Page 2 of 6

Posted: 05 Mar 2008, 23:15
by pípó
Ásta wrote:Sjá hvað Arrownan þolir!!

Hlynur, þú tekur þessa Upside-down úr búrinu áður en þeir ganga frá henni. Maður tekur ekki svona fúla sénsa með hundraðfimmtíuogsexþúsundkróna fisk.
Ég er sammála síðustu Drottningu,þú tekur ekki sénsinn klikkausinn þinn :evil:

Posted: 05 Mar 2008, 23:38
by Piranhinn
Vargur wrote:Gott að heyra með krillinn. ég hélt að hann væri ekki til hér.

Það er ekki á planinu að tryggja gripinn en væri gaman að kanna viðbrögðin hjá tryggingafélaginu.

Ég gleymdi að taka fram að í búrinu er líka tæplega 20 cm gullfallegur black ghost hnífafiskur, nú þaf ég að reyna að mynda hann.


Hann er stórglæsilegur, hefurðu nokkurn tíma sent inn mynd af greyinu?
Eðal eintak :D

Posted: 05 Mar 2008, 23:40
by keli
Iss, taka sénsinn... Enginn séns, þessi arowana hlýtur að geta svarað einhverjum kattfiskaræflum.. Annars er hún ekki 156þús kr virði :)

Posted: 05 Mar 2008, 23:40
by Vargur
Ég hef aldrei náð mynd af honum. :?
Er með vélina klára við búrið þessa dagana og bíð eftir að hann birtist.

Posted: 05 Mar 2008, 23:41
by Piranhinn
Vargur wrote:Ég hef aldrei náð mynd af honum. :?
Er með vélina klára við búrið þessa dagana og bíð eftir að hann birtist.
Setja bara "Black Ghost knife skynjara" frá Micromjúkt á vélina :D :lol:

Posted: 06 Mar 2008, 00:39
by Anna
Shit - ég hélt að hún mundi fara í eitthvað forstjórabúr hjá einhverjum feitum kalli sem mundi svo borða hana þegar hann fengi leið á henni :shock:

Til lukku með gripinn. Líst vel á pælingar um tryggingu... þó það væri ekki nema til að fá að sjá svipinn á tryggingasölumanninum :P

Posted: 06 Mar 2008, 19:04
by Lexis
Til hamingju með gripinn! Stórglæsileg!

En með tryggingar á fiskum, spurði yfirmanninn minn að þessu um daginn, fiskabúr eru hluti af innbúi en ekki fiskarnir sjálfir og það eru ekki til neinar "fiskatryggingar", þannig það gæti orðið dáldið mál að tryggja fiskana sjálfa, en það er örugglega allt hægt fyrir rétt verð ;)

Posted: 06 Mar 2008, 20:03
by Anna
Sv TM þá mundi kosta að líf- og heilsutryggja og sjúkdóma og slysatryggja 156.000 kr dýr í flokknum "annað" 606 kr á mánuði.

Það er ? um að skella sér á svona tryggingu - hmmmm

Posted: 07 Mar 2008, 15:51
by Vargur
Image
Arowanan tók upp á því að éta áðan, frosinn krill var fyrir valinu.
Ég reyndar henti nokkrum guppy í búrið í fyrradag en ég veit ekki hvort hún tók eitthvað af þeim eða hvort þeir enduðu í langa kjaftinum á garnum.

Posted: 07 Mar 2008, 19:04
by Inga Þóran
svaka flott búrið með henni í :wink:

Posted: 07 Mar 2008, 19:46
by mixer
það er aðeins tómlegra en þegar sikliðurnar voru þarna :P

Posted: 07 Mar 2008, 19:51
by animal
Vargur wrote:Image
Arowanan tók upp á því að éta áðan, frosinn krill var fyrir valinu.
Ég reyndar henti nokkrum guppy í búrið í fyrradag en ég veit ekki hvort hún tók eitthvað af þeim eða hvort þeir enduðu í langa kjaftinum á garnum.
Garinn er náttúrulega sérfræðingur í að týna upp fiska

Posted: 07 Mar 2008, 21:34
by Ólafur
mixer wrote:það er aðeins tómlegra en þegar sikliðurnar voru þarna :P
Hún verður fljót að fylla upp i þetta búr :P

Posted: 07 Mar 2008, 21:41
by Vargur
Þetta er bara grow-out búr.

Posted: 07 Mar 2008, 21:47
by Ólafur
Nákvæmlega :)

Posted: 10 Mar 2008, 22:41
by Vargur
Ég er að spá í hvort ég eigi ekki að herma eftir Kela og henda diskusunum með aröwönunni, þeir virðast ekki vera alveg nógu sáttir þeir sem þeir eru.
Annars er allt gott af arowönu að frétta, hún étur vel og er syndir um búrið og er ekki sérstaklega felugjörn.

Posted: 10 Mar 2008, 22:55
by keli
Vargur wrote:Ég er að spá í hvort ég eigi ekki að herma eftir Kela og henda diskusunum með aröwönunni, þeir virðast ekki vera alveg nógu sáttir þeir sem þeir eru.
Annars er allt gott af arowönu að frétta, hún étur vel og er syndir um búrið og er ekki sérstaklega felugjörn.
Mæli með því - arowanan fór í hálfgerða fýlu þegar ég tók síkliðurnar frá henni, en varð aktívari um leið og ég setti discusana í búrið. Þeir draga hana fram, og ég er ekki frá því að arowanan sé bara hrifin af discusunum, hún hangir amk furðu mikið hjá þeim.

Posted: 10 Mar 2008, 23:01
by Vargur
Ég henti eimitt einni keyhole sikliðu í búrið um daginn og arowanan hresstist við það, fór strax að skoða nýja félagan og ég held að það hafi komið henni í gang að éta að fá smá samkeppni um matinn.

Ég er ekkert að drolla við þetta, skelli diskusunum í búrið. :)

Posted: 11 Mar 2008, 01:04
by Vargur
Næstum því boðleg mynd af black ghost.

Image

Posted: 11 Mar 2008, 01:05
by Piranhinn
Góður! :mynd: af því "diskusa-millifærsluveseni" :) hehe og ánægjulegt að fá mynd af black ghost, væri gaman að sjá hann í stærðarsamanburði við e-ð annað... Er hann búinn að taka einhverja vaxtarkippi hjá þér nýlega? Vaxa nú yfirleitt frekar hægt þessi grey... :)

Posted: 11 Mar 2008, 01:28
by Vargur
B. ghost er nú tæpir 20 cm og hefur ekki vaxið hratt að undanförnu. Það breytist kannski núna enda er hann farinn að fá að éta og er meira á ferðinni eftir að sikliðurnar fóru úr búrinu.

Posted: 11 Mar 2008, 22:31
by Ellig
til hamingju með þetta vargur hvað er hún stór?

Posted: 11 Mar 2008, 23:09
by Sendibill
156.000kr fyrir einn fisk?
:vá:

Posted: 12 Mar 2008, 00:00
by Vargur
Ellig wrote:til hamingju með þetta vargur hvað er hún stór?
Hún er tæpir 20 cm.

Diskusarnir virðast nokkuð sáttir við búrið en eru samt andskotanum stressaðri, maður þarf að læðast fram hjá búrinu. Þeir anda þó rólega og sýndu blóðormum áhuga í dag.
Ég læddist að búrinu og tók nokkrar myndir flasslaust.

Image

Image

Image
Stressrendurnar sjást vel á þeim, reyndar finnast mér þær flottar en ég vil frekar hafa rólega.

Posted: 23 Mar 2008, 01:36
by Elma
eins og anskotinn sjálfur hafi klórað í diskusana!!! :shock: :twisted: :lol:

Posted: 31 Mar 2008, 14:41
by Andri Pogo
kannski smá útúrdúr en það var verið að ræða um tryggingar fyrir arowönuna í þræðingum.
Ég ath þetta hjá TM um daginn og sótti eftir að fá tilboð í arowönuna mína, lugnafiskinn og salamöndruna, bara svona til að kanna viðbrögðin og ég fékk svo símtal nokkrum dögum seinna þar sem mér var sagt að gæludýratryggingin nái ekki yfir fiska.

Svosem skiljanlegt eins og rætt var um á síðasta félagsfundi Skrautfisks, það þarf að passa miklu betur uppá fiskana en t.d. hunda, ketti og þess háttar dýr.

Posted: 08 Apr 2008, 22:06
by Vargur
Smá update.

Þegar ég kom heim eftir 3 vikna fjarveru þá hafði flotgróðurinn og Valisnerian vaxið svo gríðarlega að lítið sem ekkert ljós komst niður í búrinu. Lággróðurinn virtist ekki taka því vel.

Image
Javaburkninn allur brúnn og þakinn þörung.

Sae hafa ekki verið að standa sig og sjást ekkert í búrinu, ég hélt að Arowanan hefði étið þá en þeir komu í ljós í gærkveldi en eru greinilega drullusmeykir við Aro og hefur hún líklega verið að reyna að éta þá.

Image

Annars er allt í fína, allir éta en diskusarnir eru þó enn í stress litunum og hafa ekki hryngt svo ég viti.

Posted: 08 Apr 2008, 22:08
by keli
ég held að það sé best að þú látir mig bara fá parið :)

Posted: 08 Apr 2008, 22:15
by Vargur
Ég þori ekki að láta það, það eru allir búnir að falast eftir þeim og ef ég geri upp á milli þá verða allir vitlausir. :-)

Posted: 08 Apr 2008, 22:33
by keli
Ég lofa að segja engum :)