laga og græja 30 L fiskabúr

Búrasmíði, bakgrunnar, lok osf

Moderators: Vargur, keli, Squinchy

Post Reply
hrefnah
Posts: 44
Joined: 27 Nov 2010, 20:55

laga og græja 30 L fiskabúr

Post by hrefnah »

Hæhæ snillingar núna er ég komin með fiskana alveg á heilann er með 180 lítra búr í fullu fjöri og svo er 30 lítra búr sem mamma bjó til þegar hún var ung :) (49x25x25 utanmál)

Það lekur einhverstaðar og mig langar til að laga það.

Svo er búrið náttúrlega alveg tómt, mig að græja ljósabúnað ofan á það. á ég bara að kaupa hann (leiðinlegra) eða eruð þið með sniðuga leið til að gera sjálf (skemmtilegra :D )

Ef einhver á dælu sem hann er til í að láta gegn greiðslu væri það ósköp fínt líka :)
annars sá ég nú að vargur er með ódýrar dælur þessi http://petshop.is/product/details/categ ... duct_id/64 væri ábyggilega fín í djobbið
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

ég á glært fiskabúrasílikon og kíttigrind/byssu ef þú vilt fá lánað til að laga lekann.
það væri annars örugglega ekkert stórmál að smíða lok með ljósi ofaná búrið ef þú vilt gera það sjálf.
-Andri
695-4495

Image
hrefnah
Posts: 44
Joined: 27 Nov 2010, 20:55

re

Post by hrefnah »

ég er svo óþolinmóð að ef ég fæ einhverjar svona flugur í hausinn er ég búin að afgreiða þær áður en ég get blikkað augunum :D

er búin að kaupa kíttið (fyrir fiskabúr)

mig langar að gera lokið sjálf er búin að vera að lesa þræðina hérna og hallast að PVC. Skilst að það sé bara selt í massavís svo ef einhver getur selt mér efni væri það gaman :)

annars veit ég ekkert hvað ég er að gera. ætla að googla hvernig maður gerir þetta skref 1, skref 2, skref 3..... :wink:
Post Reply