar ólíklegt að þetta sé salt sem þú átt að nota í saltvatnsbúr.. Hvað stendur utaná þessu? Hvað heitir þetta?


Sumir trúðar fara aldrei í anemónur.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Þessar töflur eru ekki ætlaðar fyrir saltvatns fiska, þetta er ætlar fyrir KOI og venjulega ferskvatns fiska

Alltaf nota salt sem er sérstaklega hannað fyrir saltvatnsfiska, það átti að koma salt á mjög góðu verði með seinustu sendingu en það kom ekki :(
Kv. Jökull
Dyralif.is
ulli
Posts: 2777
Joined: 08 May 2007, 00:45
Location: Ísland

Post by ulli »

ég er að fá 10kg af red sea salti á rúman 7þ kall
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

ulli wrote:ég er að fá 10kg af red sea salti á rúman 7þ kall
hvar?
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
ulli
Posts: 2777
Joined: 08 May 2007, 00:45
Location: Ísland

Post by ulli »

hvar helduru :P

Furðufuglar.

það er reyndar 15% afls

fann hvitunnina
8827kr fyrir utan hann.

veit eithver hvar maður getur feingið fljótandi fæði fyrir kóralla á normal verði?.er $$#%" dyrt hjá F&F
RosaH
Posts: 103
Joined: 29 Mar 2009, 21:15

Post by RosaH »

veit ekki hvað gaurinn var að rugla með að selja mér þetta. Þetta er bara ómerkt, 6 töflur í rennilásapoka sem þeir hafa ábyggilega sett þær í sjálfir. Náði að redda mér salti, það var ennþá opið í Dýraríkinu í Blómavali. Áttu ekkert stærra en 2kg, en það þugar í bili.
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Hefur örugglega haldið að þig vantaði salt fyrir ferskvatns búr, en hvað eru 2.kg að kosta í dýraríkinu ?

Hvenær á svo að sýna okkur búrið þitt :D
Kv. Jökull
Dyralif.is
RosaH
Posts: 103
Joined: 29 Mar 2009, 21:15

Post by RosaH »

er að skipta um vatn núna, skal svo taka mynd. Ekki mikið í því. 2 rauðir trúðar, 2 cleaner shrimp og malu anemónan, og svo live rock og kaktus þörungur :-D

2 kílóin áttu að kosta 2700 í dýraríkinu, en það var vitlaust verðmerkt svo ég fékk þau á 1900 :P
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Glæsilegt :D
Kv. Jökull
Dyralif.is
Post Reply