Nano S3

Umræður um sjávarbúr, fiska, lífríki og búnað.

Moderators: keli, Squinchy, ulli

User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

hvað ertu svo með til þess að stjórna dælunni? Bara flotrofa tengdan beint við dæluna?
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Eins og þetta er núna þá er ekkert sem stjórnar dælunni nema þegar ég sting henni í samband, hef ekki haft tíma til að koma flotrofa kerfinu upp en ég er að vinna í því núna svo það verður vonandi komið í gang í kvöld

Mun tengja þetta svona
Image

Mun þó líklega bæta inn 2 flotrofum í viðbót, einn sem passar að slökkva á kerfinu ef of mikið vatn er komið í búrið og annar sem verður í tunnunni sem lætur mig vita þegar vatnið er búið
Kv. Jökull
Dyralif.is
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Duga ekki 2 flotrofar? Einn sem segir til um að það búrið upp sé fullt, og einn sem segir að fatan sé tóm...
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Jú það væri svosem hægt að gera það þannig en þetta er bara bráðabyrgða uppsetning hjá mér fram yfir helgina

Planið er að tengja þetta svona til frambúðar
Image
Flotrofi 1 setur kerfið í gang og K1 (11/14) heldur því í gangi og K1(24/21) Setur dæluna í gang
Þegar vatnið nær upp að flotrofa 2 tekur hann strauminn af

En þegar flotrofi fötu er opinn þegar vatnið er búið kemst ekkert í gang

Eina sem mig vantar til að klára þetta er PVC rör sem ég get búið til plötu úr til að mynda svona festingu fyrir rofana
Image

Hérna er búnaðurinn kominn upp og í gang
Image
Image
Kv. Jökull
Dyralif.is
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Toadstool fröggin lifa öll góðu lífi og eru byrjuð að mynda flottan og góðan "fót"

Gamli fóturinn er byrjaður að mynda haus þannig að 6 Toadstool eru í búrinu núna :)

Anemonean virðist hress og er komin bak við grjót hleðsluna

Candy cane kórallinn fjölgar sér eins og hann sé á bankastjóra launum
Kv. Jökull
Dyralif.is
ulli
Posts: 2777
Joined: 08 May 2007, 00:45
Location: Ísland

Post by ulli »

Bítta Toadstol á móti Pink Bush?.
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Það gæti gerst, sendu mér góða close up mynd af honum í EP :)

En nýr kórall er kominn í búrið og mun það vera Briareum fragg, er byrjaður að opna sig smá og lookar mjög vel :)
Image

Svo nokkrar heildar myndir víst ég tók stóru myndavélina í hendina :)
Image

Image
Kv. Jökull
Dyralif.is
svavarm
Posts: 50
Joined: 07 Jan 2009, 23:27

Post by svavarm »

Vá, nice búr. Mjög hrifinn af lýsingunni hjá þér, ertu að nota T5?

Þetta er kannski bjánaleg spurning en ég hef oft verið að pæla í því hversvegna stúturinn efst til vinstri er í flestum sjávarbúrum, er þetta straumdæla?
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Takk :), lýsingin er 1* 150W 20K HQI lampi og 2* 36W Actinic T5PC perur svo ein LED sem sér um næturlýsinguna (640Nm)

Já þetta er straumdæla :)
Kv. Jökull
Dyralif.is
svavarm
Posts: 50
Joined: 07 Jan 2009, 23:27

Post by svavarm »

MH lampi þá? Hvar fær maður svoleiðis á íslandi??
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Já þetta er MH, Færð Electronic ballast á fínasta verðinu í bænum hjá Rafkaup Ármúla 24, þeir hafa líka lampa hýsingu sem ég er mjög ánægður með

Svo pantaru peruna bara af ebay eða kaupir hana hérlendir fyrir milljón og 10 tær

Nokkrar myndir sem ég tók áðan
Red People Eaters fragg
Image
Green Button Polyp
Image
Toadstool "Fóturinn" farinn að vaxa :D
Image
Red Scallop
Image
Red People Eaters Mother colony
Image
Candy Cane fragg
Image
Furry Green Mushroom
Image
Briareum farinn að opna sig meir :D
Image
Kv. Jökull
Dyralif.is
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

...
Last edited by Jakob on 26 Jun 2009, 12:17, edited 1 time in total.
400L Ameríkusíkliður o.fl.
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Takk :), á ekki að opna sig meira
Kv. Jökull
Dyralif.is
User avatar
Agnes Helga
Posts: 1580
Joined: 18 Nov 2006, 14:05

Post by Agnes Helga »

Mjög fallegt búr hjá þér :)
450 L amerískar síklíður, 120 L guppy/smáfiska gróðurbúr, 180 L malawii/skjaldböku búr og 85 L seiðabúr
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Takk fyrir :)
Kv. Jökull
Dyralif.is
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Jæja þá er búrið orðið 4 mánaða gamalt og braggast vel :), Anemone er ennþá að fara í taugarnar á mér :P, er búin að troða sér aftur yfir RPE Zoa

Furry Green Mushroom er að fara í fröggun bráðlega, er búinn að vera lesa mig til um þetta og stúdera :)

Nokkrar myndir af búrinu
Image

Yfirfallið er að gera sitt með að halda yfirborðinu hreinu, það er einhver Mosi eða eitthvað álíka komið á koralia dæluna, fer vonandi á klór bað á næstu dögum
Image

Image
Kv. Jökull
Dyralif.is
ulli
Posts: 2777
Joined: 08 May 2007, 00:45
Location: Ísland

Post by ulli »

flottur mosi..leifa honum bara að vera :P

er smá af þessu hjá mér.
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Finnst hann vera hefta flæðið á dælunni, er svolítið hræddur við að missa stjórn á þessum mosa, hann vex allt of hratt
Kv. Jökull
Dyralif.is
User avatar
drepa
Posts: 136
Joined: 16 Feb 2009, 09:46
Location: Hafnarfjörður 220

Post by drepa »

vá hvað mig klæjar í puttunana að byrja cycla búrið mitt þegar allt er til.

ógóflott

hvaða fiska ertu núna með í því?
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Flott búr og coralline greinilega að springa út hjá þér. Yfirlitsmyndin er svolítið yfirlýst þannig að allt lookar hvítt, væri flott ef þú gætir reddað mynd þar sem maður sér réttu litina :)
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

drepa: Haha já skil þig vel, er sjálfur spenntur haha :D, er með 2 yellow tail dampsel og 2 Clown fish

Já Coralline hefur tekið góðan vaxtar kipp :)
Fyndið að sjá hvað vöxturinn stoppar 5cm frá yfirborðinu

Já hef ekki náð takinu á því að taka góða heildarmynd :(
Kv. Jökull
Dyralif.is
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

...
Last edited by Jakob on 26 Jun 2009, 12:17, edited 1 time in total.
400L Ameríkusíkliður o.fl.
User avatar
drepa
Posts: 136
Joined: 16 Feb 2009, 09:46
Location: Hafnarfjörður 220

Post by drepa »

ég er allavega spenntur fyrir þessum

Green Chromis
Image

rooosalega flottir samann í torfum

ég gæti kanski max verið með 3
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Settu Koralia dæluna í klór í gær :) er alveg orðin sköllótt mér til mikillar ánægju, færði hana í leiðinni á bakvegginn, í þeirri von um að Anemone fari að róast og finni sér stað annan en bakvið grjóthleðsluna
Image

Er þessa dagana að íhuga það að láta iðntölvu í skápinn :D og láta hana stjórna lýsingunni, kælivitunum og sjálfvirka áfyllingarkerfinu

Langar einnig að skipta flotrofunum út fyrir nándar skynjara sem skynjar málm, fá mér litla málm kúlu sem flýtur og koma henni fyrir í plast röri :) hún sér þá um að segja tölvunni hvort þurfi að fylla á eða ekki

Tölvan er að gerð 620-DC-TC og framleidd af Moeller
Image
Hérna er ég aðeins búinn að vera fikta við þetta og búinn að forrita hana eins og ég myndi vilja hafa hana

Ljós 1 fyrir áfyllingar kerfið
Ljós 2 fyrir Actinic
Ljós 3 fyrir MH
Ljós 4 fyrir Næturlýsinguna (Slökkt á henni á daginn, þess vegna er ljósið ekki kveikt)
Ljós 5 fyrir kælivifturnar

Og þá á ég 3 útganga eftir sem ég get notað í hvað sem er :)

þessi tölva mun minnka innstungu þörfina heilan helling og auðvelda samstillingu tækjanna :)

Hvernig lýst ykkur á þessa hugmynd ?

Tók mynd í nótt af næturlýsingunni
Image
Mjög skemmtilegt að skoða búrið á þessum tíma (Eftir kl.00:00), þá koma öll litlu kvikindin út að skoða sig um
Kv. Jökull
Dyralif.is
ibbman
Posts: 271
Joined: 26 Jan 2009, 19:02

Post by ibbman »

Flott hjá þér, vá hvað þú hefur verið í rafvirkjanum... Var einmitt að læra á þessar tölvur sem þú ert með þegar ég var í skólanum :)
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Takk :) Jebb er á 5 önn :D
Kv. Jökull
Dyralif.is
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Ég er að gera svipaða hluti, nema ég er bara að nota combo af atmega168 microcontroller, flotrofum, viðnámum, transistorum, ljósdíóðum og þéttum :) Total cost uþb $10-15. Forrita draslið svo í C.


Hvar færðu svona iðntölvu annars? Hvað kostar hún og hvernig forritarðu hana?
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
ulli
Posts: 2777
Joined: 08 May 2007, 00:45
Location: Ísland

Post by ulli »

keli wrote:Ég er að gera svipaða hluti, nema ég er bara að nota combo af atmega168 microcontroller, flotrofum, viðnámum, transistorum, ljósdíóðum og þéttum :) Total cost uþb $10-15. Forrita draslið svo í C.


Hvar færðu svona iðntölvu annars? Hvað kostar hún og hvernig forritarðu hana?

þótt við séum komnir með svona finan salt þráð getum við kanski haldið okkur í islenskuni? :P

Edit.

annars er ég kominn með svona pox atb tölvu með sjálvirkum rafseglum ho2
og kjarnkljúfri.foritað með python foritun.
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Tölvuna fann ég þegar dýralíf flutti í húsnæðið á stórhöfða 15 ásamt helling að öðru skemmtilegum töflu einingum en tengibrettið fékk ég lánað úr skólanum

Held að reykjafell séu með þessar tölvur, það er hægt að forrita hana með takkaborðinu sem er á henni eða með því að tengja hana við tölvu með sérstakri snúru og forriti, frekar notendavænn :)
Kv. Jökull
Dyralif.is
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Ný straum dæla er komin í búrið :), dælan er af gerðinni Seio 530 (2000L/h), ætlaði fyrst að setja Seio 1000 (3800L/h) í búrið en það hefði verið allt of mikið þar sem 530 er alveg hellings nóg

Svo er kominn nýr kórall í búrið :), Hammerhead! sem er búinn að vera draumur síðan ég fór að hafa áhuga á saltvatns búrum :)

Anemone er kominn í miðja grjót hleðsluna sem er alveg frábært fyrir mig :), er þó reyndar ofan á RPE Zoa kóral en það væri svo sem alveg ásættanleg fórn ef anemone myndi halda sig þarna, ég reyni kannski að færa RPE er anemone færir sig örlítið aftar inn í hellirinn

Nokkrar myndir:
(Mynd af Seio1000)
Image
Mynd af Seio 530
Image
Hammerhead
Image
Anemone
Image
Einnig eru trúðarnir farnir að hýsa Anemone
Image
Image
Kv. Jökull
Dyralif.is
Post Reply