Marhnútur?

Fyrir þá sem þora. Ránfiskar, botn- og kattfiskar í stórum númerum

Moderators: Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
Gabriel
Posts: 123
Joined: 14 Jul 2007, 01:55
Location: Húsavík

Marhnútur?

Post by Gabriel »

Eftir að hafa lesið eldri dálk Vargs um heimsókn hans í Náttúrugripasafn Kópavogs og séð myndir af marhnútinum, fann ég mig knúinn til að spyrja hvort einhver hefur einhverja hugmynd, eða jafnvel reynslu, af því að halda svona dýr. Mig hefur lengi dreymt um að eignast svona skepnu en aldrei lagt í það að fá mér saltvatnsbúr og hrökklaðist til baka eftir að hafa séð verð á kælibúnaði í fiskabúr. Ef einhver veit eitthvað um málið, og þá sérstaklega hvort að hægt er að halda hann á kælibúnaðar. Þá endilega að fræða mig.

ps. veit að þetta er ferskvatnsfiskaspjall, en hef ekki fundið nein spjöll af viti um sjávardýr :P
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Örugglega ekkert stórmál að hafa einn lítinn marhnút í fiskikari útá svölum... Svo lengi sem sólin skín ekki á það þá ætti það að haldast passlega kalt...


Veit ekki með fóður samt - gæti vel verið að það sé vesen að gefa þeim að éta, og svo gæti líka þurft að skipta ansi reglulega um vatn :)
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Gabriel
Posts: 123
Joined: 14 Jul 2007, 01:55
Location: Húsavík

Post by Gabriel »

Þú segir það já :) en ég hef nú hvorki aðgang að fiskikari né svölum :P var meira að spá í að geta dáðst að honum í fiskabúri innandyra ef það væri mögulegt. Vargur, veistu hvort að búrið á Náttúrugripasafninu hafi haft kælibúnað?
Bjarkinn
Posts: 32
Joined: 10 Nov 2007, 14:01

Post by Bjarkinn »

ég get svarað því, stóra saltvatnsbúrið er með kælibúnaði enda myndu fiskarnir sem í því eru ekki endast lengi án þess að hafa hann.
animal
Posts: 930
Joined: 07 Aug 2007, 22:49

Post by animal »

Já með kælibúnað sem heldur því í 12 gráðum, ætti að vera hægt að hafa hann lítinn í hitaralausu búri þar sem pollar sem hann er í, fara á sumrin allt uppí 25 gráður tímabundið
Ace Ventura Islandicus
Gabriel
Posts: 123
Joined: 14 Jul 2007, 01:55
Location: Húsavík

Post by Gabriel »

Já, mér líst ágætlega á þetta :) Ég þarf einhverntíman að prufa að fylla búrið af sjó og sleppa bara hitaranum og veiða mér eitt stk. marhnút. Hvað haldið þið að það þurfi stórt búr undir hann? Las að hann verði um 25-30 cm hér í kringum landið. :)
Bjarkinn
Posts: 32
Joined: 10 Nov 2007, 14:01

Post by Bjarkinn »

ég myndi ekki setja hann í minna en 300 l búr helst strærra, en þá er náttúrulega orðið erfitt að verða sér út um sjó, verður helst að blanda sjálfur sjó í þetta myndi ég halda.
ulli
Posts: 2777
Joined: 08 May 2007, 00:45
Location: Ísland

Post by ulli »

það er lika hætta á að það mindist dögg á glerið efa vatnið er mjög kallt og þú ert með þetta í stofunni.hef heyrt að tvöfalt gler með filmu á milli sé málið,en er ekki viss
Gabriel
Posts: 123
Joined: 14 Jul 2007, 01:55
Location: Húsavík

Post by Gabriel »

Hm.. :? Ég ræð þessa stundina ekki yfir neinu stærra en 110L svo þetta verður að bíða eitthvað, en það hlítur að vera í lagi að nota íslenskan sjó fyrst að fiskurinn lifir í honum :P
ulli
Posts: 2777
Joined: 08 May 2007, 00:45
Location: Ísland

Post by ulli »

http://cgi.ebay.com/1-3-HP-Via-Aqua-Aqu ... dZViewItem

finn chiller og allsekki dyr.spá í að splæsa mér í einn svona sjálfur
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Gabriel wrote:Hm.. :? Ég ræð þessa stundina ekki yfir neinu stærra en 110L svo þetta verður að bíða eitthvað, en það hlítur að vera í lagi að nota íslenskan sjó fyrst að fiskurinn lifir í honum :P
Já, en þú þarft að fara útá sjó og dæla honum upp ef þú vilt fá hann án olíubrælu og skólps. Það er ekki nóg að fara bara útá bryggju eða útí fjöru - alltof mikið af mengun þar til að hann sé góður til langtíma.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Getur útbúið chiller með litlum vatnskassa af t.d. einhverju vélhjóli með lítinn kassa, hreinsað hann virkilega vel með því að láta vatn renna í gegnum hann lengi, eða kanski bara nýan, setur hann úr fyrir gluggan og dælir vatni upp úr búrinu í gegnum kassan og ofan í aftur

Vatnskipti gerir þú bara með því að gera 20% vikulega og notar bara venjulegan sjó, bara að taka hann langt frá höfn eða þar sem báta umferð er, bátar menga svo
Kv. Jökull
Dyralif.is
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Squinchy wrote:Getur útbúið chiller með litlum vatnskassa af t.d. einhverju vélhjóli með lítinn kassa, hreinsað hann virkilega vel með því að láta vatn renna í gegnum hann lengi, eða kanski bara nýan, setur hann úr fyrir gluggan og dælir vatni upp úr búrinu í gegnum kassan og ofan í aftur
Einnig hægt að setja kassann í kalt vatn, t.d. bala sem maður lætur renna rólega í... Fullt af diy dóti til að kæla niður búr til :)
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Tengja búrið bara við ísskápinn :lol:
Kv. Jökull
Dyralif.is
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Setja tunnudæluna inn í frysti. :D
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Hahaha eða það :D
Kv. Jökull
Dyralif.is
GG
Posts: 250
Joined: 22 Oct 2006, 10:57

Post by GG »

tengja forhitara við kalt neyslluvatn og láta sjóinn hryngrása í honum einfalt og tekur lítið plás. :wink:
Post Reply