Nano búr

Umræður um sjávarbúr, fiska, lífríki og búnað.

Moderators: keli, Squinchy, ulli

Post Reply
oddi302
Posts: 74
Joined: 01 Dec 2008, 00:17

Nano búr

Post by oddi302 »

Gæti einhver gefið mér upplýsingar um það hvað ég þyrfti ef mig langaði að prófa að starta 10-15L sjávar nanó búri.(kannski max 20L)
Ég veit það að það er ekki auðvelt og ég þarf enga pósta um hvað það er erfitt.
Endilega komið með comment um tækjabúnað sem ég þyrfti í þetta og eins hvernig þið munduð setja þetta upp ef þið munduð prófa þetta.
Er ekki útilokað að vera með fiska í svona litlu búri eða gæti gengið að vera kannski með 1stk af einhverri harðgerðri tegund?
Er reyndar aðallega að hugsa um að vera með liverock og kóralla.

Kv Öddi
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Lýst vel á þessa tilraun :)

hlutir sem þú þarft eru:
Hitari
Ljós
Straumdælu kannski í kringum 150-300L/h (Ég er með 2x 300L/h í 18 lítra Nano búri + Aquaclear 50)
Mæli með Aquaclear 50 (Eða AC70) og breyta henni svona http://www.fiskaspjall.is/viewtopic.php?t=3567
3 - 4.kg LS
2 - 3.kg LR

Getur sett 1 fisk í þetta búr, mæli með
Green Chromis Damsel eða Yellowtail blue Damsel
Kv. Jökull
Dyralif.is
oddi302
Posts: 74
Joined: 01 Dec 2008, 00:17

Post by oddi302 »

Smá pælingar í gangi :oops:
Væri séns að vera með tunnudælu við þetta setup og ef það væri séns hvað þyrfti hún að vera stór?
Ef það er möguleiki að vera með tunnudælu mundi ég þá ekki sleppa við að vera með powerhead?
Var nefnilega að spá í tunnudælu með innbyggðum hitara :oops:
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

það er í góðu lagi.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Arnarl
Posts: 1233
Joined: 15 Feb 2008, 22:26

Post by Arnarl »

ef þú ert með góða tunnudælu geturu allveg sloppið við að hafa power head :-)
Minn fiskur étur þinn fisk!
oddi302
Posts: 74
Joined: 01 Dec 2008, 00:17

Post by oddi302 »

Hvað yrði þá að vera cirka lágmarksstærð á dælunni fyrir cirka 20L búr?
Hvað er mælt með að sjórinn sé að hringrása mikið á klukkutíma svona lágmark?
User avatar
Arnarl
Posts: 1233
Joined: 15 Feb 2008, 22:26

Post by Arnarl »

minnir að það sé sirka 5 sinnum á klukkutíma, fyrir 20 lítra búr er það frekar lítil tunnudæla.
Minn fiskur étur þinn fisk!
ulli
Posts: 2777
Joined: 08 May 2007, 00:45
Location: Ísland

Post by ulli »

10 falt minimun hef ég heyrt
User avatar
EiríkurArnar
Posts: 475
Joined: 30 Nov 2008, 21:18
Location: Garður

Post by EiríkurArnar »

7-10x samkvæmt nano-reef.com fyrir powerhead
tala ekkert um tunnudælu.
Samkvæmt nano-reef.com er eina sem þú þarft LS, LR og powerhead 7-10xbúrstærð.
Þannig settup getur virkað fyrir stærri búr líka.
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Það er engin föst regla með þetta, fer allt eftir því hvernig flæðinu er dreift og hvernig búrið er innréttað.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
oddi302
Posts: 74
Joined: 01 Dec 2008, 00:17

Post by oddi302 »

Hvernig er best að leysa ljósastæðumálin ef búrið verður 25x25x25.
Er hægt að fá í einhverjum verslunum complett ljósastæðu sem ég gæti nýtt í þetta eða verð ég að útbúa eitthvað sjálfur, hugmyndin er að hafa þetta opið búr ef það er séns.
Þetta verður að vera nokkuð snyrtilegt þar sem þetta verður smá stofustáss hjá mér og eins má ljósið náttúrulega ekki pirra augun ef maður er að horfa á búrið.
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Frekar ólíklegt að búðir hafi lok í þessari stærð en þú ættir að prófa þá í Flúrlömpum þeir geta örugglega sett saman eitthvað töff T5 ljós sem þú getur látið dangla niður úr loftinu yfir búrinu Eitthvað eins og svona http://shwasa.com/images/aquarium/diy/p ... l_done.jpg

Láta það síðan vera 5 - 10 cm frá vatninu
Kv. Jökull
Dyralif.is
Post Reply