mitt fyrsta búr, ca 300l

Búrasmíði, bakgrunnar, lok osf

Moderators: Vargur, keli, Squinchy

Post Reply
Arnar_Þ
Posts: 7
Joined: 06 Mar 2011, 12:08

mitt fyrsta búr, ca 300l

Post by Arnar_Þ »

Eftir að hafa hlustað á vin minn tuða um fiska og þessa fiskaspjall síðu alla daga þá fékk ég veikina og ákvað að smíða mér búr í íbúðina mína. En svo ég kynni mig aðeins þá er ég 19 ára strákur frá Egilsstöðum en bý í Reykjavík...

Byrjaði á því að mæla fyrir búrinu en íbúðin er bara 42 fm svo það er mjög takmarkað pláss en stærðin á glerinu varð 100x50x60
og borðið undir búrið er 100x50x75.

Teiknaði þetta svo í sketchup

Image

Image

ætlaði að hafa svona hjól undir því en það breyttist...

28.jan glerið komið, 10mm þykkt og rúm 60 kg .. myndirnar eru teknar á síma svo gæðin eru afar takmörkuð

Image

Image
byrjað að líma

Image
búið að líma

Image
búið að lekaprófa og verið að tæma búrið..

Image
fræst úr fótunum fyrir hjólum sem bera 120 kg hvert hjól.

Image
hjólin komin í..

Image
ákvað að styrkja borðið meira og setti plötur á milli..

Image
verið að slípa til að fá allt slétt og fínt..

Image
lét beygja fyrir mig sýruburstað ál utan um borðið, lista utan á búrið og allt efnið í lokið.
fékk álið með hvítri húð en það var ekki það sem ég valdi.. svo ég lét pólýhúða það.

Image
álið límt utan og skrúfað upp í lappirnar, verið að stilla þessu saman

Image

Image
lokið smíðað

Image

Image

Image
búrið tilbúið og komið heim, hvítt grjót í botninum.. ef einhverjum vantar þá á ég nóg af því

það verður LED lýsing í lokinu oog vonandi fæ ég hana sem fyrst og ég á líka
eftir að finna mér dælu og annan búnað í þetta.. og fiska auðvitað
User avatar
Agnes Helga
Posts: 1580
Joined: 18 Nov 2006, 14:05

Re: mitt fyrsta búr, ca 300l

Post by Agnes Helga »

Þetta er bara flott hjá þér :) Samkv. utanmálum er búrið 375 L, virkilega vel gert búr hjá þér. Verður gaman að sjá hvernig fiska þú ætlar að hafa, ertu e-h búin að hugsa út í það?
450 L amerískar síklíður, 120 L guppy/smáfiska gróðurbúr, 180 L malawii/skjaldböku búr og 85 L seiðabúr
User avatar
elliÖ
Posts: 231
Joined: 26 Feb 2010, 00:11
Location: Reykjarvík

Re: mitt fyrsta búr, ca 300l

Post by elliÖ »

Mjög flott búr hjá þér það er eins gott að þú rúllir því ekki mikið á þessum hjólum á parketinu :)
kveðja Elvar
Elvar
Aquastabil 530L diskusar
130L japanis endler
linx
Posts: 152
Joined: 27 Mar 2007, 21:26

Re: mitt fyrsta búr, ca 300l

Post by linx »

virkilega flott smíði hjá þér! er þetta fyrsta búrið sem að þú smíðar?
Arnar_Þ
Posts: 7
Joined: 06 Mar 2011, 12:08

Re: mitt fyrsta búr, ca 300l

Post by Arnar_Þ »

Agnes.. samkvæmt þessu er það 300 lítrar http://www.theaquatools.com/building-your-aquarium en takk fyrir.. hef ekki hugsað mikið útí fiskana, hef mest gaman af því að smíða en það verða keyptir fiskar fljótlega

Elvar.. takk fyrir en búrið er mjög stöðugt á þessum hjólum og það þarf mikið til að hreyfa það þrátt fyrir að það sé ekkert vatn, en ég er nú þegar búinn að skemma parketið smá, en búrið verður ekkert hreyft fullt af vatni, hugsa að ég reyni að setja undir það þunna en sterka plötu til að koma í veg fyrir frekari skemmdir

linx: .. takk en já þetta er það fyrsta
Ási
Posts: 423
Joined: 15 Nov 2010, 13:43
Location: mosó

Re: mitt fyrsta búr, ca 300l

Post by Ási »

djö er þetta flott fyrir fyrsta búrið manns
400l búr sem á eftir að verða monster búr og
búin að breyta nafninu í Ási úr red
Kv.Ásbjörn
User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Re: mitt fyrsta búr, ca 300l

Post by Sven »

Virkilega flott :góður:
Mjög vandað allt saman.
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Re: mitt fyrsta búr, ca 300l

Post by Elma »

Mjög flott hjá þér!
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
linx
Posts: 152
Joined: 27 Mar 2007, 21:26

Re: mitt fyrsta búr, ca 300l

Post by linx »

Fyrsta smíði eða ekki þá er þetta virkilega flott hjá þér, það gæti hver sem er verið stoltur af þessu.
til lukku. :góður:
Arnar_Þ
Posts: 7
Joined: 06 Mar 2011, 12:08

Re: mitt fyrsta búr, ca 300l

Post by Arnar_Þ »

takk fyrir kommentin en hvernig dælu og annan búnað ætti ég að fá mér í þetta búr.. hef ekki hundsvit á svoleiðis :o
User avatar
pjakkur007
Posts: 311
Joined: 02 Feb 2010, 21:53
Location: Tálknafirði
Contact:

Re: mitt fyrsta búr, ca 300l

Post by pjakkur007 »

Mæli með Rena XP3 fæst á fínu verði hjá http://petshop.is/
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Re: mitt fyrsta búr, ca 300l

Post by Squinchy »

Ef þig langar að fara að föndra meira mæli ég með coast to coast Beananimal overflow og sump, eða þá Tetratec 1200 eða Xp3/4
Kv. Jökull
Dyralif.is
Arnar_Þ
Posts: 7
Joined: 06 Mar 2011, 12:08

Re: mitt fyrsta búr, ca 300l

Post by Arnar_Þ »

s.s. bara tunnudæla sem kemur til greina í svona búr ? hvaða sverleika á slöngunum þarf ég að hafa inn í búr? þetta þarf helst að vera eins clean og hægt er, coast to coast beananimal kemur ekki til greina, þetta á ekki að líta út eins og hitaveitukerfi :D
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Re: mitt fyrsta búr, ca 300l

Post by Squinchy »

Hehe þá held ég að tunnudæla sé frekar solid :)
Kv. Jökull
Dyralif.is
ulli
Posts: 2777
Joined: 08 May 2007, 00:45
Location: Ísland

Re: mitt fyrsta búr, ca 300l

Post by ulli »

Voða Vandað og flott.
Ein spurning passaðiru að hafa bil á milli glerja þegar þú Kýttaðir búrið saman?
Skyftir mikklu upp á styrk.
Arnar_Þ
Posts: 7
Joined: 06 Mar 2011, 12:08

Re: mitt fyrsta búr, ca 300l

Post by Arnar_Þ »

já auðvitað gerði ég það, var með að mig minnir 2mm bil
Arniukas
Posts: 7
Joined: 01 May 2011, 21:37

Re: mitt fyrsta búr, ca 300l

Post by Arniukas »

Amazing, flott !
palla122
Posts: 2
Joined: 12 Apr 2011, 13:47

Re: mitt fyrsta búr, ca 300l

Post by palla122 »

Mjög smart og áhugavert....
Ef þig langar að smíða annað svona eftir málum þé hef ég áhuga á að vita hvað þú tækir fyrir það með kostnaði. Gaman að sjá myndir á vinnslustigi :-)
Arnar_Þ
Posts: 7
Joined: 06 Mar 2011, 12:08

Re: mitt fyrsta búr, ca 300l

Post by Arnar_Þ »

kominn með LED lýsingu, 21 led held ég.. bæti kannski við og breyti þegar nær dregur mánaðarmótum ;) en fiskana á ég líka eftir......

Image

Image
halldora besta
Posts: 14
Joined: 30 Apr 2011, 19:10

Re: mitt fyrsta búr, ca 300l

Post by halldora besta »

hvernig fiska ertu að spá í
Storm
Posts: 37
Joined: 02 May 2011, 23:23

Re: mitt fyrsta búr, ca 300l

Post by Storm »

sæll, hvað kostaði þetta allt saman í heildina
Arnar_Þ
Posts: 7
Joined: 06 Mar 2011, 12:08

Re: mitt fyrsta búr, ca 300l

Post by Arnar_Þ »

man ekki nákvæmlega kostnað þar sem ég byrjaði á þessu fyrir löngu og enn á ég eftir að ákveða mig með dælu, hitara ofl.
en ca minnir mig að glerið hafi verið um 30.000 (fékk það á góðum prís.. ) álið var á 40.000 beygt fyrir mig en ég setti saman, pólýhúðun fékk ég frítt (fékk álið beygt í hvítu en ekki burstað eins og ég bað um)... skal draga þetta betur saman þegar þetta verður 100%
Post Reply