Page 1 of 1

Man Cave

Posted: 16 Mar 2014, 13:20
by Arnarl
Ég og Unnisiggi hérna a spjallinu erum að búa til stráka herbergi en í því verða 2 stór búr eitt 1000 lítra og eitt 800 lítra og svo er eitt 180 lítra líka sem er orðið uppsett með um 40 afríku síkliðum öll búrin verða með sump, leyfa myndunum að tala.

Image

Image
Allt í drasli, sést þarna í heitapottinn og svo er ljósabekkur líka þarna
Image

Image

Image

Þetta verður mjöög skemmtilegt verkefni og auðvitað monster í stóru búrunum annað verður uppeldisbúr og hitt tankur fyrir stóru durgana, svo verður sófi, sjónvarp, rosa græjur, bjórkælir og skemmtilegheit.

Re: Men Cave

Posted: 16 Mar 2014, 13:36
by Squinchy
Flottur listi af búrum þarna, verður spennandi að sjá þetta up and running :D

Re: Men Cave

Posted: 16 Mar 2014, 13:45
by Arnarl
Þetta eru rosa tankar :D

Re: Men Cave

Posted: 16 Mar 2014, 17:22
by Sibbi
:góður:

Re: Men Cave

Posted: 18 Mar 2014, 00:58
by Arnarl
Sma update: Sótti einn risa synspilus áðann og eina tilapiu sem fóru í 1000 lítra búrið asamt óskari einum gibba, einhverri synadontis tegund man ekki allveg hvaða samt, svo fóru líka 3 convictar, einn albinó og 2 venjulegir og svo einhver 8 eða 9 stk af afríkönum sem eru blandaðir út og suður en hérna eru nokkrar myndir :D

Image

Image

Image

Image

Image

Image
Svona þrífa atvinnumenn búrin sín, ekkert annað hægt í svona tanki

Re: Men Cave

Posted: 18 Mar 2014, 21:51
by Gudmundur
Flott fékkstu synspilus karlinn sem var í dýragarðinum ?

Re: Men Cave

Posted: 18 Mar 2014, 23:47
by Arnarl
Yubb og hann dominerar sko I burinu, fyndiđ ađ sjá hann passa afríku síkliđurnar frá óskarnum og tilapiuni geggjađur fiskur

Re: Men Cave

Posted: 20 Mar 2014, 21:13
by Gudmundur
hér er ein mynd af honum þegar hann var í mínu búri
Image

Re: Men Cave

Posted: 21 Mar 2014, 07:53
by Arnarl
Flottur! Hann er byrjađur ađ fá liti núna eftir ad ég tók tilapiuna enginn smá tuddi og étur svo eins og fíll

Re: Men Cave

Posted: 21 Mar 2014, 08:09
by Sibbi
Arnarl wrote:Flottur! Hann er byrjađur ađ fá liti núna eftir ad ég tók tilapiuna enginn smá tuddi og étur svo eins og fíll
:hehe:

Re: Man Cave

Posted: 23 Mar 2014, 23:52
by Arnarl
Jæja þarf að fara henda 800 lítra búrinu upp og innrétta bæði búrin þar sem ég fæ stóra arowönu og 2 agæta clown knife næstu helgi, hvar hafiði verið að sækja ykkur flottann sand hérna? vitiði um einhverja fjöru með fallegum dökkum sandi?

Re: Man Cave

Posted: 25 Mar 2014, 00:59
by Arnarl
800 lítra búrið var sett upp aðann og fór ég og sótti fiska í það hérna eru nokkrar myndir

Image
Þessi er um 30cm
Image
Stærri hnífurinn hinn er um helmingi minni
Image

Image

Image

Image

Það eru núna 4 T8 í því, ekki fiskabúra perur heldur einhvað fra fyrri eiganda þarf að skipta þeim út fyrir einhvað betra og jafnvel bæta meira við, svo bara fara fylla búrið af monsterum og drífa sig í því að setja upp 1000 lítra búrið, s.s innrétta það.
Endilega komið með ykkar skoðun a innréttinguni hvort einhverju þyrfti að breyta (fyrir utan yfirfallinu, því verður breytt) og hugmyndir af flr íbúum

Re: Man Cave

Posted: 25 Mar 2014, 08:19
by Sibbi
:góður: til lukku með búrið.
Mér finnst þessi monsterbúr alltaf töff með nánast engu drasli, bara til dæmis einn stór klettur aftantil í búri :)

Re: Man Cave

Posted: 25 Mar 2014, 08:52
by keli
Passaðu bara að það sé gott lok á búrinu. Annars fer arowanan uppúr :)

Re: Man Cave

Posted: 25 Mar 2014, 11:21
by Arnarl
Þađ er þétt engin leiđ uppúr

Re: Man Cave

Posted: 02 Apr 2014, 01:23
by ulli
Gaman að sjá gamla.
Er búið að týna klæðningunni af skápnum?

Re: Man Cave

Posted: 02 Apr 2014, 21:31
by Squinchy
Var einmitt að hugsa það sama

Re: Man Cave

Posted: 05 Apr 2014, 02:13
by Arnarl
hún hefur týndst fra fyrri eiganda, vinur minn búinn að eiga það í 2-3 ar held ég og aldrei verið með klæðningu

Re: Man Cave

Posted: 06 Apr 2014, 21:05
by ulli
Vesen þetta var ágætis mubla.

Re: Man Cave

Posted: 08 Nov 2014, 22:59
by audun
Það fór með klæðningunni frá mér til unnasigga